Fiskifréttir - 11.11.2005, Qupperneq 3
FISKIFRETTIR 11. nóvember 2005
3
1 INNSYN Texti: GE
Samkomulag náðist loks í
kolmunnadeilunni í síðustu
viku eftir áralangt samninga-
þóf strandríkjanna sem gera
tilkall til veiðikvóta úr þessum
stofni. Eins og fram kom í síð-
ustu Fiskifréttum komu 30,5%
í hlut Evrópusambandsins,
rúm 26% í hlut Færeyja, tæp
26% í hlut Noregs og 17,6% í
hlut Islands. En hvernig eru
þessar prósentutölur fundnar?
Fiskifréttir leituðu svara við
því hjá Stefáni Asgrímssyni
skrifstofustjóra alþjóðaskrif-
stofu sjávarútvegsráðuneytsins
sem leiddi þessar viðræður fyr-
ir Islands hönd.
„Viðræður um kvótaskiptingu
kolmunnans hafa staðið í sjö ár.
Það gefur því auga leið að ríkin
sem hlut eiga að máli hafa ekki
litið sömu augum á hlutina
enda ekki taldir til strandríkja
í þessu sambandi. Stefán
benti á að Rússar hefðu tekið
stóran hluta af kolmunnafla
sínum í lögsögum annarra
ríkja, svo sem Færeyja. Við
blasti að þeir myndu eftirleið-
is veiða verulegan hluta af
færeyska kvótanum í skiptum
fyrir veiðiheimildir í Barents-
hafi Færeyingum til handa.
Gengið yrði frá stöðu Rússa í
þessu efni á ársfundi NA-Atl-
antshafsfiskveiðinefndarinn-
ar nú í þessum mánuði.
Rætt er um að hámarksafli
kolmunna á næsta ári verði
tvær milljónir tonna en síðan
verði kvótinn minnkaður um
100 þús. tonn á ári á næstu
arútvegi. Færeyingar höfðu (Mynd/Fiskifréttir: Hlynur Ársælsson). árum.
og hafa sett fram ólíkar for-
sendur fyrir kröfum sínum.
Evrópusambandið hefur til
dæmis lagt áherslu á afla-
reynslu og þá eingöngu á ár-
unum fram að seinni hluta
síðasta áratugar áður en
veiðar fóru að aukast. Sú
forsenda hefði ekki gefið Is-
lendingum neinn kvóta að
heitið geti,“ segir Stefán.
„Við Islendingar horfðum
hins vegar fyrst og fremst til
lífræðilegrar dreifingar
stofnsins, það er að segja
viðveru hans á mismunandi
hafsvæðum og í mismunandi
lögsögum. Einnig lögðum
við áherslu á það atriði hver-
su háðar þjóðirnar væru sjáv- Um borð í Hólmabors SU á kolmunnaveiðum í færeysku löesöeunni. I baksýn er rússneskur togari að veiðum.
Kolmunnasamningurinn;
Hverjar eru forsendur
kvótaskiptingarinnar?
Kolmunnaaflinn 2004 eftir ríkjum og veiðisvæðum
Alþjóðl. lögsaga Lögsaga ESB Lögsaga Færeyja Lögsaga íslands Lögsaga Noregs Lögsaga Jan Mayen Lögsaga Svalbarða Samtals % af heild
ESB 41.651 298.514 9.215 0 11.058 0 103 360.541 15.0%
Færeyjar 48.877 48.385 144.623 74.102 6.332 0 0 322.319 13,4%
ÍSLAND 6.000 0 102.000 314.000 0 0 0 422.000 17,5%
Noregur 457.090 120.652 35.437 0 341.035 2.540 921 957.675 39,7%
Rússland 177.287 0 138.547 0 12.304 0 18.624 346.762 14,4%
Samtals 730.905 467.551 429.822 388.102 370.729 2.540 19.648 2.409.297 100%
% af heild 30,3% 19,4% 17,8% 16,1% 15,4% 0,1% 0,8%
svipuð sjónarmið og íslendingar.
Segja má að niðurstaðan byggist
að einhveiju leyti á öllum þeim
viðmiðum sem sett voru fram.“
Hlutur íslands sá sami
og afli okkar í fyrra
Eins og sést á meðfylgjandi
töflu um kolmunnaveiðina árið
2004 veiddu íslendingar 17,5%
heildaraflans, sem er svipað og
okkur hefur nú verið úthlutað í
kvóta samkvæmt samningnum. I
lögsögu íslands veiddust alls rúm
16% af heildarkolunnaaflanum en
þar voru íslensk og færeysk skip að
verki. Rétt er að minna á að hér að-
eins verið að skoða eitt ár en aflinn
hefur sveiflast nokkuð milli ára og
lögsagna eins og gefur að skilja.
Rússar eru ekki aðilar að sam-
komulaginu um kolmunnann
[ Spilverk
ALLWEILER
| OENISON Hydraulics
Ogs-hydro
www.spilverk.is
Skemmuvegur 8
200 - Kópavogur
Sími: 544-5600
Fax: 544-5301
spilverk@spilverk.is
lfið óskum útgerð og áhöfn til
hamingju með breytingarnar
!i 1
5 t Um borð ér.
SJÖFW
SJOFN EA-142
Caterpillar 3512B aðalvél
og
Caterpillar C9 rafstöð
0
HEKLA
®
Klettagarðar 8-1
104 Réykjavík
Sími:590 5100
Fax: 590 5101
Netfang: cat@hekla.is
c
o
2