Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021 T æplega verður mikilla átaka að vænta á vinnumarkaði í haust þegar endurskoðunarákvæði lífskjarasamninganna svonefndu virkjast. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur ekki mikla stemningu fyrir því í ljósi veirunnar og efnahagsafleiðinga hennar. Síðustu útihátíðir sumarsins fóru fram um liðna helgi, en vegna nýrra samkomutakmarkana þurfti að af- lýsa öllu hátíðahaldi um versl- unarmannahelgina. Þar er áfallið án vafa mest í Vestmannaeyjum, en þar íhuga eyjaskeggjar að sækja bætur til ríkisins vegna þeirra bú- sifja. Ein þeirra fjöldasamkoma, sem kunna að vera í uppnámi, er lands- fundur Sjálfstæðisflokksins, sem á að setja hinn 27. ágúst, en kann að þurfa að fresta verði samkomutak- mörkunum ekki aflétt. Fundinn sækja að jafnaði um 1.500 manns. Um 70% smita voru meðal bólu- settra, sem tæplega kom á óvart í ljósi þess að um 85% 16 ára og eldri Íslendinga hafa verið bólusett. Eins var eitthvað um endursýkingar, en í nær öllum tilvikum voru einkenni væg ef nokkur. Farsóttarhúsin tvö fylltust og því var hinu þriðja bætt við þegar 130 voru komnir í einangrun og fór enn fjölgandi. Gosið í Geldingadölum færðist tals- vert í aukana í vikunni. Fjóla Hrund Björnsdóttir hafði bet- ur í oddvitakosningu Miðflokksins í Reykjavík, en þar laut þingmaðurinn Þorsteinn Sæmundsson í lægra haldi. . . . Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi við komu til landsins, en nú þurfa allir komufarþegar, bólusettir eða með staðfesta fyrri sýkingu, að sýna inn- an við þriggja daga gamalt neikvætt Covid-próf áður en þeir fá að ganga um borð í flugvél ytra. Talsvert álag var í sjúkraflutn- ingum vegna farsóttarinnar, en þeir eru nú um 25 á dag að meðaltali. Af 609 manns, sem voru undir eft- irliti Covid-deildar á mánudag voru 593 með væg eða engin einkenni. Lík fundust á fjallstindi K2, en kennsl voru borin á samferðamenn Johns Snorra Sigurjónssonar, sem týndust á fjallinu í febrúarbyrjun. Í Vestmannaeyjum er áformað að boða til Þjóðhátíðar síðsumars leyfi sóttvarnareglur það. Eftir sem áður verður brekkusöng streymt á netinu nú um helgina. Sögulegar sættir tókust innan Við- reisnar, þegar Benedikt Jóhann- esson, stofnandi og fyrrverandi for- maður flokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, núverandi formaður flokksins, urðu ásátt um að Benedikt mætti með fullri reisn stofna málfundafélagið Endurreisn innan vébanda flokksins. Jafnframt náði Benedikt því í gegn að í framtíð- inni yrði leitast við að halda prófkjör í flokknum. Alþýðusamband Íslands metur nú stöðuna í kjaramálum fyrir haustið og mun kappkosta að viðhalda kaup- mætti umbjóðenda sinna. Hins vegar hefur það ekki áhyggjur af lang- tímaatvinnuleysi. Lottóspilari gaf sig fram til þess að ná í 55 milljóna króna vinning, sem kom á miða hans fyrir einum og hálf- um mánuði. Hann hafði ekki gáð að vinningnum fyrir nú og sagði raunar hundaheppni að hann hefði ekki glat- að miðanum. . . . Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að atvinnustig í landinu þurfi að vera í brennidepli í komandi kjaraviðræðum. Aukið at- vinnuleysi væri óásættanlegt. Sömu- leiðis þurfi að ræða efndir stjórn- valda á fyrirheitum þeirra í tengslum við samningana. Mikill erill hefur verið í Leifsstöð, bæði vegna farþega á leið úr og til landsins. Þrátt fyrir að þar ræði engan veginn um sama fjölda og fyr- ir plágu, þá er umstangið vegna sótt- varna mun meira. Blíðviðri var á höfuðborgarsvæðinu, en sumarið hafði látið bíða lengur eftir sér þar en í öðrum lands- hlutum. Þrátt fyrir að allar útihátíðir væru úr kortunum fyrirhuguðu margir ferðir úr bænum um helgina, í sumarbústaði og tjaldútilegur. Að- sókn á tjaldsvæði fór þó rólega af stað. 123 reyndust smitaðir í skimunum þriðjudagsins en aldrei hafa fleiri greinst á einum degi frá upphafi far- aldursins hér á landi. Sem fyrr voru þó sárafáir með mikil sjúkdóms- einkenni. Samkomulag tókst við Breta um að fólki á aldrinum 18-30 sé heimilt að búa og starfa í Bretlandi í allt að tvö ár án sérstaks leyfis. Hið sama á við um unga Breta, sem koma vilja hing- að til lands. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, hefur fengið stjórnarmynd- unarumboð flokksins og fékk hún sérstakt erindisbréf þar að lútandi. Alþingiskosningar eiga að fara fram 25. september. . . . Faraldurinn hélt áfram að breiðast út í smitum talið, en eftir sem áður voru langflestir hinna smituðu með lítil eða engin einkenni. Landspítal- inn kvartaði undan álagi, því þótt lít- ið væri um innlagnir var mikið um að vera á göngudeild. Tveir heimilismenn á elliheimilinu Grund smituðust af starfsmanni, en þeir voru báðir bólusettir. Það er víðar órói en á Reykjanes- skaga, þar sem enn flæðir hraun í Meradali með aukinni eldvirkni. Bárðarbunga í norðvestanverðum Vatnajökli þenst út og mældust snarpir jarðskjálftar. Sömuleiðis hefur aukin skjálftavirkni verið í Kötlu. Að sögn Ölgerðarinnar urðu nýjar samkomutakmarkanir til þess að breyta neyslumynstri í aðdraganda verslunarmannahelgar. Sala til bara og Vestmannaeyja sé ljóslega minni, en hins vegar beri meira á beinum innkaupum neytenda á veigum. Matvælaframleiðendur höfðu svip- aða sögu að segja. Minna gengi t.d. út af hamborgurum en meira af lær- um, sem endurspegli öðruvísi helg- ardvöl en fyrirhuguð var. Mikið sé grillað þessa dagana í blíðunni, enda uppsöfnuð grillþörf á höfuðborgar- svæðinu. Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti á lista Sjálfstæðismanna í Suður- kjördæmi, telur að átakalínan í kom- andi kosningum liggi um heilbrigð- ismálin. Hún segir flokk sinn eiga að gera kröfu um heilbrigðisráðu- neytið í ríkisstjórnarsamstarfi. Á daginn kom að Ívar J. Arndal, for- stjóri ÁTVR, aflaði sér ekki lögfræðiálits áður en hann kærði netverslun með vín til lögreglu og skatts, en síðari kæran reyndist vera tilhæfulaus. Hefur Ívar verið kærður til lögreglu fyrir rangar sakargiftir. . . . Kvartað var undan því að heilbrigðu og einkennalausu fólki væri haldið lengur í einangrun en reglugerð heimili. Ferðaþjónustan kvartaði undan því að krafa um PCR-próf fyrir komu til landsins fæli ferðamenn frá. Á móti kemur að þeim, sem ekki tíma að taka það, er sennilega ekki laust um fé eftir til komuna til landsins. Umsjónarmaður farsóttarhúsa kvartaði undan alvarlegu ástandi í þeim, þau væru stútfull af fólki og fyrirsjáanlegt að meira húsrými vantaði. Eldfjallafræðingurinn Þorvaldur Þórðarson segir að gosið í Geldinga- dölum sé „bara í góðum gír“ og að það geti vel staðið í nokkur ár. Ísland varð gulmerkt á sóttvarnar- korti Evrópusambandsins, sem kann að hafa einhver áhrif á ferða- mannastraum þaðan. Bandaríkja- menn, sem hafa verið duglegastir við að ferðast hingað að undanförnu, kæra sig hins vegar kollótta um þá litamerkingu. Í Bretlandi er Ísland enn á grænum lista. Farið var að bólusetja barnshafandi konur með bóluefni frá Pfizer og Moderna. Allt er klárt fyrir þjóðhátíð í Eyjum, en í Herjólfsdal fær enginn að koma nema Magnús Kjartan Eyjólfsson, sem flytur einsöng í Brekkunni þetta árið. Eyjamenn hafa hins vegar verið að tjalda í garðinum, hver hjá sér, og viðbúið að það verði eitthvað vakað í bænum. Þjóðhátíð í blíðu og plágu Peyjar og pysjur hjóla í Herjólfsdal til þess að virða fyrir sér Þjóðhátíðina, sem ekki verður haldin um verslunarmanna- helgina eins og vant er. Hvað sem síðar verður. Að þessu sinni verður brekkusöngurinn einsöngur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar 25.7.-30.7. Andrés Magnússon andres@mbl.is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.