Fréttablaðið - 24.11.2021, Qupperneq 16
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Alþingi
á að vera
skipað
þeim sem
kjósendur
í landinu
velja, ekki
þeim sem
alþingis-
menn
sjálfir vilja
vinna með.
Okkur
vantar
bjartsýni,
gleði og
aukna
ásýnd
kvenna í
samfélagið
okkar.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur
@frettabladid.is
Suðurnesin eru landsvæði tækifæra. Í áratugi
hefur fólk af öllu landinu auk erlendra íbúa leitað
til Suðurnesja í atvinnuleit, fyrst í fiskvinnslu á
svæðinu og síðar í f lugvallarstarfsemi og ferðaþjón-
ustu. Á Suðurnesjum finnst gróska hugvits og seiglu
en við höfum lent í hinum ýmsu kreppum sem við
höfum unnið okkur úr saman. Atvinnuleysi var
okkur erfitt á árunum 2020-2021 þar sem atvinnu-
leysi var mest hjá okkur af öllu landinu; 13,7% í maí
2021 og 9,1% í september meðan meðtals atvinnu-
leysi á landinu öllu var 5,1%. Það sem athyglisverð-
ast var að atvinnuleysi kvenna var einnig mest á
Suðurnesjum; 13,1% meðan meðaltalið fyrir landið
allt var 6,5%. Staða kvenna á Suðurnesjum er þó
björt og horfir til bjartari vegar. Atvinnuleysi hefur
minnkað um 17% undanfarna átta mánuði sem ber
virkilega að fagna.
Kortleggjum tækifærin
Samfélagið okkar er að lifna við í takt við nýja
Covid-tíma og ljóst er að tækifærin eru til staðar er
kemur að atvinnusköpun kvenna, við þurfum bara
að kortleggja þessi tækifæri. Við þurfum að nýta
okkur styrkleikana sem felast í fjölbreytileika sam-
félagsins á Suðurnesjum með því að styðja konur í
að sækja fram og sameina þær til aukins sýnileika
og þátttöku. Verður það gert með FKA Suður-
nesjum sem er ný landsbyggðardeild Félags kvenna
í atvinnulífinu, FKA. Nýja deildin okkar mun leggja
áherslu á nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra
kvenna á svæðinu með jákvæðni, seiglu og útsjónar-
semi. Með því að efla þátt kvenna í samfélaginu,
eflum við okkur öll. Okkur vantar bjartsýni, gleði og
aukna ásýnd kvenna í samfélagið okkar. Konur ættu
að vera áberandi í rekstri fyrirtækja, stjórnunarstöð-
um og í stjórnum fyrirtækja. Það mun vera okkur
öllum til heilla. Komdu með okkur í vegferð kvenna
á Suðurnesjum 26. nóvember næstkomandi. n
Konur Suðurnesja –
okkar tími er kominn
Guðný Birna
Guðmundsdóttir
hjúkrunarstjóri og
formaður stjórnar
HS Veitna
FAXAFEN 11, 108 REYKJAVÍK, S: 534-0534
WWW.PARTYBUDIN.IS
Allt fyrir veisluna á einum stað
Skraut, borðbúnaður, búningar og tækjaleiga
arib@frettabladid.is
Gísla saga húsnæðismarkaðar
Íslenskir netheimar skiptust í
tvennt eftir hárbeittra gagnrýni
fræðsluvettvangsins Fortuna
Invest á Instagram. Má segja að
íslenska skólakerfið hafi fengið
það óþvegið er dregin var upp
mynd af nemanda að spyrja
hvernig taka eigi lán en fékk
svarið frá kennaranum að haldið
skyldi áfram að lesa Gísla sögu
Súrssonar. Hvað verður um sögu
þjóðar ef tala á um lán í skól-
anum? Opnast dyr að hlut verka-
leik nemenda sem setja sig inn í
húsnæðismarkað fortíðarinnar
þar sem flokksskírteini þurfti til
að fá lóð og annað til að fá lán?
Bróðurráð í beinni
Helgi Hrafn Gunnarsson, sem
gat sér gott orð sem þingmaður
Pírata, gefur systur sinni Arndísi
Önnu Kristínardóttur Gunnars-
dóttur góð ráð á Facebook í ljósi
þess að hún tók sæti á Alþingi í
gær. Helgi þekkir starfsvenjur
þingsins og ráðleggur henni
að neita að skrifa undir dreng-
skaparheitið. Ekki að það sé neitt
að því, það væri bara áhugavert
að vita hvað myndi gerast. Þá vill
hann að Arndís segi „furðulegi
forseti“ svo hratt í upphafi ræðu
að forseti þingsins geti ekki verið
viss um að hún hafi ekki sagt
virðulegi forseti. Ráðin eru mörg
en Helgi gleymdi eiginlega ráði
Pírata númer eitt. Alltaf mæta á
sokkaleistunum. n
Það er mál manna að undirbúnings-
nefnd kjörbréfanefndar Alþingis hafi
staðið sig ágætlega í þeim rannsóknar-
lögreglustörfum sem hún hefur fengist
við undanfarnar átta vikur. Fækkað
hefur í þeim hópi sem var fullviss um að nefndin
myndi hvítþvo fúskið í Norðvesturkjördæmi og
skvaldra sig niður á fyrir fram ákveðna tillögu til
þingsins um gott veður og óbreytt ástand.
Við þurfum að bíða einn dag enn eftir þeim
tillögum sem lagðar verða fyrir þingið, en þótt
svo fari, sem flesta grunaði, að kjörbréfin sem
landskjörstjórn gaf út eftir kosningar verði
staðfest, og það hafi kannski alltaf verið planið,
verður að gefa Birgi og nefnd hans það sem hún
á.
Tillögurnar munu nær örugglega valda
mörgum vonbrigðum en nefndin vann gott
starf og fyrir liggur niðurstaða ítarlegrar rann-
sóknar þar sem flestum steinum var velt við.
Þingmannsefni og kjósendur sem hyggjast leita
réttar síns hjá dómstólum fá ómetanlegt innlegg
í málsóknir sínar.
Við höfum öll lært eitthvað. Og þótt margir
hrylli sig nú, eftir að ormagryfjan var opnuð, við
tilhugsunina um það fúsk sem viðgengist hefur í
framkvæmd kosninga allan líftíma lýðveldisins,
getum við huggað okkur við að engan langar að
leika þennan leik aftur við framkvæmd kosn-
inga. Aldrei aftur.
Ljóst er að breyta þarf lögum og taka af skarið
um ýmis þokukennd atriði. Efla þarf kosn-
inga eftirlit. Umboðsmenn flokka munu skilja
hlutverk sitt betur og þau sem tilnefnd eru í
kjörstjórnir munu hugsa sig vandlega um, vegna
þeirrar ábyrgðar sem á herðum þeirra hvílir.
Og nú er boltinn hjá Alþingi. Rétt eins og
forðum, þegar Alþingi þurfti að loknum ítar-
legum rannsóknum að taka af skarið um hvort
ákæra skyldi ráðherra; flokkssystkini og vinnu-
félaga.
Þótt nefndin hafi skilað greinargóðum niður-
stöðum um framkvæmd kosninganna er hún
ekki á einu máli um hvað gera skuli í fram-
haldinu. Nú á síðustu metrunum gætu flokkslín-
urnar verið að koma í ljós en þriggja eða fjögurra
tillagna er að vænta frá nefndarmönnum sem
leiddar verða til lykta á morgun.
Þá er vonandi að þingmenn skilji pólitíkina
eftir fyrir utan þingsalinn og gleymi því ekki að
Alþingi á að vera skipað þeim sem kjósendur
í landinu velja, ekki þeim sem alþingismenn
sjálfir vilja vinna með. Líkt og í Landsdómsmál-
inu er ákvörðun þingheims í eðli sínu lögfræði-
leg og siðferðileg, en hvorki praktísk né pólitísk.
Til þess eru vítin að varast þau. Látið sann-
færinguna frekar en flokkslínur ráða. n
Flokkslínur
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR