Fréttablaðið - 24.11.2021, Side 12

Fréttablaðið - 24.11.2021, Side 12
Ég hef gaman af að lesa og hlusta á glæpasögur, elska Eurovision og er nýlega farin að stunda göngur og útivist. Það er einfaldlega verið að byggja of lítið af atvinnuhúsnæði og það sama á við um íbúðarhúsnæði. Hannes Stein- dórsson, for- maður Félags fasteignasala Alma Sigurðardóttir tók nýverið við starfi mannauðsstjóra Gæða- baksturs. Hún er mikill Eurovisi- on-aðdáandi og hefur gaman af því að hlusta á glæpasögur og fara í göngutúr. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég hef gaman af að lesa og hlusta á glæpasögur, elska Eurovision og er nýlega farin að stunda göngur og útivist. Mér finnst líka hættulega huggulegt að slappa af með fjöl- skyldunni fyrir framan sjónvarpið. Hvernig er morgunrútínan þín? Ég er B-plús-manneskja og fer ekki á fætur fyrr en ég þarf. Morgn- arnir snúast að mestu um að koma sonum af stað á réttum tíma í skóla, klæddum eftir veðri og helst með morgunmat í maganum. Ég borða alltaf morgunmat þótt það sé stundum á hlaupum og fæ mér kaffibolla þegar ég mæti til vinnu. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Ég hef alltaf verið hrifin af bókum í dagbókarformi og las til dæmis Dagbók Önnu Frank og Dagbókina hans Dadda um Adrian Mole mörg- um sinnum sem unglingur. Í seinni tíð má kannski nefna bókina Móðir eftir Alejandro Palomas. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Vonandi hraust, hamingjusöm og enn starfandi við mannauðsmál. Ef þú þyrfti að velja annan starfs- frama, hvað yrði fyrir valinu? Einkaspæjari eða náms- og starfs- ráðgjafi. Hér á landi eru samt senni- lega f leiri atvinnutækifæri fyrir náms- og starfsráðgjafa. Hver er uppáhalds borgin þín? Madrid er besta borg í heimi. Ég bjó þar í alls um tvö ár og sakna mikið matarins, mannlífsins og allra garðanna. Það er fátt betra en Madrid í mildu veðri að vori eða hausti, að rölta um, horfa á fólk og fá sér að borða undir berum himni. n Forfallinn Eurovision-aðdáandi Nám: BA-próf í spænsku og meistaragráða í mannauðs- stjórnun, hvort tveggja frá Háskóla Íslands. Tók hluta af spænskunáminu við tvo há- skóla í Madrid á Spáni. Störf: Starfaði við mannauðs- mál hjá byggingarverktakanum Ístaki og Elju – alhliða mann- auðslausnum í rúm átta ár. Áður hjá Norræna félaginu við upp- lýsingaþjónustu Norrænu ráð- herranefndarinnar og sumar- vinnumiðlunina Nord jobb. Fjölskylduhagir: Ég er gift og á tvo drengi í grunnskóla, 7 ára og næstum 13 ára. Eftirlætisborgin hennar Ölmu er Madrid en hún bjó þar í um tvö ár og saknar mikið matarins og mannlífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Formaður Félags fasteigna- sala segir að mikill skortur sé á atvinnuhúsnæði og býst hann ekki við því að staðan muni lagast fyrr en eftir þrjú til fimm ár. Forstjóri Regins segir að það sé skortur á ákveðnum tegundum af atvinnuhúsnæði. magdalena@frettabladid.is Hannes Steindórsson, formaður Félags fasteignasala, segir að staðan á atvinnuhúsnæðismarkaði sé sam- bærileg og á íbúðamarkaði. „Fram- boð af atvinnuhúsnæði í dag er ein- faldlega mjög lítið. Fyrir um tveimur árum síðan var framboðið mikið en í kjölfar heimsfaraldursins hefur þetta meira og minna hreinsast upp. Sem dæmi um það er að stóru fast- eignafélögin eiga lítið óútleigt,“ segir Hannes og bætir við að í kringum Covid hafi fjárfestar leitað mikið í fasteignir. „Fjárfestar leituðu mikið í fast- eignir í Covid og þegar aðeins leið á faraldurinn þá héldu fyrirtæki að þau gætu minnkað við sig fermetra því fólk fór að vinna heima í meiri mæli.“ Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, segir að það sé skortur á atvinnuhúsnæði eins og staðan er í dag og þá sérstaklega á ákveðnum tegundum af atvinnuhúsnæði. „Það er til að mynda mikill skortur á hágæða skrifstofuhús- næði þar sem staðsetningin er góð og á svæðum sem eru vinsæl eins og til dæmis á Smáralindarsvæðinu, í Borgartúninu og fleiri stöðum. Það vantar líka atvinnuhúsnæði með góðri aðkomu og tengingum við bílastæði í kjöllurum og á lóð,“ segir Helgi og bætir við að það vanti einn- ig minni iðnaðar- og lagerhúsnæði. Hannes bætir við að það þurfi að gefa verulega í við byggingu á atvinnuhúsnæði. „Það er einfaldlega verið að byggja of lítið af atvinnuhúsnæði og það sama á við um íbúðarhúsnæði. Fyrir um tveimur árum bjóst mark- aðurinn allt eins við því að það yrði offramboð en það varð ekki raunin. Í Reykjavík koma upp, ef maður leitar í leitarvélinni, 500 lausar fast- eignir en taka þarf inn í myndina að margar af þessum eignum eru tví- skráðar og sumt í leigu þannig að þetta eru ekki nema svona um 200 eignir sem eru til sölu.“ Hann segir jafnframt að hann búist við að staðan muni batna innan þriggja til fimm ára. „Það eru áform um að byggja töluvert af atvinnuhúsnæði á höfuðborgar- svæðinu. Mikið af nýbyggingum er með lítil atvinnurými á jarðhæð, sem er skemmtilegt en það þarf auð- vitað stærri einingar.“ Aðspurður hvað staðan hafi varið lengi segir Helgi að ástandið hafi Mikill skortur á atvinnuhúsnæði Helgi S. Gunn- arsson, forstjóri Regins varað í þó nokkurn tíma. „Á þessu ári höfum við séð eftirspurnina vera að aukast stöðugt og það eru skýr merki í hagkerfinu um bata fram undan. Það leiðir af sér að fyrirtæki eru að horfa til þess að stækka við sig, breyta og styrkja sig.“ Hann bætir við að hann sé bjart- sýnn á að ástandið muni batna á komandi misserum. „Þessi mála- f lokkur þarf þó að vera stöðugt í uppfærslu og endurnýjun. Fyrir- liggjandi spár um breytta borgar- þróun og fjölgun á höfuðborgar- svæðinu sýna að það þarf meira af atvinnuhúsnæði til að styðja við þá þróun. Það eru margir sem benda á að það sé nóg framboð af skrif- stofuhúsnæði en ég er ekki alveg sammála því. Það er kannski nóg framboð af ákveðinni tegund af skrifstofuhúsnæði, það er að segja gömlu og úreltu, en fyrirtækin eru ekkert að sækjast í það.“ Hannes bætir við að stjórnvöld og sveitarfélög geti gert ýmislegt til að bæta úr stöðunni. „Auka skipulag og stytta boðleiðir, auðvelda ferla í skipulaginu.“ n Hannes Stein- dórsson, for- maður Félags fasteignasala, segir að það séu rétt um 200 at- vinnuhúsnæðis- eignir til sölu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK helgivifill@frettabladid.is Arion banki segir að lánasafn bankans til lítilla og meðalstórra fyrirtækja hafi vaxið umtalsvert á síðustu árum. Stóru bankarnir þrír segjast ekki halda að sér höndum þegar kemur að lánveitingum til lítilla fyrirtækja. Landsbankinn er með þá stefnu að auka markaðs- hlutdeild í lánum til lítilla og meðal- stórra fyrirtækja. Þetta kemur fram í svörum frá bönkunum. Kristrún Frostadóttir, fyrrverandi aðalhagfræðingur Kviku banka og nú þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í Silfrinu í Ríkissjónvarpinu á sunnudag að hjá bönkum væru hvat- ar til að láta ungt fólk taka himinhá fasteignalán en að lítil fyrirtæki ættu helst að reka sig á eigin fé. „Svo má nefna,“ segir í svari frá Arion banka, „að eftirlitsaðilar hafa dregið úr kröfum um eiginfjár- bindingu banka vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem býr til jákvæða hvata til frekari lánveitinga á þessu sviði.“ Landsbankinn segir að liður í markaðssókn sinni til að auka útlán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja sé betra app sem henti betur þeim markaði sem hafi leitt til aukningar í viðskiptum. „Varðandi samspil útlána og eftirspurnar eftir lánsfé þá fer það eftir aðstæðum hverju sinni og við mat bankans á lánum er horft til þess að fyrirtæki þurfa að hafa áætlanir um hvernig reksturinn mun standa undir aukinni skuld- setningu,“ segir í svarinu. Íslandsbanki segir að að jafnaði séu gerðar meiri kröfur til eigin- fjárframlags hjá nýjum fyrirtækj- um með stutta viðskiptasögu eða sem séu að hefja rekstur. „Sem fyrr er bankinn þó opinn fyrir öllum áhugaverðum verkefnum og er hvert mál skoðað vandlega.“ n Vöxtur í lánum til lítilla fyrirtækja helgivifill@frettabladid.is IP Studium Reykjavík, fjárfestinga- félag Ingibjargar Stefaníu Pálma- dóttur, tapaði 202 milljónum króna fyrir skatta árið 2020 samanborið við 442 milljóna króna hagnað eftir skatta árið áður. Fram kemur í nýbirtum ársreikn- ingi að rekstur félagsins hafi mótast umtalsvert af áhrifum af Covid-19 heimsfaraldrinum. Leigutekjur drógust saman um 78 prósent og námu 27 milljónum króna. Áhrif af rekstri dóttur- og hlutdeildarfélaga leiddu til 12 milljóna króna taps árið 2020 en árið áður lagði sá þáttur til 446 milljónir króna til rekstrarins. Eigið fé félagsins var 2,6 milljarð- ar króna árið 2020 en eignirnar 5,5 milljarðar. Félagið á meðal annars Hverfisgötu 8 til 10, sem hýsir 101 hótel, og er fasteignin bókfærð á 1,8 milljarða króna, og 43 prósenta hlut í 365 sem bókfærður er á 1,6 milljarða króna. Ingibjörg Stefanía á 99,8 prósenta hlut í 365, sam- kvæmt Fyrirtækjaskrá. Eignir 365 voru bókfærðar á 6,5 milljarða árið 2020 og eigið fé 3,4 milljarðar króna. Félagið á meðal annars í Streng sem fer með meirihluta í Skeljungi. n IP Studium tapaði 202 milljónum Ingibjörg Stefanía Pálma- dóttir, fjárfestir n Svipmynd Alma Sigurðardóttir 12 Fréttir 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.