Fréttablaðið - 24.11.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 24.11.2021, Blaðsíða 1
2 3 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1 Myndir frá Havana á Kúbu Konur eru konum bestar Menning ➤ 26 Lífið ➤ 34 Urðun á sorpi er senn að baki. Leitað er að stað á höfuðborg­ arsvæðinu fyrir ofn sem getur brennt allt að 100 þúsund tonn af sorpi á hverju ári. ser@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Fjögur sorpsamlög á suðvesturhorni landsins skoða nú kaup á brennsluofni til að farga úrgangi á svæðinu frá Gilsfirði í vestri að Markarf ljóti í austri, en þar falla til allt að 85 prósent af öllu sorpi á landinu. Fjárfestingin er ærin. Líf Magneu­ dóttir, formaður stjórnar Sorpu, segir að brennsluofn sem þarf að anna allt að 100 þúsund tonnum á ári kosti líklega á bilinu 20 til 30 milljónir króna. „Það tekur líka tíma að panta svona ofn og setja hann upp, örugglega nokkur ár,“ segir hún. Líf segir að í ljósi vaxandi krafna um bætta meðhöndlun og flokkun úrgangs og áherslu á að lágmarka þörf fyrir urðun, liggi fyrir að finna þurfi viðunandi úrræði til að brenna úrgang sem nú er urðaður. Sorpsamlögin og umhverfis­ og auðlindaráðuneytið hafa gert með sér samning í þessa veru og á starfs­ hópur að undirbyggja sem best ákvörðun um tæknilausnir, meðal annars hvort nota megi ofninn til húshitunar, svo og mögulega þjónustu fyrir allt landið, áhættu­ greiningu og staðarval. „Það þarf að vanda vel til verka hvað staðsetningu varðar,“ segir Líf. „Og augljóst að það vilja ekki allir hafa svona starfsemi í nágrenni sínu.“ En hugsa þurfi um umhverfið, mestallt sorpið falli til á höfuðborg­ arsvæðinu og ekki gangi að keyra mesta magnið langar leiðir. Mögu­ lega þurfi ofninn að vera nálægt höfn, verði sorp flutt með skipum í ofninn víða að af landinu. Heimild til urðunar sorps í Álfs­ nesi rennur út í árslok 2023, eins og tilgreint er í samningi við landeig­ endur. Þar er kveðið á um að 77 þús­ und tonn megi urða í ár, en aðeins 38 þúsund hvort árið 2022 og 2023. Sorpsamlögin fjögur sem standa að undirbúningi á brennslu sorps eru Sorpa, Kalka, Sorpurðun Vestur­ lands og Sorpstöð Suðurlands. Gert er ráð fyrir að undirbúningsniður­ stöður liggi fyrir í árslok. n Leita að stað fyrir risasorpbrennslu Augljóst að það vilja ekki allir hafa svona starfsemi í nágrenni sínu. Líf Magneu- dóttir, formaður stjórnar Sorpu ALLT AÐ SPARIÐ 50% Þegar þú velur íslenska vöru eða þjónustu skilar það sér aftur til þín. mhj@frettabladid.is COVID-19 Frá því að bólusetningar hófust að nýju 15. nóvember hafa Lyfjastofnun borist 113 tilkynn­ ingar um aukaverkanir í kjölfar örvunarskammts. Þar af eru tíu alvarlegar. Þetta kemur fram í svari Lyfjastofnunar til Fréttablaðsins. Meðal tilkynntra einkenna í kjöl­ far örvunarskammts eru eymsli á stungustað, f lensueinkenni, höfuð­ verkur, verkur og bólga í holhönd, bólgnir eitlar, hjartsláttartruflanir, verkur í brjóstkassa, útbrot, brjóst­ verkir, milliblæðingar, óreglulegur tíðahringur, hækkun á blóðþrýst­ ingi, máttleysi, ógleði, uppköst, svitaköst, dofi, svimi og sjóntrufl­ anir. Þetta eru svipuð einkenni og tilkynnt hefur verið um eftir fyrsta eða annan skammt bólusetningar. Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis­ ins, segir að almennt fái færri aukaverkanir af örvunarskammti en eftir til dæmis fyrsta bóluefna­ skammt. n Yfir hundrað tilkynnt aukaverkanir Nánar á frettabladid.is Alþingi var loks sett í gær, 58 dögum eftir kosningarnar 25. september. Deilur vegna talningar í Norðvesturkjördæmi bíða enn úrlausnar. Athöfn fór fram í Dómkirkjunni í tilefni þingsetningarinnar og þangað mættu bæði Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup þjóðkirkjunnar. SJÁ SÍÐU 2 FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.