Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021
Fáanlegt í Krónunni, Fjarðarkaup, Heimkaup.is, Lyf & heilsu og öðrum apótekum.
Aloe Vera
vörurnar
frá dr.organic
græða, mýkja,
styrkja og
næra húðina.
Aloe Vera er afar græðandi
og ýtir undir endurnýjun
húðfrumna.
Aðeins náttúruleg innihaldsefni.
08.00 Uppskriftir fyrir svanga
birni
08.02 Laugardagsklúbburinn
08.05 Rita og krókódíll
08.10 Regnbogasögur
08.12 Ég er fiskur
08.15 Örstutt ævintýri
08.17 Veira vertu blessuð
08.18 Ást er ást
08.20 Hérinn og skjaldbakan
08.23 Lærum og leikum með
hljóðin
08.25 Blíða og Blær
08.45 Monsurnar
08.55 Víkingurinn Viggó
09.10 Latibær
09.15 Adda klóka
09.40 It’s Pony
10.00 K3
10.15 Lukku láki
10.35 Ævintýri Tinna
11.00 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
11.20 Are You Afraid of the
Dark?
12.05 Friends
12.25 Nágrannar
14.20 Impractical Jokers
14.45 Börn þjóða
15.15 First Dates
16.05 Flipping Exes
16.50 60 Minutes
17.35 Supernanny
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 GYM
19.15 Grand Designs: Aust-
ralia
20.10 Keeping Faith
21.05 War of the Worlds
21.55 Prodigal Son
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sjá Suðurland – Þáttur
3
20.30 Augu Hreindýrsins
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
21.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
20.00 Hjúkrun í heila öld (e)
20.30 Mannamál – Björn Ingi
Hrafnsson (e)
21.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
10.45 The Block
11.50 Bachelor in Paradise
13.15 The Bachelorette
15.15 The Biggest Loser
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 Ný sýn
18.05 Með Loga
19.05 The Block
20.10 Pabbi skoðar heiminn
20.45 Skandall
21.35 Yellowstone
22.25 Gangs of London
23.25 Love Island
00.20 Ray Donovan
01.10 Love Life
01.40 Seal Team
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Söngvamál.
09.00 Fréttir.
09.05 Svona er þetta.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.50 Augnablik um sumar.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Tengivagninn.
15.00 Helmingi dekkra en
nóttin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Ástarsögur.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Þar sem ennþá Öxará
rennur.
20.30 Djassþáttur.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Hið mikla Bé
07.43 Poppý kisukló
07.54 Kúlugúbbarnir
08.18 Klingjur
08.29 Kátur
08.31 Hvolpasveitin
08.54 Hrúturinn Hreinn
09.01 Úmísúmí
09.24 Robbi og Skrímsli
09.46 Eldhugar – Christine
Jorgensen – transkona
09.50 Sammi brunavörður
10.00 Skólahreysti
11.00 Unga Ísland
11.30 Martin Clunes: Eyjar
Ameríku
12.15 Af fingrum fram
13.05 Íslendingar
14.05 Árstíðirnar fjórar
15.35 Popp- og rokksaga Ís-
lands
16.35 Heimilislæknirinn
17.05 Heilabrot
17.35 Mömmusoð
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Vísindahorn Ævars
18.30 Vísindin allt í kring
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Sumarlandinn
20.20 Íslendingar
21.15 Victor Hugo, óvinur rík-
isins
22.10 Ágirnd
22.50 Ófærð
23.45 Nærmyndir – Helgidóm-
urinn
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40
vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista
Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm-
plötuframleiðenda.
„Ég ákvað að taka
lag sem ég einhvern
veginn skil ekki að
einhver hafi ekki
fattað upp á að gera
ábreiðu af áður. Ég
fór eitthvað að pæla
í því hvort að einhver
hefði gert þetta áður
en það virðist sem
enginn hafi gert það,
þannig að ég ákvað að taka upp ábreiðu af Sumarið er
tíminn,“ segir Íris Hólm í viðtali við Síðdegisþáttinn.
Rödd Írisar ættu hlustendur K100 að þekkja vel enda
syngur hún inn öll stefin á útvarpsstöðinni. Íris segir
lagið Sumarið er tíminn með Bubba og GCD vera svo
epískt að hún hafi ekki vitað hvort hún væri að gera
mistök með því að taka ábreiðu af því, en segist þó
sátt við útkomuna. Viðtalið við Írisi má nálgast í heild
sinni á K100.is.
Tók ábreiðu af
Sumarið er tíminn
Mexíkóborg. AFP. | Frida Kahlo er
einn þekktasti listamaður sem
Mexíkó hefur alið og með nýrri sýn-
ingu á að gæða verk hennar nýju lífi
með því að stækka þau upp og nota
tónlist hennar og dagbókarbrot.
Markmiðið er að sýningargestir geti
sökkt sér inn í hugarheim lista-
mannsins.
Á sýningunni, sem opnuð var í
Mexíkóborg á afmælisdegi hennar á
þriðjudag, eru tekin 26 verk sem
þykja einkennandi fyrir Kahlo, sem
er þekkt fyrir sláandi sjálfsmyndir,
oft fullar af sársauka og einangrun.
Mara de Anda, frænka Kahlo,
sagði að hugmyndin væri að kynna
málverk hennar, sem hefðu farið um
allan heim, en bæta við nánd og gera
þau aðgengilegri.
Framúrstefnuleg
og nútímaleg
„Ég er á því að Frida hafi verið mjög
framúrstefnuleg og nútímaleg svo að
þetta passar fullkomlega,“ sagði de
Anda þegar sýningin var opnuð.
„Hún var kona á undan sínum sam-
tíma.“
Sýningargestir geta sökkt sér inn
í hjarta og huga eins þekktasta lista-
manns 20. aldarinnar í 35 mínútur.
Kahlo lést árið 1954. Hún náði að-
eins 47 ára aldri og hefði í ár orðið
114 ára.
Notuð er stafræn tækni til að færa
myndir á borð við „Fridurnar tvær“
og „Brotna súlan“ nær gestum með
því að blanda saman myndskeiðum,
tónlist og gagnvirkum þáttum í safn-
inu Fronton Mexico, byggingu í art
deco-stíl í höfuðborg Mexíkó.
Á sýningunni er fjallað um erfiða
tíma í lífi Kahlo, sem fékk lömunar-
veiki þegar hún var barn aldri og óx
hægri fótur hennar ekki eðlilega.
Þegar Kahlo var 18 ára lenti hún í
slysi í strætisvagni og stakkst járn-
rör inn í kvið hennar. Hún fór í
margar kvalafullar aðgerðir vegna
slyssins í þeirri von að ná fyrri heilsu
og það sem eftir var ævinnar var
hún fyrir vikið iðulega rúmföst.
Fór að mála eftir slys
Kahlo hafði hugsað sér að læra
læknisfræði, en sneri sér að mál-
verkinu þegar hún var að jafna sig
eftir slysið og notaði spegil til að
gera sjálfsmyndir. Móðir hennar lét
smíða handa henni sérstakar trönur
svo að hún gæti málað liggjandi í
rúminu. Kahlo giftist mexíkanska
listamanninum Diego Rivera tvisvar
og var náinn vinur Leons Trotskís,
sem var einn af forsprökkum rúss-
nesku byltingarinnar. Rivera var
einn þekktasti listamaður Mexíkó á
sínum tíma, en Kahlo er mun þekkt-
ari á okkar tímum.
Kahlo var sjálfmenntaður lista-
maður. Hún sótti mikið í mexí-
kanska alþýðulist og hafa merkimið-
arnir súrrealismi og töfraraunsæi
verið notaðir til að lýsa verkum
hennar.
Hún öðlaðist heimsfrægð á sínum
tíma. Á áttunda áratug liðinnar ald-
ar var hún uppgötvuð að nýju og
undir aldamót hafði henni verið
markaður sess sem einn helsti lista-
maður liðinnar aldar. Talið er að hún
hafi málað á milli 150 og 200 verk á
ævinni.
„Hér gefst fólki sem líkar ekki að
fara á listasýningar þar sem allt er
kyrrstæðara kostur á að kynna sér
hlutina með öðrum hætti,“ sagði
Frida Hentschel Romeo, önnur
frænka listamannsins. „Þannig að ég
held að nýjar kynslóðir eigi eftir að
elska þetta.“
Gestir virða fyrir sér
verk á opnun sýning-
arinnar um Fridu Kahlo.
AFP
GAGNVIRK SÝNING Á VERKUM FRIDU KAHLO
Kona á undan
sínum samtíma
Verkum Kahlo er varpað á stór tjöld og skjái á meðan leikin er þjóðleg mexí-
könsk tónlist. Á sýningunni eiga gestir að geta sökkt sér í líf hennar og list.