Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 27

Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 27
Bandaríkjunum. Í gær fullyrti ESPN jafnframt að Sunisa Lee væri fyrst kvenna af asískum upp- runa til að verða ólympíumeistari í fjölþraut. Fyrir utan hæfileikana og sterkar taugar þykir Sunisa Lee hafa sýnt mikla þrautseigju í undirbúningi fyrir leikana. Hún braut bein í ökkla og skaddaði einnig hásin. Auk þess hefur ýmislegt gengið á í fjölskyld- unni síðustu árin. Stjúpfaðir hennar lamaðist í slysi árið 2019 og tvö ÓL Í TÓKÝÓ Kristján Jónsson kris@mbl.is Í aðdraganda Ólympíuleikanna var talið svo gott sem öruggt að gull- verðlaunin í fjölþraut kvenna í fim- leikum yrðu hengd um háls Simone Biles frá Bandaríkjunum. Rétt eins og á leikunum í Ríó árið 2016. En margt fer öðruvísi en ætlað er, jafnt í íþróttum sem annars staðar. Biles hætti við þátttöku í vikunni eins og fjallað hefur verið um. Það hafði þó ekki þær afleiðingar að Bandaríkjamenn þyrftu að sjá á eft- ir gullinu til keppanda frá annarri þjóð en þær bandarísku hafa sigrað í fjölþrautinni á fimm Ólympíu- leikum í röð. Í Aþenu, Peking, London, Ríó og nú Tókýó því Sunisa Lee sigraði. Rebeca Andrade frá Brasilíu fékk silfurverðlaun og hin rússneska Angelina Melnikova hlaut bronsverðlaun. Keppnin var mjög sterk ef horft er til þess að verðlaunahafarnir fengu allar mjög háar einkunnir. Lee fékk 57.433 stig samtals, And- rade 57.298 og Melnikova 57.199 stig. Sunisa Lee er aðeins 18 ára göm- ul sem þó þykir ekki endilega ungt hjá fimleikafólki í hæsta gæðaflokki. Hún keppir nú á Ólympíuleikum í fyrsta sinn og vann silfurverðlaun fyrr í vikunni með Bandaríkjunum í liðakeppninni. Lee öðlaðist góða reynslu á HM í Stuttgart árið 2019 en þar varð hún önnur í gólfæfing- um og þriðja á tvíslá. Auk þess var hún í bandaríska liðinu sem varð þá heimsmeistari í liðakeppni. Foreldrarnir frá Laos Sunisa fæddist í St. Paul í Minne- sota 9. mars 2003 og tók upp eftir- nafnið Lee eftir stjúpföðurnum John Lee sem kom inn í líf mæðgn- anna þegar Sunisa var tveggja ára gömul. Sunisa Lee er af asískum uppruna en foreldrar hennar flutt- ust bæði til Bandaríkjanna frá Laos á barnsaldri. Hún er fyrsti Bandaríkjamað- urinn frá þeim slóðum sem vinnur til verðlauna á Ólympíuleikum. Á ensku er talað um „Hmong Americ- ans“ en þar er átt við fólk sem á rætur að rekja til Laos, Víetnams, Mjanmars, Taílands og svæðis í suð- urhluta Kína. Fólk ættað frá þess- um slóðum telur um 260 þúsund í skyldmenni hennar létust úr kór- ónuveirunni. „Gullverðlaunin skipta mig miklu máli vegna þess að um tíma langaði mig mest til að gefast upp og fannst ólíklegt að ég kæmist á leikana vegna meiðsla. Ýmsar tilfinningar bærast í manni en ég er mjög stolt af sjálfri mér fyrir að hafa haldið mínu striki,“ sagði Lee á blaða- mannafundi og sagði tilhugsunina um að vera ólympíumeistari í fjöl- þraut „súrrealíska“. Tilvísunin er súrrealísk - Sigurganga bandarískra kvenna heldur áfram í fjölþrautinni á ÓL AFP Liðleiki Sunisa Lee í æfingum á jafnvægisslá á leikunum í gær. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 _ Körfuknattleiksmaðurinn Dúi Þór Jónsson er kominn til liðs við Þór á Akureyri og hefur samið við félagið til eins árs en hann kemur frá Stjörn- unni. Dúi er tvítugur leikstjórnandi og mun væntanlega taka stöðu sam- herja síns úr U20 ára landsliðinu, Júlíusar Orra Ágústssonar, sem er farinn frá Þór til bandarísks há- skólaliðs. Dúi hefur leikið með meist- araflokki Stjörnunnar undanfarin fjögur ár en einnig spilað með Álfta- nesi í 1. deild. _ KA hefur fengið liðsauka frá Þór í fótboltanum en Jakob Snær Árnason er búinn að skipta um félag á Ak- ureyri. Jakob er 24 ára og hefur leik- ið 76 leiki með meistaraflokki Þórs í 1. deildinni frá 2015 og lék auk þess hálft tímabil með KF í 3. deild. _ Hinn 18 ára gamli Hákon Arnar Haraldsson fékk í gærkvöld sitt fyrsta tækifæri í mótsleik með danska knattspyrnufélaginu Köben- havn. Hákon kom inn á sem vara- maður á 76. mínútu í Hvíta-Rússlandi þegar FCK vann þar stórsigur, 5:0, á Torpedo Zhodino og tryggði sér sæti í þriðju umferð undankeppni Sam- bandsdeildar Evrópu. Hákon kom boltanum í mark Torpedo en þá var búið að flauta og Skagastrákurinn fékk gult spjald að launum. _ Motoki Sakai, landsliðs- markvörður Japana í handknattleik sem ver mark landsliðs þjóðar sinnar á Ólympíuleikunum þessa dagana, hefur samið við Íslandsmeistara Vals til eins árs. Hann er 26 ára og kemur frá Toyoda Gosei Blue Falcon í heima- landi sínu. Hann er annar landsliðs- maður Japans sem kemur til íslensks liðs fyrir næsta tímabil en línumað- urinn Kenya Kasahara mun leika með Herði á Ísafirði í 1. deildinni. Eitt ogannað Íþróttamaður frá San Marínó varð í gær sá fyrsti í sögu landsins til að vinna verðlaun á Ólympíuleikum er Alessandra Perilli hreppti brons í skotfimi kvenna í Tókýó. San Marínó er rúmlega 33 þús- und manna þjóð en frá landinu eru fimm keppendur í Tókýó. Fleiri hafa ekki keppt fyrir hönd þjóð- arinnar á einum og sömu leikunum síðan í Atlanta árið 1996 en þá mættu sjö til leiks. Liechtenstein var fram að þessu fámennasta þjóð til að vinna til verðlauna á Ólympíu- leikum. sport@mbl.is San Marínó nældi í verðlaun í Tókýó AFP Tilfinningar Alessandra Perilli er orðin þjóðhetja í San Marínó. CBS hélt því fram í gærkvöldi að Los Angeles Lakers væri á góðri leið með að næla í einn öflugasta leikmann deildarinnar, Russell Westbrook. Lakers er í viðræðum við Washington Wizards sem Westbrook lék með á síðasta tíma- bili. CBS telur að Lakers muni láta þrjá menn í staðinn: Kentavious Caldwell-Pope, Kyle Kuzma og Montrezl Harrell, auk valréttar í fyrstu umferð nýliðavalsins í ár. Westbrook er 32 ára og varð stigahæsti leikmaður NBA 2015 og 2017. sport@mbl.is Westbrook á leið til LA Lakers? AFP Stjarna Russell Westbrook gæti orðið samherji LeBrons James. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Würth-völlur: Fylkir – Valur.................... 17 Í KVÖLD! Ólympíuleikar Karlar, C-riðill: Slóvenía – Japan................................. 116:81 Spánn – Argentína ............................... 81:71 _ Slóvenía 4, Spánn 4, Argentína 2, Japan 2. Slóvenía og Spánn komin áfram. Konur, A-riðill: Kanada – Suður-Kórea ........................ 74:53 Spánn – Serbía...................................... 85:70 _ Spánn 4, Kanada 3, Serbía 3, Suður-- Kórea 2. (2 stig fyrir sigur, 1 fyrir tap) Vináttulandsleikur karla Eistland – Ísland .................................. 93:72 57+36!)49, Ólympíuleikar Konur, A-riðill: Svartfjallaland – Noregur.................. 23:35 - Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs. Holland – Angóla .................................. 37:28 Japan – Suður-Kórea ........................... 24:27 _ Noregur 6, Holland 6, Suður-Kórea 2, Japan 2, Svartfjallaland 2, Angóla 0. Konur, B-riðill: Spánn – Brasilía.................................... 27:23 Ungverjaland – Rússland.................... 31:38 Svíþjóð – Frakkland............................. 28:28 _ Svíþjóð 5, Spánn 4, Brasilía 3, Rússland 3, Frakkland 3, Ungverjaland 0. E(;R&:=/D Þórir Hergeirsson er kominn með norska kvennalandsliðið í hand- bolta í átta liða úrslitin á Ólympíu- leikunum í Tókýó þrátt fyrir að tvær umferðir séu enn eftir af riðla- keppninni. Noregur valtaði yfir Svartfjalla- land í seinni hálfleik í gær og vann 35:23 eftir að staðan var jöfn í hálf- leik, 13.13. Nora Mörk og Henny Reistad skoruðu sjö mörk hvor fyr- ir norska liðið. Noregur og Holland eru í sér- flokki í A-riðlinum og mætast í úr- slitaleik hans á morgun. Sigurliðið mætir fjórða liði B-riðils, en það verða öflugir mótherjar því öll sex liðin í þeim riðli eru firnasterk og harður slagur þeirra á milli um öll sætin. AFP Stórsigur Hin þrautreynda Stine Bredal Oftedal í norska landsliðinu sækir að marki Svartfellinga í viðureign þjóðanna í Tókýó í gær. Stórsigur og þegar komnar áfram Eistland vann Ísland örugglega í vináttulandsleik karla í körfuknatt- leik í Eistlandi í gærkvöldi 93:72. Eistar voru yfir 50:34 að loknum fyrri hálfleik. Leikurinn er þáttur í undirbúningi íslenska liðsins sem tekur þátt í forkeppni HM í ágúst og leikur þá gegn Svartfjallalandi og Danmörku. Ægir Þór Steinarsson var stiga- hæstur með 16 stig og gaf fjórar stoðsendingar. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skoraði 11 stig og bankar á dyrnar hjá A-landsliðinu eftir fjögurra ára dvöl í Bandaríkj- unum. Elvar Már Friðriksson skor- aði 10 stig, gaf fimm stoðsendingar og tók fjögur fráköst. Styrmir Snær Þrastarson tók ekki þátt í leiknum þar sem hann glímir við smávægileg meiðsli og þótti skynsamlegt að gefa honum hvíld en hann lék með U-20 ára landsliði Íslands fyrir skömmu. Liðin léku einnig á miðvikudag en þá fyrir luktum dyrum í óform- legum leik þar sem leikið var í 48 mínútur en ekki 40 eins og tíðkast í landsleikjum. Var það meðal ann- ars gert til að gefa leikmönnum meiri tíma til að sýna sig og snana. Margir af atvinnumönnum Ís- lands fóru ekki í ferðina og nægir þar að nefna Martin Hermannsson, Tryggva Snæ Hlinason og Jón Axel Guðmundsson og í því ljósi erfitt að leggja mat á úrslitin. Liðið sem Ísland tefldi fram verð- ur seint talið hávaxið á mælikvarða körfuboltalandsliða því leikmenn sem leika með íslenskum liðum voru einnig fjarverandi eins og Kristófer Acox og Haukur Helgi Pálsson. Þá gáfu leikmenn eins og Pavel Ermolinskij, Ragnar Nat- hanaelsson og Sigurður Þor- steinsson ekki kost á sér. Eistarnir reyndust mun sterkari Morgunblaðið/Árni Sæberg Drjúgur Elvar Már skoraði 10 stig og gaf fimm stoðsendingar í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.