Fréttablaðið - 24.11.2021, Síða 22
Í krefjandi námi skiptir
miklu máli að hlúa vel
að andlegri heilsu sinni.
Háskólinn í Reykjavík hefur
á undanförnum árum meðal
annars boðið upp á sálfræði-
þjónustu, gagnleg námskeið,
geðheilbrigðisviku og slök-
unar- og hugleiðslurými.
starri@frettabladid.is
Náms- og starfsráðgjöf og Sálfræði-
þjónusta Háskólans í Reykjavík
(HR) gaf í lok október út rafræna
bæklinga sem eiga að hjálpa
nemendum skólans, og öðrum
áhugasömum utan hans, til að
takast á við áskoranir og viðhalda
góðri andlegri líðan. Í háskóla-
námi skiptir miklu máli að hlúa vel
að andlegu hliðinni, ekki síst þegar
tekist er á við krefjandi nám sam-
hliða hverju því sem lífið býður
upp á hverju sinni, segir Eva Rós
Gunnarsdóttir, sálfræðingur hjá
Sálfræðiþjónustu HR. „HR hefur
alltaf verið umhugað um andlega
líðan nemenda og hafa náms- og
starfsráðgjafar starfað við skólann
frá upphafi og boðið upp á víðtæka
þjónustu, meðal annars stuðning
vegna andlegra þátta.“
Hún segir nemendur hafa nýtt
þjónustuna vel en hafa á sama
tíma verið duglega að kalla eftir
sálfræðiþjónustu. „Það varð
meðal annars til þess að haustið
2018 var fyrsta skrefið tekið í að
bjóða nemendum upp á gjald-
frjálsa sálfræðiþjónustu í formi
námskeiða. Haustið 2020 var svo
enn stærra skref tekið en þá kem
ég inn í fulla stöðu sálfræðings við
skólann sem gerði okkur kleift að
bjóða nemendum upp á enn fjöl-
breyttari þjónustu.“
Fjölbreytt þjónusta í boði
Þar sem vandi nemenda er ansi
fjölbreyttur hefur skólinn lagt
áherslu á að bjóða upp á fjöl-
breytta þjónustu segir Eva. „Á
undanförnum árum höfum
við meðal annars boðið upp á
stuðningshópa fyrir nemendur
með ADHD, stutt námskeið vegna
prófkvíða og annað lengra nám-
skeið vegna þunglyndis og kvíða. Á
þessari önn bjóðum við svo í fyrsta
sinn upp á námskeið sem snýr að
auknu sjálfsöryggi í námi.“
Skólinn hefur einnig haldið fjöl-
breytta viðburði sem hafa þann til-
gang að vekja athygli á mikilvægi
geðheilbrigðis og kynna árangurs-
ríkar leiðir til að auka vellíðan.
„Þar má fyrst nefna geðheilbrigðis-
vikuna Mót hækkandi sól sem
hefur verið haldin árlega síðast-
liðin fimm ár við góðar undir-
tektir. Núna í október stóð HR svo
fyrir andlegum heilsudegi undir
yfirskriftinni Láttu þér líða vel, þar
sem búinn var til vettvangur fyrir
ýmis samtök, félög og fyrirtæki til
að kynna hvers konar úrræði sem
þau bjóða upp á. Í upphafi síðasta
skólaárs héldum við einnig svo-
kallaða Fræðsluviku þar sem við
streymdum örfyrirlestrum dag-
lega og kynntum aðferðir sem eru
til þess fallnar að auka velgengni
og vellíðan í námi.“
Málefni sem skipta máli
Hún segir skólann einnig reyna að
bjóða upp á reglulega fyrirlestra
og láta þá taka á þeim málefnum
sem skipta máli hverju sinni. „Í
því samhengi má nefna fyrir-
lestur sem snéri að námi og líðan
í heimsfaraldri og svo höfum við
einnig nýlokið fyrirlestraröð í
aðdraganda prófa sem hafði þann
tilgang að hvetja nemendur til að
hlúa að andlegu hliðinni á þeim
krefjandi tímum sem prófatíð er.
Samhliða fyrirlestraröðinni gáfum
við út fjóra ólíka fræðslubæklinga
þar sem tekin voru saman atriði
sem eru þekkt fyrir að hafa jákvæð
áhrif á líðan. Að lokum verð ég svo
að nefna sérstakt slökunar- og hug-
leiðslurými HR sem veitir nemend-
um og starfsfólki rými til að slaka
á og róa hugann í amstri dagsins.
Slíkt er nauðsynlegt í því krefjandi
umhverfi sem við erum í.“
Mikil ásókn í úrræði
Eva segir að nemendur séu almennt
mjög ánægðir með þá þjónustu sem
skólinn bjóði upp á. „Það sést fyrst
og fremst á því hversu mikil ásókn
er í þau úrræði sem eru í boði. Eins
og staðan er nú eigum við í raun í
fullu fangi með að sinna eftirspurn
en það hlýtur að segja ýmislegt.“
Eva segir þau stöðugt vera að
reyna að bæta þjónustuna með
líðan nemenda að leiðarljósi. „Við
erum með ýmsar hugmyndir að
námskeiðum og öðru á teikni-
borðinu sem verða vonandi að
veruleika sem fyrst. Eins og staðan
er nú leggjum við mikla áherslu á
að ná til sem flestra og teljum við
tæknina spila stórt hlutverk þar.
Við höfum verið að auka fjar-
þjónustu og bjóðum nemendum
sem eiga ekki heimangengt að
koma í fjarviðtöl og einnig höfum
við boðið upp á fjarnámskeið og
streymt fyrirlestrum. Slík þjón-
usta mun vonandi bara aukast á
komandi misserum. Einnig höfum
við unnið að því að auka aðgengi
að hagnýtu efni og má finna
bæklingana okkar og upptökur af
fyrirlestrum á ytri vef skólans. Þá
geta nemendur, sem og almenn-
ingur, nálgast efnið hvar og hvenær
sem er.“ n
Andleg heilsa skiptir miklu í krefjandi námi
Eva Rós Gunn-
arsdóttir, sál-
fræðingur hjá
Sálfræðiþjón-
ustu Háskólans í
Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Jóhanna Laufdal Friðriks-
dóttir byrjaði að taka inn
Protis® kollagen fyrir um
ári síðan eftir að hafa lesið
sér til um góð áhrif þess á
líkamann, liði, hár, neglur,
húð og fleira.
Kollagen hefur margvísleg áhrif
á líkamsstarfsemina. Kollagen er
eins og lím í líkamanum sem hefur
áhrif á liði, hrukkumyndun, hárið
og margt fleira. Þegar við eldumst
byrjar líkaminn að framleiða
sífellt minna magn af þessu mikil-
væga efni. Þá er ekki úr vegi að
taka kollagenið inn sem bætiefni.
„Undanfarið hef ég verið að
kynna mér hvað kollagen getur
gert fyrir líkamann. Það vakti
sérstaklega áhuga minn þegar ég
las um áhrif þess á liðina. Ég er 43
ára gömul og byrjaði að finna fyrst
fyrir liðverkjum um 35 ára aldur-
inn. Aðallega hef ég fundið fyrir
liðverkjum í tám og fingrum. Þetta
er ættgengt í fjölskyldunni minni.
Langamma mín var svona, amma
líka og mamma og líka systur
mömmu. Þetta kemur þá helst
fram í fingrum og tám. Stundum
eru þær svo slæmar að þær festast í
liðunum,“ segir Jóhanna.
Hætt að finna fyrir
pirringi í liðum
„Þegar maður er kominn á ákveð-
inn aldur er gott huga það því hvað
maður getur gert til að njóta lífsins
lengur. Hvort sem það er að styrkja
liðina, bæta ónæmiskerfið eða
hægja á öldrun eins og til dæmis
hrukkumyndun. Ég byrjaði að
taka inn kollagen frá Protis fyrir
ári síðan til að fyrirbyggja frekari
liðvandamál. Ég var farin að finna
fyrir miklum pirringi í tánum sér-
staklega.
Ég veit ekki hversu lengi ég
hafði tekið kollagenið inn en á
ákveðnum tímapunkti fann ég að
ég var orðin miklu betri af liðverkj-
unum, sem versna allajafna þegar
það tekur að kólna. Þrátt fyrir að
veturinn sé hafinn þá finn ég ekki
lengur fyrir þessum ofsapirringi í
tánum og ég er orðin mun betri í
liðunum í fingrum.“
Húðin ljómar
„Annað sem ég hef tekið eftir er að
hár og neglur vaxa ótrulega hratt
á mér. Húðin hefur líka verið ein-
staklega góð og fín. Það er eins og
hún ljómi. Ég myndi ekki segja að
bólur hafi verið veigamikið vanda-
mál hjá mér, en ég hef varla fengið
eina einustu bólu síðan ég byrjaði
að taka inn kollagen frá Protis.
Ég hef prófað að taka kollagenið
inn í duftformi en það hentar mér
ekki þar sem mér finnst bragðið
ekki gott. Margir blanda því út í
kaffi, en sjálf drekk ég ekki kaffi.
Það hentar mér mjög vel að kolla-
genið frá Protis fæst í töfluformi.
Ég get bara gleypt töfluna og
þarf ekki að finna neitt bragð. Ég
er líka rosalega léleg í að muna
eftir að taka inn bætiefni því ég
borða ekki morgunmat. Til að
sporna við að ég gleymi að taka
inn kollagenið, þá hef ég dolluna
á skrif borðinu mínu í vinnunni.
Þá man ég eftir að taka það inn að
minnsta kosti á virkum dögum.
Svo á ég aukaskammt heima fyrir
helgarnar.“
Íslensk framleiðsla
„Það skiptir mig máli að vita
hvaðan bætiefnin koma sem ég
bæti inn í mitt mataræði. Kollagen-
ið frá Protis er unnið úr íslenskum
hráefnum og inniheldur kollagen
úr íslensku fiskiroði. Mér finnst
gott að vita til þess að framleiðslan
fari fram hér heima enda treysti ég
íslenskri framleiðslu og vil styrkja
hana eftir fremsta megni,“ segir
Jóhanna að lokum.
Um Protis® Kollagen
Kollagen er náttúrulegt prótín og
eitt helsta byggingarefni líkamans.
Gott að vita um Protis® Kollagen:
n Ekkert gelatín eða sykur
n Meira magn virkra efna en hjá
flestum samkeppnisaðilum
n Engin aukaefni
n Sýnilegur árangur á 30 dögum
n Íslenskt hugvit og framleiðsla
Protis® Kollagen er framleitt úr
íslensku fiskroði hjá líftæknifyrir-
tækinu PROTIS. Varan er einstök
blanda af bestu innihaldsefnum
sem öll styðja við styrkingu á húð,
hári og nöglum. Kollagen úr fiski
er áhrifaríkara en kollagen úr
landdýrum þar sem upptaka úr
meltingarvegi er betri.
Helstu innihaldsefni:
n SeaCol® er blanda af vatnsrofnu
kollageni úr íslensku fiskroði og
vatnsrofnu þorskprótíni úr ís-
lenskum þorski. SeaCol ® tekur
þátt í að styrkja vefi líkamans og
viðhalda teygjanleika.
n C-vítamín tekur þátt í myndun
kollagens í líkamanum.
n Hyaluronic-sýra er eitt mest
rakagefandi efni náttúrunnar
og viðheldur meðal annars raka
húðarinnar.
n Kóensím Q10 er að finna í nær
öllum frumum líkamans. Það
er mikilvægt fyrir endurnýjun
fruma eins og húðfruma.
n B2- og B3-vítamín, sink, kopar og
bíótín fyrir hárvöxt, endurnýjun
húðar og vöxt nagla. n
Protis® Kollagen fæst í næsta
apóteki, heilsuvöruverslun og
stórvöruverslun.
Liðverkir ekki lengur vandamál
Jóhanna Laufdal
kynntist mætti
kollagens fyrir
um ári og hefur
það hjálpað
henni mjög
í baráttunni
við liðverki í
höndum og
tám.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
4 kynningarblað A L LT 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR