Morgunblaðið - 30.07.2021, Síða 13

Morgunblaðið - 30.07.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 VINNINGASKRÁ 189 11138 21098 32636 42593 52873 63428 70654 538 11173 21252 33141 43115 53323 63456 71671 570 11450 21272 33413 43646 53488 63529 71782 1080 11488 21664 33574 43727 53924 63706 72465 1108 11779 22828 33669 43917 54977 63996 72597 1164 12127 22946 33701 44415 55155 64272 73135 1200 12381 23461 33776 44620 55394 64273 73734 1280 12454 23665 34158 44639 55668 64401 73828 1332 12687 24464 34274 45058 55841 64468 73861 1545 12995 24897 34496 45079 55861 64928 74079 2162 13270 24957 35186 45543 55881 64944 74574 2357 13543 25005 35211 46078 55911 64949 74797 3211 13554 25121 35587 46084 56126 65201 74807 3235 14059 25605 35798 46109 56234 65213 74822 3918 14133 25761 36077 46618 56366 65738 75149 4255 14291 26060 36168 46789 56645 65785 75218 4954 15098 26623 36889 47220 56802 65856 76093 5674 15150 26845 37484 47439 56991 66210 76548 5974 15324 27531 37513 47915 58303 66279 76951 6129 15499 27723 37984 47916 58377 66816 77095 7281 15659 27777 38501 48014 58488 67072 77112 7374 15738 28103 38581 48063 59295 67117 77244 7703 15944 28135 38664 48157 59462 67261 77332 7780 16017 28273 38668 48533 59832 67761 77580 7926 16460 28318 40124 48695 60126 68007 77845 8069 16744 29666 40218 49312 60151 68147 77997 8682 17205 29789 40276 49326 60228 68251 78007 8770 17466 30322 40456 49835 60234 68358 78227 8891 17814 30540 40546 49902 60281 68377 79399 8897 17902 30735 40939 50426 60336 68492 79443 8986 18514 31496 41212 50953 61021 68586 79649 9103 18749 31536 41339 51000 61362 68803 9331 19053 31599 41613 51436 61709 69131 10168 19680 32169 41863 51467 63108 69572 10502 20412 32205 41872 51772 63220 69648 10559 20776 32336 42351 52009 63234 70023 10817 20811 32536 42366 52719 63425 70532 124 7828 23270 37461 47036 55475 61889 74390 1130 8424 23757 38826 49250 55659 62212 75069 1230 10259 26570 40467 49357 55799 62455 75469 1440 10302 26856 40912 49491 55977 64095 76523 1597 10796 27391 41027 49565 56179 66045 76675 1599 11805 27936 41643 51088 57067 66477 76795 2660 16995 28143 41690 52902 57381 68901 77039 3120 17598 28420 42349 53645 57467 69054 79540 4166 17706 28818 42717 53762 58157 69960 79680 4351 18362 29157 43282 54631 58790 70240 5178 18619 31411 44631 55034 58845 71565 5485 18704 33099 44638 55070 58954 72119 5927 22995 33576 46553 55470 60319 73909 Næstu útdrættir fara fram 5., 12., 19., 26. ágúst & 2. sept 2021 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 16648 28922 29881 56669 68325 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 529 10007 23031 37396 61945 65895 805 14477 26089 42403 63498 70603 1095 15977 32277 48838 64413 72483 3072 18688 36103 52724 65845 76457 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 3 5 1 2 13. útdráttur 29. júlí 2021 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Kínverskur dómstóll hefur dæmt berorða svínabóndann og millj- arðamæringinn Sun Dawu til 18 ára fangelsisvistar. Var honum gefið að sök að hafa „stofnað til vandræða“. Leynd hvíldi yfir réttarhaldinu og niðurstöðu þess en Sun hefur verið áberandi í mannréttindabaráttu í Kína. Talsmaður réttarins í Gaobeidian sem er skammt frá Peking sagði að Sun hefði verið sekur fundinn um glæpi eins og „smala saman fólki til árása gegn ríkisstofnunum“, „hindra störf stjórnsýslunnar og leita eftir rifrildi og espa til óláta“. Orðalag tals- mannsins er kunnuglegt úr málum gegn andófsmönnum í Kína. Sun Dawu var handtekinn í nóv- ember sl. ásamt um tveimur tugum skyldmenna hans og samstarfs- manna á sviðum viðskipta eftir að fyrirtæki hans blandaðist í landa- merkjadeilu við samkeppnisfyrirtæki í ríkiseigu. Byggði hann ásamt konu sinni eitt allra stærsta landbún- aðarfyrirtæki í einkaeigu í Kína. Hófu þau starfsemi með nokkrum hænum og svínum á níunda áratug síðustu aldar. Hann hefur einnig verið aðsóps- mikill í baráttu fyrir auknum fram- förum til sveita. Þá ljóstraði hann upp um seinagang embættismanna á heimaslóðum hans með því að birta á netinu myndir af dauðum svínum sem urðu skæðri svínaflensu að bráð 2019. Auk refsivistarinnar var Sun sekt- aður um 3,11 milljónir júana, jafnvirði um 475 milljóna dollara, er dómur var kveðinn upp í fyrradag. Réttarhaldið hófst 15. júlí fyrir al- þýðudómstól Gaobeidian í Hebei- sýslu, að sögn lögmanna hans sem sögðu leyndina yfir réttarhaldinu brjóta í bága við réttarfarsreglur og þess hefði ekki verið gætt að vernda málafærsluréttindi hans. Sögðu lög- menn Sun að ekki hefði verið um „venjuleg málaferli“ að ræða og hefði skjólstæðingur þeirra mátt sitja und- ir 12 stunda yfirheyrslum meðan á þeim stóð og efni ákærunnar gegn honum hefði verið einstaklega flókið. Þetta var ekki fyrsti dómurinn sem Sun fær á sig því hann var dæmdur í fangelsi fyrir „ólöglega fjáröflun“ ár- ið 2003. Mannréttindafrömuðir og al- menningur risu kröftuglega upp gegn dóminum sem leiddi á endanum til þess að hann var felldur niður. Myndskeið sem lögmenn deildu sýndu afar rammar öryggisráðstaf- anir við dómhúsið í Gaobeidian. Þar stóðu raðir lögreglubíla og skari óein- kennisklæddra lögreglumanna. Saksóknarar héldu því fram að fyrirtæki Suns, Dawu Group, hefði stundað sviksemi gagnvart starfs- mönnum sínum, truflað störf héraðs- stjórnarinnar og stefnt pólitískum stöðugleika í hættu, að sögn vitnis við réttarhaldið. Undir vitnaleiðslunum svaraði Sun því til að fyrirtækið væri „með öllu sósíalískt“ og starfsmenn allir á leið til sameiginlegrar aukinnar hagsældar auk þess sem þeir lifðu vel, að sögn vitnisins. Við réttarhaldið skýrði Sun frá því að hann hefði farið i hungurverkfall eftir handtökuna í nóvember. Sagðist hann hafa kynnst „ólýsanlegri eymd“ í varðhaldinu. Dawu Group veitti níu þúsund manns vinnu áður en fyrirtækið var kyrrsett og hald lagt á eigur Suns. Var starfsmönnum vísað á dyr. Sun Dawu hefur í áratugi gagnrýnt stefnu kínversku stjórnarinnar í mál- efnum sveitanna. Hefur hann krafist aukins frjálsræðis fyrir bændur til að skipa málum sínum í þann farveg sem þeir sjálfir kjósa til að vernda hags- muni sína sem best. Kínversk stjórnvöld hafa undan- farin ár elt uppi áberandi kaupsýslu- menn sem gagnrýnt hafa völd komm- únistaflokksins. Þannig var annar kaupsýslumaður, Ren Zhiqiang, dæmdur í fyrra í 18 ára fangelsi fyrir ritgerð þar sem hann húðskammaðist út í Xi Jiping forseta fyrir misheppn- uð tök hans á kórónuveiru- faraldrinum. Sun í 18 ára fangelsi - Dæmdur fyrir að hafa „stofnað til vandræða“ - Kín- versk stjórnvöld fangelsa áfram áberandi kaupsýslumenn AFP Dómur Sub Dawu í fóðurhúsi sínu en hann fékk 18 ára fangelsisdóm. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Evrópski flugvélasmiðurinn Airbus birti afkomutölur fyrir fyrri árs- helming og sýna þær hagnað af rekstri í stað taps á sama tímabili í fyrra. Hreinn afgangur af rekstri nam 2,2 milljörðum evra í ár sam- anborið við 1,9 milljarða tap í fyrra er kórónuveirufaraldurinn lék flug- starfsemi grátt. Airbus afhenti 297 nýjar þotur frá janúar til júníloka, samanborið við 196 þotur í fyrra. Þar sem kaupend- ur borga stærstan hluta kaupverðs- ins við afhendingu hækkuðu tekjur Airbus um 30% í 24,6 milljarða evra. Vegna afkomunnar hefur evrópski flugvélasmiðurinn endurskoðað afkomuspár sínar til hækkunar. Samkvæmt því stefnir hann að af- hendingu 600 nýrra farþegaflugvéla í ár í stað 566 sem áður var áætlað og var í raun sami fjöldi og afhentur var kaupendum árið 2020. Loks áætlar Airbus að rekstrar- hagnaður fyrirtækisins verði fjórir milljarðar evra í ár sem er tvöfalt meiri afgangur en í fyrri spá. Til marks um að flugvélasmíði á enn í kreppu voru pantanir á nýjum Airbus farþegaþotum á fyrra árs- helmingi einungis 38 fleiri en afpant- anir nýrra flugvéla sem námu 127 þotum. Á pöntunarbókum voru 6.925 þot- ur við júnílok, þar á meðal 5.666 úr A320-fjölskyldunni, sem er langsölu- hæsta þota Airbus. Alþjóða flugstarfsemi er enn veru- lega takmörkuð vegna aðgerða til að sigrast á kórónuveirufaraldrinum. Einungis vöruflutningar eru að aukast umfram það sem var fyrir faraldurinn. Á þeim vettvangi stend- ur Airbus höllum fæti gagnvart keppinaut sínum, Boeing. Við því hefur stjórn Airbus brugðist með því að hrinda úr vör vöruflutningamód- eli A350-þotunnar til að keppa við B767- og B777-flutningavéla frá Bo- eing. Boeing birti einnig afkomutölur í fyrradag en aðeins fyrir annan árs- fjórðung. Þar birtist fyrsti hagnaður flugrisans af hergagnaframleiðslu frá 2019. Aukin umsvif í flugvéla- smíði gera fyrirtækinu kleift að segja ekki upp eins mörgum starfs- mönnum og áður var áætlað. Verða þeir áfram 140.000 og kemur fækkun þeirra um tug þúsunda ekki til fram- kvæmda. Forstjórinn, Dave Cal- houn, sagði þetta mögulegt vegna „hvetjandi“ horfa í flugvélasmíði. Hagnaður Boeing á fjórðungnum nam 587 milljónum dollara, saman- borið við 2,4 milljarða tap sömu þrjá mánuði 2020. Kom niðurstaðan greinendum á óvart en þeir höfðu spáð einum tapfjórðungnum í viðbót. Voru þetta fyrstu jákvæðu tölurnar úr rekstri Boeing frá þriðja fjórð- ungi 2019. Tekjur félagsins námu 17 milljörðum sem er 44% aukning frá sama fjórðungi 2020 en þar munaði mest um tekjur af framleiðslu tækja til varnarmála, geimrannsókna og öryggismála. Tap af farþegaflug- véladeild Boeing var mun minna en stefna þótti í og er það þakkað af- hendingu 737 MAX-þotunnar sem flugbann var á í 20 mánuði í fram- haldi af tveimur mannskæðum flug- slysum. Þrátt fyrir góða útkomu stendur Boeing enn frammi fyrir spurning- um varðandi starfsemi fyrirtækisins, nú síðast vegna 787 Dreamliner-þot- unnar. Boeing hefur stöðvað afhend- ingu þotunnar og dregið úr smíði hennar meðan á úttekt og endurbót- um á smíðinni stendur. Þá ríkir nú óvissa um pantanir á nýjum þotum frá kínverskum flugrekendum og enn er glímt við kórónuveiruna. Airbus í bröttu bata- klifri eftir nýtt uppgjör - Góð útkoma hjá Boeing en stórum spurningum ósvarað AFP Flug Airbus A330-þota félagsins Garuda Indonesia lendir á Sultan Iskandar Muda-flugvellinum í Blang Bintang í Aceh-héraði í Indóesíu fyrir viku. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.