Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Blaðsíða 19
’ Vændis- konum, trúð- um og fötluðum var gert að klæð- ast röndóttum fötum sem voru jafnvel kölluð „föt djöfulsins“. það er áberandi. Skilti birta oft rendur til að vekja athygli, Valli í Vallabókunum klæddist alltaf rönd- óttum fötum og ýmis fyrirtæki hafa nýtt sér rendur í merkjum sínum eins og IMB og Adidas. Þegar þú horfir á eitthvað röndótt er ekki skýrt hvor liturinn er í bakgrunni og hvor í forgrunni. Þetta getur haft ruglandi áhrif og er ein kenning þess hvers vegna sebrahestar eru röndóttir á lit; til þess að rugla rán- dýr í ríminu. Á miðöldum klæddist heiðarlegt fólk ekki röndum heldur aðeins fé- lagslega útskúfað fólk, einmitt vegna þess að rendur vöktu athygli og fólki fannst eitthvað óþægilegt við það röndótta. Vændiskonum, trúðum og fötluðum var gert að klæðast röndóttum fötum sem voru jafnvel kölluð „föt djöfulsins“. Þá þurftu handsamaðir glæpamenn að klæðast þeim. Rendur höfðu neikvæða merkingu og þau sem klæddust slík- um fötum höfðu farið yfir ákveðin mörk. Í gríni sínu var trúðum til dæmis leyft að fara yfir ákveðin mörk samfélagsins sem aðrir gerðu ekki, því klæddust þeir röndum. Á 12. öld komu fyrstu meðlimir kaþólsku Karmelreglunnar til Frakklands og þar sem siður þeirra var að klæðast röndum ollu þeir hálfgerðu uppþoti meðal íbúa. Var þeim að lokum bannað að bera slík klæði. Sjóliðar og hefðarfrúr Á 18. öld fengu rendur já- kvæðari merkingu þegar bæði ameríska og franska byltingin höfðu rendur á fánum sínum. Rendur stóðu enn fyrir þá sem voru öðruvísi en nú einnig á jákvæðan hátt. Stórt skref í að gera röndótt föt að tískufyrirbrigði var hins vegar tekið þegar Viktoría Bretlandsdrottning klæddi son sinn Albert í sjóliðabún- ing árið 1846. Sjóherinn hafði sett þverrendur á einkennisbúning sjó- liða, bæði svo hægt væri að koma auðveldlega auga á þá sem féllu fyr- ir borð og svo augljóst væri í hern- um hverjir væru undirmenn og hverjir ekki. Á þessum tíma höfðu hefðarmenn og -frúr farið að klæð- ast langröndóttum fötum til að sýna fram á yfirburðastöðu sína saman- borið við sótsvartan almúgann sem þurfti að láta sér þverrendurnar nægja. En vegna Alberts litla var stig- veldismunur þverranda og lang- randa gerður óskýr. Þá fóru rendur að tákna æsku og fjör sem almenn- ingur vildi bendla sig við. Á ákveðnum tímapunkti urðu rendur samnefnari fyrir hreinleika og varð því vinsælt að klæðast röndóttum náttfötum. Al Capone og uppreisnarseggirnir Á 20. öld hófu rendur innreið sína í tísku almennings fyrir alvöru. Rönd- ótt föt báru þó enn merki þess slæma og öðruvísi. Glæpamenn á borð við Al Capone tóku upp mjó- röndótt jakkaföt sem einkennisbún- ing sinn. Aðrir, t.d. listamenn, klæddust röndum til þess að vekja á sér athygli og sýna að þeir væru öðruvísi. Í kvikmyndum má sjá svipuð áhrif. Illmenni og aðrir sem hafa sið- ferðiskennd sem setja má spurning- armerki við klæðast oft og tíðum þverröndum og því þykkari sem þær eru því ýktari er karakterinn. Að sama skapi klæðast persónur í myndum sem beint er að ungu fólki oft þverröndum og þeir karakterar sem það gera eru oft eins konar upp- reisnarseggir. Gott dæmi um þetta má sjá í Juno, mynd um táningsstúlku sem verður ólétt eftir vin sinn. Stúlkan klæðist ýmsum röndóttum fötum í myndinni en hún lýsir sér sjálfri sem upp- reisnarsegg, er óhrædd við að láta skoðanir sínar í ljós, lætur sér fátt finnast um skoðanir annarra og hef- ur óhefðbundinn tónlistarsmekk. Hugsaðu þig því tvisvar um næst þegar röndótta flíkin er tekin úr fataskápnum. Hvaða skilaboð ertu að senda? Konur klæðast líka lang- röndóttum jakkafötum. Ljósmynd/Fox Searchlight Langröndóttar skyrtur eru vinsælar í dag. Elliot Page sést hér í hlutverki tánings- stúlkunnar Juno (t.h.) sem var mjög hrifin af röndóttum fötum, enda fylgdi hún ekki meginstraumi samfélagsins. 11.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N 2ja sæta sófi 118.993 kr. 169.990 kr. 3ja sæta sófi 132.993 kr. 189.990 kr. Hægindastóll 83.993 kr. 119.990 kr. SICILIA 2ja og 3ja sæta sófar og hæginda- stóll. MODENA Barstóll 19.794 kr. 32.990 kr. AFSLÁTTUR 40% ÚTSALA AFSLÁTTUR 30% ÚTSALA LOKAHELGI SUMARÚTSÖLUNNAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.