Fiskifréttir - 11.11.2005, Qupperneq 1
iem^mbbiíb
42. tbl. 23. árg. föstudagur 11. nóvember 2005
Upplýsingakerfi fyrir
sjávarútvegsfyrirtæki
Microsoft
GOLD CERTIFIED
Partner
maritech
sími: 545 3200 | sala@maritech.is
Sighvatur Bjarna-
son og félagar:
Keyptu
skelfisk-
fyrirtæki í
Danmörku
Islendingar hafa fest kaup á
skelfiskfyrirtækinu Cimbric á
Norður-Jótlandi. Um er að ræða
fyrirtæki sem veltir um 70 millj-
ónum dönskum krónum á ári og
þar starfa um 20 manns.
Kaupendur að Cimbric eru Sig-
hvatur Bjamason, Halldór Amarson
og Gústaf Daníelsson. Cimbric viim-
ur kaldsjávarrækju, heitsjávarrækju,
krabbahala og surimi sem seld eru í
stórmörkuðum sem fersk vara.
Markaðir fyrir afurðimar em aðal-
lega í Danmörku og Italíu en einnig
á Spáni og Bretlandi. Sighvatur er
ennfremur einn af eigendum salt-
fiskverkunarinnar Jeka Fish í Dan-
mörku. Þar starfa um 75 manns, árs-
veltan er í kringum tvo milljarða ís-
lenskra króna og þeir framleiða mn
5.500 tonn af saltfiskafurðum á ári.
Sjá nánar bls. 6-7.
Vísbendingar
um að trollið
trufli loðnuna
Vísbendingar eru um það að
flottrollsveiðar á loðnu fyrir
austan land hafi truflað göngur
loðnunnar upp að landinu á síð-
ustu vertíð. Þetta kom fram hjá
Jóhanni Sigurjónssyni, forstjóra
Hafrannsóknastofnunar, í erindi
sem hann hélt á aðalfundi LIÚ
fyrir skömmu.
Jóhann sagði að ekkert yrði þó
fullyrt að svo stöddu um staðhæf-
ingar þess efnis að flotvörpuveið-
arnar yllu því að loðnan gengi ekki
vestur fyrir land. í varúðarskyni
væri hins vegar skynsamlegt að
halda togveiðum á loðnu utan við
landgrunnið og heimila ennfremur
ekki togveiðar að sumri og hausti.
Þá væri eflaust skynsamlegt að
leyfa ekki togveiðar sunnan Dala-
tanga eða Gerpis þar sem hrygn-
ingartorfur loðnu eru að þéttast.
Sjá nánar bls. 8-9.
Þorskur á línu. (Mynd/Fiskifréttir: Guðlaugur Albertsson).
Þorskstofninn:
Afiaregiu ekki breytt
- engin yfirvofandi vá, segir ráðherrann
„Það er út af fyrir sig ekki
nýtt að fiskifræðingar telji að
þorskstofninn sé undir of miklu
veiðiálagi. A sínum tíma var
tekin ákvörðun um að fylgja
svokallaðri aflareglu. Markmið
hennar hafa ekki náðst af ýms-
um ástæðum, ekki bara vegna
aukinna veiða smábáta eins og
ýmsir hafa látið í veðri vaka. Ég
tel enga ástæðu til að hlaupa til
núna og lækka aflaregluna í
þorski þegar við erum að ná
þeim markmiðum sem lagt var
af stað með í upphafi.“
Þetta sagði Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra í samtali
við Fiskifréttir en á málþingi um
nýliðun og framleiðslugetu þorsk-
stofnsins nú í vikunni lýstu vísinda-
menn áhyggjum sínum af því að
sóknin í þorskstofninn væri of stíf.
Þeir vilja lækka aflaregluna sem nú
miðast við að tekin séu 25% af
veiðistofninum ár hvert. Ráðherr-
ann minnti á að ástand þorskstofns-
ins réðist ekki bara af veiðiálaginu
heldur einnig af öðrum þáttum svo
sem aðgengi þorsks að loðnu. Hann
minnti að með minnkun möskva-
stærðar í netum hefðu verið gerðar
ráðstafanir til þess að draga úr sókn
í stærstu hrygnurnar sem gæfu
bestu hrognin. Einnig væri
hrygningarstoppi nú framfylgt
með einbeittari hætti en áður.
,,Mér finnst umræðan hafa
verið alltof hasarkennd. Þetta
málþing sýndi að staða íslenska
þorskstofnsins í alþjóðlegum
samanburði er giska góð og það
er ekkert hættustand eða yfirvof-
andi vá fyrir dyrum, þótt við
séum ekki að ná þeim árangri
sem við ætluðum," sagði sjávar-
útvegsráðherra.
Sjá nánar bls. 4.
* i' «
■ wilSVklrr
■ --tr
Heildarlausn
á samhæfðum vélbúnaði
Samstarfsaðili Rolls-Royce
= HÉÐINN =
Stórás 6 • IS-210 Garðabæ
Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
Hörpudiskur í
Breiðafirði:
Engin ný
dauðsföll
vegna
sýkingar
— samkvæmt rann-
sóknum á vegum Sig-
urðar Agústssonar enf.
Rannsóknir Sigurðar Agústs-
sonar ehf. í Stykkishólmi á hörpu-
diski í Breiðafirði benda til þess að
dauðsföll hjá skelinni af völdum
sýkingar, sem hrjáð hefur stofn-
inn, séu ekki lengur fyrir hendi, að
því er Sigurður Agústsson, fram-
kvæmdastjóri hjá fyrirtækinu,
sagði í samtali við Fiskifréttir.
Veiðar á hörpudiski í Breiðafirði
hafa legið niðri eftir að stofninn
hrundi vegna sýkingar í stærri skel-
inni en ungskelin virðist hafa
sloppið. Sigurður Ágústsson ehf.
hefur staðið fyrir rannsóknum á
skelinni á þessu ári á eigin kostnað
og fengið til liðs við sig kanadíska
aðila. Sett voru niður allmörg búr í
Breiðafirði fyrir sex mánuðum með
nokkrum þúsundum skelja í öllum
stæðarflokkum. Sigurður sagði að
fyrstu niðurstöður bentu til þess að
skelin hefði ekki orðið fyrir neinum
skakkaföllum, sama af hvaða aldri
eða stærð hún er. Þetta væru sterk-
ar vísbendingar uin að sýkingin
væri hætt að herja á stofninn.
„Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Við
bíðum nú eftir niðurstöðum úr mæl-
ingurn Hafró á hörpudiski í Breiða-
firði sem fram fóru í haust. Okkur
vantar upplýsingar um stærð stofns-
ins og hvenær líkur séu á því að unnt
verði að hefja veiðar á ný,“ sagði
Sigurður. Fram kom hjá Sigurði að
þeir hefðu einnig sett niður 1.200
lirfusafnara í innanverðum Breiða-
firði til að kanna hvar lirfuregnið er
mest. I framtíðinni mætti ennfremur
nota lirfur til að rækta upp veiði-
svæði hörpudisks. „Við erum að
kynna okkur aðferðir sem notast er
við í Kanada. Við erum vongóð um
að hægt verði að hjálpa stofninum
til að ná fyrri dreifingu með því að
leggja náttúrunni lið við að byggja
stofninn upp,“ sagði Sigurður.