Fiskifréttir - 29.09.2006, Page 1
ISSN 1017-3609
1 Ferskari = afurðir þegar notuð eru ker frá Sæplasti 4 4 Fiski
m isœsjiast) www.saeplast.is 1 Sími 460 5000 • Fax 460 5001 ~ saeplast@saeplast.is FRETTIR
36. tbl. 24. árg. föstudagur 29. september 2006
Samhentir kassagerð ehf • Suðurhrauni 4*210 Garðabær
Sími: 555 6700 • Fax: 555 6701 • umbudir@umbudir.is • www.umbudir.is
■ SAMHENTIR
■■■■ KASSAGERÐ ehf.
UMBÚÐALAUSNIR FYRIR ÞIG
Vaðandi
síld allt í
kringum
bátinn
- segir skipstjór-
inn á Aóalsteini
Jónssyni SU
Daði Þorsteinsson, skipstjóri
á Aðalsteini Jónssyni SU, sagði
í samtali við Fiskifréttir að síð-
asta veiðiferð hefði gengið vonum
framar en hann var á partroll veið-
um á norsk-íslenskri sfld ásamt
Hákoni EA í Sfldasmugunni.
„Það var mikla síld að sjá og
mjög góð veiði á stuttum tíma. Við
á Aðalsteini lönduðum vel á tólfta
hundrað tonnum af síld í bræðslu
og 520 tonnum af frosnu eftir rúma
viku. Lengsta halið hjá okkur
Hákoni að degi til var ekki nema
tveir eða þrír tímar en kvöld- og
næturhölin voru bara ídýfmgar og
pokinn strax fullur af mjög góðri
síld. Meðalvigtin var í kringum 370
grömm og stærsta síldin fór allt upp í
500 grömm,” segir Daði.
Aðalsteinn og Hákon voru á
leiðinni norðar í Síldarsmuguna
þegar þeir rákust á staka torfu sem
Daði segir að bæst hafi látlaust í
og þeir hafi veitt úr henni í viku.
í máli hans kemur fram að síldin
hafi fremur verið á leiðinni suður á
bóginn en norðaustur. „Við vorum
tveir þarna til að byrja með og héld-
um okkur rétt sunnan við 70°N og
rétt austan við Jan Mayen línuna og
færðumst suður á við eftir því sem
leið á veiðarnar. í síðasta halinu
drógum við í rúman klukkutíma og
þegar ég kveikti á kösturunum hélt
ég í fyrstu að það væri komið gat á
pokann en þá vorum við staddir í
miðri torfu og það var allt vaðandi
af síld í kringum bátinn.”
Daði segir að partrollveiðar hafi
gefið mjög góða raun. „Fiskurinn
fælist minna og það næst mun meiri
veiðigeta með veiðarfærunum. Vilhelm
Þorsteinsson kom á svæðið um svipað
leyti og við vorum að hætta og hann
var að draga einn og greinilegt að
honum gekk ekki eins vel þannig að
það fer ekki á milli mála að partroll-
veiðamar gefa betur” segir Daði.
HÁKARL UM BORÐ í SÓLBAK. Þeir á Sólbaki EA fengu þennan hákar) í trollið í sumar. Flikkið er
um 5-6 metrar á lengd vegur að öllum líkindum um 600 kíló. (Mynd: Þorgeir Baldursson).
Heildarlausn
á samhæfðum vélbúnaði
Samstarfsaðili Rolls-Royce
= HÉÐINN =
Stórás 6 • IS-210 Garðabæ
Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
NýUðió fisk-
veióiár:
Vilhelm
Þorsteins
var afla-
hæstur
Uppsjávarveiðiskipið Vilhelm
Þorsteinsson EA varð aflahæsta
skip flotans á nýliðnu fiskveiði-
ári með um 47 þúsund tonna
afla. Þar á eftir komu Börkur
NK og Jón Kjartansson SU (ex.
Hólmaborgin SU) með rúm 43
þúsund tonn, samkvæmt sam-
antekt Fiskifrétta upp úr bráð-
birgðatölum frá Fiskistofu.
Aflahæsti skuttogarinn á fisk-
veiðiárinu var Arnar HU með um
8.700 tonn. Beitningar-vélabát-
urinn Sighvatur GK var aflahæst-
ur í bátaflokknum með um 4.100
tonn. Athyglisvert er að í fimm
af sex efstu sætunum í bátaflokki
voru beitningarvélabátar frá Vísi
hf. i Grindavík.
Metin féllu í krókaaflamark-
inu á fiskveiðiárinu. Eins og áður
hefur komið fram var Guðmundur
Einarsson ÍS þar efstur á blaði með
1.507 tonn. Hæsti smábáturinn á
aflamarki var svo Bárður SH sem
veiddi um 580 tonn á nýliðnu fisk-
veiðiári.
Sjá nánar á bls. 4.
Leyfin
föst í
Moskvu
Dráttur hefur orðið á því að
íslensk skip hafi fengið leyfi til að
hefja veiðar í rússnesku lögsögunni
í Barentshafi í ár vegna þess að
málið hefur setið fast í Moskvu.
Viðræðum þjóðanna seinkaði
í ár vegna þess að Rússar settu
fram nýjar kröfur um meðafla
og eftirlit. Gengið var frá sam-
komulagi í surnar en ekkert hefur
bólað enn á leyfunum. Að sögn
Stefáns Asmundssonar hjá sjáv-
arútvegsráðuneytinu er lausnin
þó í sjónmáli.
Sjá bls. 11.
ICELANDAIR
CARGO