Fiskifréttir


Fiskifréttir - 29.09.2006, Blaðsíða 7

Fiskifréttir - 29.09.2006, Blaðsíða 7
6 FRÉTTIR Kvíaeldi í Eyjafirði. Eldisfiskar: Eru 43% af fiskneyslu í heiminum - samkvæmt nýrri skýrslu FAO I nýrri skýrslu FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, segir að 43% af öllum fiski í heiminum til manneldis komi úr eldi og að sú tala eigi eftir að hækka enn meira í framtíðinni. Eftirspurn eftir fiski hefur aukist mikið hjá efnaðri þjóðum heims og hefur henni verið mætt með auknu eldi. Eldisfiskur var um 8% af heildarfískneyslu mannkyns árið 1980 en í dag er hann 43%. í skýrslu FAO (The State of World Aquaculture 2006) segir að heildafiskveiðar í heiminum séu um 95 milljónir tonna á ári og að þar af fari 60 milljónin tonna til manneldis. Ekki er talið að villtir stofnar þoli aukna sókn. FAO telur að af um 600 teg- undum fiska sem fylgst er með reglulega séu 52% fullnýttar, 25% eru ofnýttar, 20% eru hæfilega nýttar og 3% vannýttar. Af þeim 25% tegunda sem teljast ofnýtt- ar telst vera stunduð rányrkja á 17% tegundanna, gengið er á stofna 7% þeirra en aðeins 1% tegundanna telst vera að jafna sig eftir ofveiðar. Talið er að eftirspum eftir fiski eigi eftir að aukast um 40 millj- ónir tonna til ársins 2030 og að eina leiðin til að mæta henni sé að auka fiskeldi. I skýrslunni eru sögð ýmis vandkvæði því fylgj- andi. Talað er um fjárskort fram- leiðanda í fátækum löndum, skort á landrými og fersku vatni til framleiðslunnar, hækkandi orku- verð, óæskileg umhverfisáhrif í tengslum við fiskeldi og hugs- anlegan skort á fóðri fyrir eldið. Danmörk: Aukin fiskneysla Nýlokið er í Danmörku markaðsátaki um aukna fiskneyslu. Yfirskrift átaksins var „tvisvar í viku‘'. Kannanir í kjölfar markaðs- átaksins sýna að þekking neytenda á fiski eykst stöðugt, jafnframt því sem fiskneysla eykst. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeig- enda. Þar segir einnig að athygli veki að neysluvenjur hafi breyst með átakinu. í fiskbúðunum jókst veltan um 17% á meðan á átakinu stóð, auk þess varð marktæk söluaukning hjá fleiri verslanakeðjum. Nýjustu tölur frá dönsku Hagstofunni benda til aukinnar veltu sem nemur allt að 30% á fyrri helmingi ársins 2006 hjá fiskbúðunum Það var Upplýsingadeild fiskframleiðenda sem gekkst fyrir markaðsátakinu. Haft er eftir Lone Marie Eriksen hjá Upplýsingadeildinni að eðlilegt sé að átakið hafi til að byrja með skilað sér best í sérverslunum þar sem þekkingin er mest. Viðskiptahópur sérverslananna er meðvitaður um hollustu og gæði og er sá hópur sem borðar mestan fisk. En nú lítur einnig út fyrir að átakið sé að skila árangri út í verslanakeðjurnar, salan væri til vitnis um það. FISKIFRÉTTIR 29. september 2006 FISKIFRETTIR 29. september 2006 FISKELDI Texti: VH Myndir: Jón Skúli Skúlason Sandhverfa eftirsóttur fiskur á markaði í Evrópu - segir Benedikt Kristjánsson, stöóvarstjóri hjá Silfurstjörnunni í Öxarfirði Árið 1991 var gerð tilraun með að safna sandhverfu seni veiddist sem flökkufiskur á mið- unum hér við land með hjálp sjómanna og í framhaldi af því hófst tilraunaeldi á vegum Hafrannsóknastofnunar. I dag eru framleidd seiði af sand- hverfu hjá Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar á Stað við Grindavík sem fara til áframeldis hjá Silfurstjörnunni hf. í Öxarfirði. Benedikt Kristjánsson, stöðvarstjóri hjá Silfurstjörnunni, segir í samtali við Fiskifréttir að gott verð fáist fyrir afurðirnar enda sé sand- hverfa dýr fiskur á markaði í Evrópu. Benedikt segir að Silfurstjarnan hafi verið starfrækt frá 1988. „Til að byrja með vorum við með lax og bleikju í eldi en í seinni tíð höfum við verið að færa okkur yfir í dýrari tegundir eins og lúðu, sandhverfu og bleikju. Verð á laxi hefur verið mjög óstöðugt allt frá árinu 1997 og rekja rná upphaf sandhverfueldisins árið 2000 til viðbragða við því. Við sáum fljótlega að við yrðum ekki samkeppnishæfir um verð á laxi úr sjókvíaeldi og ákváðum því að prófa eitthvað. nýtt. Við gerðum tilraun með eldi á sandhverfu og hún tókst vel og eldið hefur vaxið jafnt og þétt,” segir Benedikt. Framleiða um 80 tonn á ári „Við erum svo heppnir hér hjá Silfurstjörnunni að hafa aðgang að jarðhita og getum því haldið stöðugum og háum hita í kerunum allt árið. Jarðhitinn gerir okkur kleift að vera með tegundir í eldi sem þurfa háan og jafnan hita og eru dýrari á markaði fyrir vikið. Og með því gátum við bætt sam- keppnisstöðuna,” segir Benedikt. Sandhverfa er flatfiskur með heimkynni frá Miðjarðarhafi til Noregs en er sjaldgæfur við ísland. Hún er aðallega veidd af Norðmönnum og Dönum auk Þjóðverja, Hollendinga, Belga, Breta og Spánverja. Sandhverfan getur náð allt að 100 sentímetrum að lengd og 25 kílóum að þyngd. Hún verður sjaldan lengri en 60 til 70 sentímetrar. Nafn sand- hverfunnar er þekkt fiskaheiti úr Snorra Eddu en nafnið vísar til þess að fiskurinn grefur sig í sand á hafsbotni. „Fyrstu seiðin voru fengin frá Tálknafirði,” segir Benedikt. „Tálknfirðingar voru eitthvað að prófa sig áfram með eldi á henni en hættu af einhverjum orsök- um. Við sóttum milli 600 og 700 seiði þangað að vorlagi og eldið á þeim gekk vonum framar en eftir það höfum við fengið seiði frá Tilraunaeldisstöð Hafranns óknastofnunarinnar að Stað við Grindavík. I dag erum við með í kringum 200.000 sandhverfur í eldi og ársframleiðslan er um 80 tonn en stefnt er að því að auka hana í 120 til 150 tonn á komandi árum. I dag starfa 8 til 9 manns við framleiðsluna en reikna má með því að þeim fjölgi í 14 þegar framleiðslan hefur náð hámarki,” segir Benedikt. Sandhverfan er aðallega seld til Spánar, Frakklands og Bretlands. Eftir að búið er að slátra og slægja fiskinn er hann ísaður og settur í kæligám. Úr Öxarfirði er ekið með framleiðsl- una til Seyðisfjarðar þar sem hún fer um borð í Norrænu og er flutt sjóleiðina til Evrópu. Verðið fyrir kílóið er 9 til 9,50 evrur, eða 800-850 íslenskar krónur, og hefur verið stöðugt um nokkurn tíma. Benedikt segir verðið gott og engin ástæða til að kvarta yfir því. Aftur á móti segir hann að gengið hafi verið þeim erf- iðara. Markaðurinn fyrir sand- hverfu og eldisfisk er almennt gott yfir vetrarmánuðina og um þessar mundir er verið að slátra um 2,5 tonnum á viku hjá Silfurstjörnunni. Meðalstærð við slátrun 1,5 kíló „Eldi á sandhverfi fer í stórum dráttum þannig fram að við fáum 2 til 5 gramma seiði frá Stað og ölum þau upp í sláturstærð sem er frá 500 grömmum og upp í 3 kíló. Ætli meðalstærð við slátrun sé ekki um eitt og hálft kíló og að jafnaði tekur um eitt og hálft til tvö ár að ala sandhverfuna upp í sláturstærð. Fyrst eftir að seiðin koma til okkar eru þau sett í ker sem eru eins og góður nuddpottur að stærð, um tveir rúmmetrar. Við fiokkum fiskinn eftir stærð á tveggja til þriggja mánaða fresti og flytjum hann í stærri ker eftir því sem hann verður stærri. Stærstu kerin eru um 250 fermetrar að stærð eða eins og þokkaleg sundlaug. Meðan á eld- inu hjá okkur stendur lifir sand- hverfa eingöngu á þurrfóðri sem við fáum frá Laxá á Akureyri og er sérstaklega framleitt fyrir þær, lúðu og þorsk. Kögglarnir eru Sandhverfan flokkuð og flutt á milli kera. bara mismunandi stórir. Þeim er Benedikt Kristjánsson, stöðvarstjóri hjá Silfurstjörnunni í Öxarfírði. Silfurstjarnan hefur stundað sandhverfueldi í nokkur ár. Nafn sandhverfunnar er þekkt fiskaheiti úr Snorra Fddu en nafnið vísar til þess að fiskurinn grefur sig í sand á hafsbotni. aftur á mót startað á sérfóðri á Stað áður en þær koma hingað,” segir Benedikt. Afföll við eldið á sandhverfu eru um 10% eftir að hún er komin í ker hjá Silfurstjörunni en mest drepst af henni á fyrstu stigum eldisins. Að sögn Benedikts eru engir sjúkdómar að hrjá stöðina við eldið og það gengur í stórum dráttum vel. Byggja 4000 fermetra skemmu Aðspurður segir Benedikt að það séu engar stórbreytingar vænt- anlegar í rekstri Silfurstjörnunnar. „Við ætlum að einbeita okkur að þessum tegundum sem við erum með, lúðu, sandhverfu og bleikju, og ná betri tökum á eldi þeirra. Það er að vísu verið að byggja 4000 fermetra skemmu yfir kör þar sem verða lúða og sandhverfa 1 framtíðinni. Þetta eru flatfiskar og þeim er illa við sól og þurfa því að vera í skugga. Yfirbyggingin dregur líka úr myndun þörunga í kerunum og hún er því nauðsyn- leg til að fiskurinn dafni betur,” segir Benedikt að lokum. Leitaðu tilboða hjá Svani Guðmundssyni í síma 825 3120 ATLANTSOLIA Sjávarútvegur sími: 591 3120 Heillaóskir með skipið FAX 561 9596 • HÓMASLÓ< 4, 101 REYKJAVÍK

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.