Fiskifréttir - 11.11.2005, Síða 7
6
FISKIFRETTIR 11. nóvember 2005
FISKIFRETTIR 11. nóvember 2005
7
ÍSLENDINGAR ERLENDIS
Texti: KS
Sighvatur Bjarnason var mikið í sviðsljósinu í íslenskum sjávar-
útvegi á tíunda áratugnum þegar hann var framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og stjórnarformaður SIF.
Hljótt hefur verið um Sighvat síóustu árin en hann hefur þó ekki
sagt skilið við sjávarútveginn. Hann er stjórnarformaður og einn af
eigendum Fisco ehf., fyrirtækis sem annast alþjóðleg viðskipti með
sjávarafurðir, og hann er einnig einn af eigendum í danskri saltfisk-
verkun sem framleiðir um 5.500 tonn af afurðum á ári. Fyrir skömmu
keypti Sighvatur svo í félagi við aðra skelfiskfyrirtæki í Danmörku.
Saltfiskfyrirtækið sem hér um
ræðir heitir Jeka Fish A/S og er í
bænum Lemvig á Vestur-Jót-
landi. „Jeka Fish er gróið fyrir-
tæki og hafði starfað í 18 ár þeg-
ar við keyptum það árið 2002.
Tildrög kaupanna voru þau að ég
vann hjá American Seafood um
nokkurra ára skeið og Jeka Fish
var í viðskiptum við okkur. Eg
þekkti eigandann nokkuð vel.
Hann kom til mín og bauð mér að
kaupa fyrirtækið og ég sló til
ásamt mági mínum Halldóri Arn-
arsyni,“ sagði Sighvatur í samtali
við Fiskifréttir er hann var spurð-
ur um starfsemina í Danmörku.
Halldór hefur mikla reynslu af
sjávarútvegi á Islandi og í Noregi.
Veltan í kringum
tvo milljarða
Stofnandi Jeka Fish á enn hlut
í fyrirtækinu. Halldór annast dag-
legan rekstur þess en Sighvatur er
stjórnarformaður. Hjá fyrirtæk-
inu starfa um 75 manns. Arsvelt-
an er í kringum tvo milljarða ís-
lenskra króna og þeir framleiða
um 5.500 tonn af saltfiskafurðum
eins og getið er hér að framan,
aðallega saltflök en einnig eitt-
hvað að léttsöltuðum lausfrystum
flökum. í vinnslunni er eingöngu
notaður sjófrystur, hausaður línu-
fiskur úr Barentshafi og Kyrra-
hafi, sem er þíddur upp, flakaður
og saltaður. Sighvatur sagði að
dregið hefði úr framleiðslu á létt-
söltuðum, frystum flökum. „I
þeirri framleiðslu erum við að
keppa við tvífrystan fisk frá Kína
og við getum ekki keppt við Kín-
verja frekar en aðrir framleiðend-
ur í Evrópu.“
Hrein verksmiðju-
framleiðsla
Sighvatur sagði að ágætur
rekstrargrundvöllur væri fyrir
fiskvinnslu í Danmörku. Meiri
stöðugleiki ríkti þar í gengismál-
um en hér á landi og þar væri ein-
nig stöðugt vinnuafl. „Þar eins og
hér heima er hátt hlutfall starfs-
manna af erlendu bergi brotið,
eða um þriðjungur. Þetta er mjög
gott starfsfólk. Að vísu eru laun
há í Danmörku en þó innan hæfi-
legs ramma. Saltfiskvinnslan var
þokkalega tæknivædd þegar við
keyptum hana en við ákváðum þó
að tæknivæða hana enn frekar til
að auka hagkvæmni og sjálf-
virkni. Við höfum íjárfest tölu-
vert í tækjum frá Marel og í öðr-
um búnaði. I Danmörku er auð-
velt að fjármagna fyrirtæki sem
hefur gott orðspor og vextir af
lánum eru þar lágir. Þá má geta
þess að þetta er ekki hefðbundið
fiskvinnsluhús að íslenskum
hætti þar sem hráefnisöflun er
mjög breytileg. Þetta er hrein verk-
smiðjuframleiðsla. Við erum að
vinna nánast sama magn á hverjum
degi ellefu mánuði á ári“
Framleiða aðeins
upp í pantanir
— Vœri hœgt að hafa þessa
vinnslu á Islandi?
„Nei, það væri ekki hægt þótt
það væri ekki út af öðru en tolla-
málum á kyrrahafsþorskinum. Þá
byggist þessi framleiðsla á há-
marksnýtingu. A Islandi er salt-
fiskurinn til dæmis settur í kæli og
síðan er hann viku í gámum á leið-
inni frá Islandi til Evrópu. Við
þetta tapast einhver prósent i nýt-
ingu. Við framleiðum aðeins upp í
ákveðnar pantanir og fiskinum er
ekið beint til markaðslandanna.
Við erum nánast aldrei með salt-
flök á lager hjá okkur.“
Hátt verð á hráefni
Jeka Fish þarf um átta til níu
þúsund tonn af hausuðum fiski á
ári til vinnslunnar. Sighvatur sagði
að mikil samkeppni væri um hrá-
efnið einkum við Japani sem kaupa
mikið af kyrrahafsþorski. Jeka Fish
kaupir mikið magn af hráefni inn í
einu, allt að fimm þúsund tonn,
sem geymt er í frystigeymslum
þangað til fiskurinn er tekinn til
vinnslu. Þetta helgast af því að best
er að kaupa hráefnið á ákveðnum
tíma árs þegar fiskurinn hentar til
vinnslunnar. Til dæmis er ekki gott
að nota fisk sem veiðist á sumrin
til framleiðslu á saltflökum. Þar
sem baráttan um hráefnið er nokk-
uð hörð er verðið tiltölulega hátt,
og hefur hækkað mikið á árinu.
Stórir á Ítalíu í
saltflökum
Saltfiskflök frá Jeka Fish eru
seld til Italíu, Spánar og Grikk-
lands. Sighvatur var spurður hvort
það hefði ekki áhrif á markaðinn
að hér væri um uppþíddan fisk að
ræða. Hann sagði að markaðurinn
gerði sér grein fyrir eðli fram-
leiðslunnar. En þótt uppþíddur
fiskur væri yfirleitt ekki eins góð-
ur og fiskur sem unninn er ferskur
væru saltflök frá Jeka í háum
gæðaflokki og þeir hefðu ágæta
markaðshlutdeild. Þeir væru til
dæmis stærstir á Italíumarkaði í
saltflökum.
— Hafið þið áform uppi um að
auka vinnsluna?
„Frá því við keyptum fyrirtækið
höfum við aukið framleiðsluna um
50% í magni en veltan hefur ekki
aukist nema um 30% því afurða-
verð hefur lækkað umtalsvert.
Engu að síður hefur afkoman verið
ásættanleg. Ef til vill væri hægt að
auka framleiðslu á saltflökum eitt-
Saltflök flokkuð hjá Jeka Fish.
Séð yfir verksmiðjusalinn hjá Jeka Fish.
Verksmiðjuhús Jeka Fish í Lemvig í Danmörku.
Skelfiskverksmiðjan Cimbric í Vogn sem Sighvatur og félagar festu nýlega kaup á.
Fyrírtæki í eigu íslendinga:
Framleiðir um 5.500 torrn
af saltfiski á ári í Danmörku
rætt við Sighvat Bjarnason stjórnarformann Fisco ehf. og einn af eigendum
saltfiskvinnslunnar Jeka Fish og skeifiskfyrirtækisins Cimbric í Danmörku
hvað meir en gert hefur verið en
það eru takmörk fyrir því hvað
markaðarinn getur tekið við miklu
magni“
Keyptu skelfiskfyrirtæki
Nýlega festi Sighvatur í félagi
við aðra kaup á skelfiskfyrirtækinu
Cimbric í bænum Vogn á Norður-
Jótlandi. Kaupendur að fyrirtækinu
með Sighvati eru Halldór Arnarson
og Gústaf Daníelsson sem verður
framkvæmdastjóri Cimbric. Sig-
hvatur sagði að hér væri um fyrir-
tæki að ræða sem hefði nokkra
vaxtarmöguleika. Cimbric vinnur
skelfisk í legi, kaldsjávarrækju,
heitsjávarrækju, krabbahala sem og
surimi, sem eru sett í plastglös og
seld í stórmörkuðum sem fersk vara
með lítið geymsluþol. Arsvelta
Cimbric er um 70 milljónir króna
danskar og þar starfa um 22 manns.
Kaldsjávarrækju fá þeir frá Kanada
og vinna úr um 1.200 tonnum á ári
en heitsjávarrækjan og annað hrá-
efni kemur frá ýmsum suðlægum
löndum. „Við
mátum það svo
eins og ég hef
nefnt að vaxtar-
möguleikar Jeka
væru takmarkað-
ir og þess vegna
leituðum við að
öðru fyrirtæki í
annarri grein.
Fyrirtækin geta
þá vegið hvort
annað upp og við
getum að hluta til
nýtt sömu dreifi-
leiðir á sömu
markaði,“ sagði
Sighvatur. Mark-
aðir fyrir afurð-
irnar eru aðal-
lega í Danmörku
og Italíu en einn-
ig á Spáni og
Bretlandi.
Sighvatur Bjarnason. (Mynd: Arnaldur Halldórsson).
Alþjóðleg viðskipti með
frystan fisk
Fisco ehf., er 16 ára gamalt fyr-
irtæki sem stundar alþjóðleg við-
skipti með frystan fisk, bæði með
fisk frá íslandi og fisk annars stað-
ar frá. Hjá Fisco og dótturfyrir-
tækjunum, Menju og Sirius, starfa
átta manns hér á landi. Menja ann-
ast útflutning á ferskum eldisfiski
frá íslandi, aðallega bleikju en ein-
nig laxi. Þá hóf fyrirtækið nýlega
útflutning á ferskum bolfiskafurð-
um, t.d. flökum og flakahlutum.
Sirius annast útflutning á saltfiski
frá Islandi. Sighvatur sagði að um
þriðjungur af sölu Fisco væri fisk-
ur frá Islandi. Undanfarin ár hefúr
Fisco látið framleiða fyrir sig
fiskafurðir í Kína en einnig selja
þeir fiskafurðir frá Eystrasalts-
löndunum, Suður-Ameríku og
fleiri löndum. Reiknað er með því
að velta Fisco verði um 3,5 millj-
arðar króna í ár, þar af um einn
milljarður vegna dótturfyrirtækja.
Gott að eiga viðskipti
við Kínverja
Sighvatur sagði að gott væri að
eiga viðskipti við Kínverja. Þeir
væru traustir og heiðarlegir og stæðu
við sína samninga. Vinnsla á tví-
frystum fiski í Kína byggist sem
kunnugt er á lágum launum, góðri
nýtingu hráeínis og lágum flutnings-
kostnaði. Á þeim 6 árum sem
Fisco hefur látið vinna fisk fyrir
sig í Kína hefúr umhverfið breytst.
Opinber gjöld hafa hækkað og
sama er að segja um launin. Ennþá
er þó hagkvæmt að láta vinna fisk-
irm i Kína en ýmis utanaðkomandi
áhrif geta þó breytt því með til-
tölulega skömmum fyrirvara.
Auðveldara að hefja
rekstur erlendis
— Klæjar þig ekki í fingurna
að koma aftur inn í íslenskan
sjávarútveg við veiðar og
vinnslu?
„Nei, áhugasvið mitt hefur
breyst. Enda er það nánast óger-
legt fyrir nýja aðila að komast inn
í sjávarútveg á Islandi vegna þess
hve fjárfestingin er gríðarleg. Það
er auðveldara að kaupa sig inn í
sjávarútvegsfyrirtæki erlendis.“
— Hvernig horfir íslenskur
sjávarútvegur við þér í dag mið-
að við þann tíma sem þú stóðst í
slagnum?
„Miklar breytingar hafa orðið
með samþjöppun fyrirtækja eins
og reyndar var fyrirsjáanlegt. I
þeim efnum hefúr ekkert gerst
sem hefúr komið mér verulega á
óvart. Við eigum núna nokkur stór,
öflug og vel rekin sjávarútvegsfyr-
irtæki. Þróunin rekstrarlega hefúr
verið mjög góð en gengisþróunin
hefúr verið fyrirtækjunum erfið.“
FRETTIR
Mok á línuna í október
Segja má að mok hafi verið á
línuna í október og skiptir þá
engu hvort talað er um smábáta
eða stóru beitningarvélabátana.
Margir beitningarvélabátar, sem
eiga heimahafnir í Breiðafirði,
lönduðu afla sínum á Dalvík.
Þrír Breiðafjarðarbátar sem eru
inni á listanum Iönduðu þar.
Nokkuð forvitnileg staða kom
upp á línulistanum vegna þess að
Kristín GK gerði sér lítið fyrir og
fór í efsta sætið úr því þriðja sem
hún vermdi í september. Þá er að-
eins 267 kílóa munur á milli Jó-
hönnu Gísladóttur ÍS og Páls Jóns-
sonar GK sem eru í næstu tveimur
sætum. í stóra kerfinu eru allir
línubátarnir sem þar róa komnir
með beitningarvél nema einn bát-
ur, Brimnes BA, sem var með 46,7
tonn í 10 ferðum.
Rólegt á dragnótaveiðum
Steinunn SF hélt sínu efsta sæti í
trollflokknum og má segja að hún sé
búin að taka við af Drangavík VE
sem einokaði efsta sætið lengi vel.
Ansi rólegt var yfir dragnóta-
veiðum og voru Þorlákshafnarbátar
í 3 efstu sætunum. Margir bugtar-
bátar hættu í flóanum en af þeim
sem réru allan mánuðinn í bugtinni
þá var Njáll RE hæstur með 52,1
tonn í 13 ferðum og hann varð jafn-
framt sá eini af þeim sem komst
yfir 10 tonn í einum róðri. Stefán
Rögnvaldsson EA varð aflahæstur
báta fyrir norðan. Dalaröst ÞH
(11,1 tonn), Grímsey ST (11,3
tonn) og Afi Aggi EA (11,3 tonn)
komust allir yfir 10 tonn í róðri.
Afli Afa Agga EA var 46,3 tonn í
einungis 6 ferðum sem verður að
teljast ansi gott.
Aflahæstu skip og bátar í október 2005
(tölur miðast við óslægðan afla)
Mesti
afli í
Troll Afli Róðrar róðri
1. Steinunn SF 225,9 4 71,1
2. Heimaey VE 207,1 5 64,5
3. DrangavíkVE 201,6 6 37,6
4. HelgiSH 192,2 4 53,3
5. SmáeyVE Línubátar 183,7 4 51,7 Mesti afli í Afli Róðrar róðri
1. Kristín GK 443,9 6 91,9
2. Jóh. Gíslad. ÍS 380,8 4 117,4
3. PállJónss. GK 380,5 5 88,5
4. Sighvatur GK 372,8 5 87,8
5. Hrungnir GK 360,0 6 71,9
6. Rifsnes SH 315,3 6 61,6
7. Geirfugl GK 310,2 6 77,7
8. HalliEgge. ÍS 302,7 6 59,6
9. Grundfirð. SH 297,6 7 57,5
10. Gullhólmi SH 293,2 4 68,6
Mesti
afli í
Dragnótabátar Afli Róðrar róðri
1. Amar ÁR 147,1 4 54,9
2. Jón á Hofi ÁR 132,6 4 39,4
3. Fróði ÁR 128,7 4 43,3
4. SæbergSH 113,3 7 28,1
5. GeirÞH 112,3 7 36,5
6. Hásteinn ÁR 100,1 7 20,3
7. ÖrnKE 86,9 12 13,9
8. Þorsteinn BA 80,5 19 10,5
9. Þorsteinn SH 76,8 13 9,2
10. Egill Halld.s. SH 75,0 11 15,7
11. Sólborg EA 74,8 5 21,3
12. Brík BA 74,3 20 8,4
13. Vestri BA 65,5 12 13,5
14. Stef.Rögnvs. EA 59,3 14 8,5
15. Sigurfari GK 57,2 4 19,2
Mesti
afli í
Netabátar Afli Róðrar róðri
1. Tjaldur SH 153,6 3 74,5
2. GlófaxiVE 66,5 4 29,9
3. Hvanney SF 62,6 7 15,5
4. Magnús SH 54,4 13 8,1
5. Þorleifur EA 53,3 19 10,5
6. Eldhamar GK 46,9 10 18,5
7. Portland VE 36,2 8 5,5
8. Hafnart. SH 33,8 17 3,8
9. BárðurSH 32,5 14 4,5
10. Gunn. Níels. EA 29,1 23 2,2
„(Samantekt: Gísli Reynisson; byggt á töl-
um Fiskistofu).“
Mesti
afli í
Smábátar Afli Róðrar róðri
1. NarfiSU 154,4 16 15,8
2. Guðm. E.s. ÍS 136,4 23 9,3
3. Hrólfur E.s. ÍS 136,3 23 9,1
4. DaðeyGK 129,9 19 12,1
5. Gísli Súrss GK 114,4 17 9,8
6. Kristinn SH 111,3 18 10,1
7. Hópsnes GK 107,1 19 7,6
8. BíldseySH 106,1 16 7,6
9. Guðbjörg ÍS 103,9 23 8,1
10. Arnar KE 84,8 11 10,3
11. Gunnar Afi SH 80,9 10 8,9
12. VilborgGK 71,7 10 9,7
13. Siggi Bjartar ÍS 65,7 18 6,3
14. SærifSH 63,6 13 6,9
15. Kristján ÍS 63,3 15 7,8
16. Jonni SI 60,8 10 7,8
17. Auður Ósk ÍS 59,3 10 8,4
18. Anna GK 59,0 11 10,3
19. ÓliáStað GK 56,1 11 8,9
20. Alda HU 54,5 9 9,3
21. Goði AK 53,5 9 10,5
22. Óli Gísla GK 53,5 14 5,8
23. Sæ. Sæm.d. ÁR . 51,1 20 3,8
24. Minna SI 50,4 13 6,2
25. Inga NK 50,221 18 5,2
26. Steinunn ÍS 50,204 14 4,7
27. Fanney SH 49,6 14 6,3
28. Glaður SH 49,0 12 5,5
29. Venni GK 48,8 16 4,9
30. Friðfinnur ÍS 48,5 13 5,2
Togarar Mesti afli í Afli Róðrar róðri
1. Ásbjörn RE 621,1 4 177,2
2. Björgúlfur EA 541,7 5 117,9
3. Hólmat. SU 534,5 5 123,9
4. Ottó N Þ.s. RE 482,3 4 142,1
5. Sólbakur EA 419,5 6 84,3
6. Ljósafell SU 416,6 5 92,1
7. Gullver NS 400,4 4 108,4
8. Þór. Sv.d.VE 376,7 4 116,4
9. Harðbakur EA 373,0 4 113,8
10. Árbakur EA 372,1 4 125,2
Mesti
afli í
Plógur/Gildra Afli Róðrar róðri
1. Fossá ÞH.pl 390,5 4 122,8
2. H. Andrés.SH.pl 64,1 7 13,1
3. Garpur SH .gi 45,7 15 4,3
4. Jakop E. SH.gi 41,4 15 4,2
5. Sproti SH.gi 38,5 17 3,4
Tjaldur SH var eins og í septem-
ber langaflahæstur netabátanna.
Annars var netaveiði léleg víðast
hvar. Þorleifur EA frá Grímsey
gerði það þó gott og Gunnar Níels-
sen EA, sem réri frá Hauganesi,
gerði sér lítið fyrir og komst í 10.
sætið á listanum og varð jafnframt
sá bátur ásamt Hrólfi Einarssyni IS
og Guðmundi Einarssyni IS sem
réri oftast í október, eða alls 23
róðra.
Narfi sló met Guð-
mundar Einarssonar
Smábátarnir mokveiddu í októ-
ber og því er listinn teygður í 30
báta. Alls komust 43 bátar yfir 40
tonn i október og 70 bátar fóru yfir
30 tonn. Af þessum fjölda þá
komust 9 bátar yfir 100 tonnin og
af þeim gerði Narfi SU sér lítið
fyrir og sló aflamet Guðmundar
Einarssonar ÍS frá því í október
2004 sem var upp á 153,6 tonn.
Narfi SU fór alls 9 sinnum yfir 10
tonn í róðri og er það líka met.
Meðalafli Narfa SU var 9,6 tonn í
róðri í október og alls fékk hann
154,4 tonn í mánuðinum. Er þetta
vægast sagt frábær árangur hjá
honum. Bræðrabátarnir frá Bol-
ungarvík urðu í næstu tveimur sæt-
um en einungis 83 kíló skildu bát-
ana að. Allir bátarnir á smábátalist-
anum réru á línu nema einn, Inga
NK, sem var á dragnótaveiðum frá
Neskaupstað. Mikið var um það að
bátar sem hingað til höfðu róið fyr-
ir norðan fóru suður til róðra. Fóru
flestir þeirra til Sandgerðis. Hóps-
nes GK landaði afla á 4 stöðum á
landinu, Siglufirði, Hofsósi, Sand-
gerði og Grindavík.
Nýr flokkur
Nokkrir handfærabátar réru í
október og af þeim varð Hrönn EA
aflahæst með 11,1 tonn í 9 ferðum,
Sif SI var með 10,2 tonn í 13 ferð-
um og Anna NS sem réri frá Ólafs-
firði var með 9,6 tonn í 10 ferðum.
Ljósafell SU komst í fyrsta
skipti inn á togaralistann, þar sem
Ásbjörn RE trónir á toppnum. Sæ-
þór EA var eini rækjubáturinn sem
réri í mánuðinum og var hann með
20,9 tonn í 2 ferðum.
Nýr flokkur lítur núna dagsins
ljós á listanum. Kallast hann Plóg-
ur/Gildra og í honum eru þeir bátar
sem róa með þessum veiðarfærum.
Sett er skammstöfunin pl. fyrir
plógsveiðar og gi. fyrir gildruveið-
ar aftan við nafn hvers báts fyrir
sig.
(Samantekt: Gísli Reynisson).
Narfi SU gerði það gott í október og fékk samtals 154,4 tonn sem er
metafli í einum mánuði í þessum bátaflokki.
Aðeins 11 rækjuverk
smiðjur starfandi
Sjávarútvegsráðherra hefur
skipað starfshóp til að kanna
stöðu og horfur í rækjuiðnaði.
Rekstrarumhverfi í rækjuiðn-
aði hefur versnað mjög að undan-
förnu. Ástæðuna má m.a. rekja til
sterkrar krónu, lágs afurðaverðs,
og algjörs aflabrests á Islandsmið-
um samhliða mjög háu olíuverði.
I september 2004 voru 14
rækjuverksmiðjur starfandi á Is-
landi, í september 2005 hafði þeim
fækkað í 11. Miðað við núverandi
stöðu má búast við því að þeim
muni fækka enn og verða sennilega
8 um áramótin. Formaður nefndar-
innar er Davíð Ólafur Ingimarsson,
hagfræðingur hjá sjávarútvegs-
ráðuneytinu, en aðrir í nefndinni
eru Ólafur H. Marteinsson hjá Þor-
móði ramma - Sæbergi og Pétur
Grétarsson hjá Byggðastofnun.
Listaverö flotaolía - skv. heimasíðum:
Atlantsolía 47,70 kr. pr/líter
Shell 49,80 kr. pr/líter
Esso 50,40 kr. pr/líter
Olís ekki uppgefið
Verð eru með vsk.
Listaverð: 9.11.2005
AO
ATLANTSOLÍA
Sjávarútvegur sími: 591 3120