Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT BYGGINGAKERFI Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR R NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is Bestu undirstöðurnar fyrir: SÓLPALLINN SUMARHÚSIÐ GIRÐINGUNA SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND ÞEGAR VERSLAÐ ER Á DVERGARNIR.IS SVIÐSLJÓS Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Allt er til reiðu í Herjólfsdal fyrir Þjóðhátíð 2021, sem ekki verður. Ljósaskreytingar, brennan á Fjósakletti, götumerkingar fyrir hvítu tjöldin, myllan og vitinn svo helstu kennileiti séu nefnd eru á sínum stað. Það eina sem vantar eru hvítu tjöldin sem ekki verða reist þetta árið og ástæðuna þekkja allir, samkomubann í kóf- inu. Mikil vinna að baki og þús- undir sem stefndu á að eyða helginni við glaum og gleði í Eyj- um um verslunarmannahelgina verða að bíða annað árið í röð. Þjóðhátíð er stór hluti af bæj- arsál Eyjamanna og -kvenna og börn í Vestmannaeyjum ekki göm- ul þegar þau fara að hlakka til há- tíðarinnar. Það eru því nokkrir sem sjá ljósið í kófinu og halda sína eigin litlu Þjóðhátíð. Eru hjónin Lilja Ólafsdóttir og Halldór Sævarsson, sem búa í austur- bænum í Vestmannaeyjum, meðal þeirra og taka þetta alla leið. Og ástæða til því þau gengu í það heil- aga á setningu Þjóðhátíðar sum- arið 1995. Hvíta tjaldið miðpunkturinn „Hér erum við með hliðið inn á hátíðarsvæðið, vitann, mylluna, tjörnina með sinni brú, brennuna og varðeldinn, brekku fyrir brekkusönginn og síðast en ekki síst hvíta tjaldið okkar sem er eins og alltaf miðpunkturinn,“ segir Halldór þegar hann leiðir blaða- mann um lóðina sem myndar, líkt og Herjólfsdalur, skemmtilega um- gjörð um hátíðina þeirra. Tjaldið stendur við Reimslóð, sem er ein af götunum fyrir hvítu tjöldin, og er búið að skreyta það. „Við erum með mexíkóskt þema þetta árið og verðum öll í bún- ingum við hæfi. Dagskráin verður í anda Þjóðhátíðar, með setningu, kvöldvöku, brennu, söngva- og búningakeppni og miðnæturtón- leikum öll kvöldin. Við erum meira að segja með þessa fínu brekku fyrir brekkusönginn,“ segir Lilja. Erlendir gestir Þau fá gesti, m.a. frá Belgíu og Úkraínu. „Þetta eru vinir okkar sem fyrir löngu ákváðu að koma á Þjóðhátíð og svo kemur vinur okk- ar sem hefur verið með okkur á hátíðinni í tíu eða tólf ár. Og þetta verður venjuleg Þjóðhátíð, bara heima en ekki inni í Dal. Verði brennan og flugeldasýning í Herj- ólfsdal kemur maður sér einhvers staðar vel fyrir og nýtur.“ Lilja segir að þau vilji halda í hefðina og ef það er ekki hægt í Dalnum er bara eitt ráð; að gera það heima. „Við höldum upp á brúðkaupsafmælið okkar og erum með vinum og fjölskyldu. Út á þetta gengur Þjóðhátíð og brúð- kaupsafmælið okkar miðast við setningu Þjóðhátíðar á föstudegi á Þjóðhátíð, sama hver mánaðardag- urinn er,“ segir Lilja og afhendir blaðamanni dagskrá hátíðarinnar. „Það stefnir í gott veður um helgina eins og alltaf á Þjóðhátíð og við hlökkum til,“ sögðu Halldór og Lilja að lokum. Gift Lilja Ólafsdóttir og Halldór Sævarsson giftu sig á þjóðhá- tíð í Eyjum 1995 og eru hér með syni sínum, Sævari Vilberg. Þjóðhátíð Lilja og Halldór eru búin að gera allt klárt heima fyrir helgina, og skreyta bæði húsið og garðinn. Hátíðin flutt úr Dalnum heim á lóð - Þjóðhátíð ekki í Herjólfsdal í ár - Lilja og Halldór gefin saman á setningu Þjóðhátíðar árið 1995 - Halda sína eigin litlu þjóðhátíð við heimilið um helgina með veislutjaldi og mexíkósku þema Hvíta tjaldið Hér verður án nokkurs vafa tekið lagið í góðra vina hópi og veitingar munu fá borðið stóra til að svigna. Leikmunur Vitinn verður til staðar í garðinum hjá Lilju og Halldóri. Ljósmyndir/Sigfús Gunnar Guðmundsson Tímamót Lilja og Halldór fyrir utan hvíta tjaldið, eitt helsta auðkenni Þjóðhátíðar í Eyjum. Þarna verður haldið upp á 26 ára brúðkaupsafmælið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.