Fréttablaðið - 24.11.2021, Síða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Við viljum eyða út
þessari setningu sem
oft er sögð um að
konur séu konum
verstar.
Elísabet Gunnarsdóttir
odduraevar@frettabladid.is
„Þetta gengur upp eins og venju-
legur spilastokkur nema það er bara
verið að spila með plöntutegundir,“
segir Guðrún Bjarnadóttir náttúru-
fræðingur um Flóruspilið sem er
í raun spilastokkur þar sem veið-
maður er spilaður með íslenskar
plöntutegundir og og meðfylgjandi
fróðleik um plöntutegundirnar.
Þá hefur hún einnig gefið út sér-
staka barnaútgáfu af spilinu sem
hún kallar Blómaspilið. „Þetta er í
raun bara metnaður hjá mér til þess
að kenna fólki og fræða um náttúr-
una okkar,“ segir Guðrún.
Hún hefur undanfarið kennt
grasafræði við Landbúnaðarháskól-
ann og segir spilið henta hverjum
sem er. „Almennt er plöntuþekking
frekar lítil. Við búum í borgum og
erum komin í burtu frá náttúrunni.“
Guðrún rekur einnig jurtalitunar-
vinnustofuna Hespuhúsið í Ölfusi.
„Fólk getur komið og kíkt í pottana
og fræðst um þessa gömlu hand-
verkshefð og spjallað um jurtir.“
Guðrún segist hafa fengið góð
viðbrögð við spilinu. „Alveg ótrú-
lega góð. Ég pantaði skammt sem ég
hélt að myndi duga til jóla en hann
kláraðist á fimm vikum,“ segir hún.
Spilið fæst víða en finna má sölu-
staði á hespa.is. Spilið gaf Guðrún
út á íslensku, ensku og pólsku.
Blómaspilið er svo kjörið fyrir
börn að sögn Guðrúnar. „Það er
samstæðuspil og fyrir börn niður í
þriggja ára. Þar er bara nafnið á teg-
undunum svo það sé hægt að byrja
snemma að heilaþvo ungviðið.“ n
Veiðimaður spilaður með blómum
Fjórar vinkonur blása fimmta
árið í röð til góðgerðar-
söfnunarinnar Konur eru
konum bestar. Elísabet Gunn-
arsdóttir segir þær leggja upp
með að eyða neikvæðu umtali
kvenna hverra um aðrar.
odduraevar@frettabladid.is
Fimmta árið í röð blása vinkon-
urnar Andrea Magnúsdóttir, Aldís
Pálsdóttir, Nanna Kristín Tryggva-
dóttir og Elísabet Gunnarsdóttir til
til góðgerðarsöfnunarinnar Konur
eru konum bestar.
„Við erum gamlar vinkonur sem
erum flestar eitthvað að vinna tengt
tísku,“ útskýrir Elísabet, bloggari á
Trendnet, og segir þær hafa lagt upp
árið 2017 með það fyrir augum að
eyða neikvæðu umtali.
Verkefnið hefur verið árlegt frá
2017 og í fyrra var slegið söfnunar-
met þegar 6,8 milljónir króna söfn-
uðust fyrir Bjarkarhlíð. Allur ágóði
sem safnast nú rennur til Stígamóta.
Elísabet bjó erlendis um tólf ára
skeið. „Ég kom oft heim og fannst ég
alltaf fá þessar neikvæðu fréttir áður
en ég fékk einhverjar góðar fréttir af
fólki. Það var svolítið eins og þetta
væri ísbrjóturinn þegar mér var sagt
slúður af hinum eða þessum,“ segir
hún.
Elísabet segist hafa þótt þetta
hugarfar afar dapurlegt. „Ég hef
ekki áhuga á slíku. Við Andrea erum
báðar mæður þannig að við fórum
að tala um þetta. Ég nefndi þetta
við hana hvað mér fyndist þetta
glatað og að við þyrftum nú að gera
eitthvað í þessu og að við vildum
vera betri fyrirmyndir fyrir okkar
stelpur og næstu kynslóð á eftir. Að
þær detti ekki í þetta.“
„Við viljum eyða út þessari setn-
ingu, sem oft er sögð, um að konur
séu konum verstar og fórum fram
og til baka hvernig best væri að gera
þetta. En við erum miklar áhuga-
konur um tísku og vildum gera góð-
gerðarbol sem væri líka klæðilegur
og endingargóður,“ segir Elísabet.
„Og við höfum svo haldið í það, að
gera bol sem fólk geti notað og finn-
ist flottur.“
Öðruvísi byrjun í ár
„Við erum að gera þetta öðruvísi en
við höfum verið að gera þetta und-
anfarin ár,“ segir Elísabet. „Í fyrra til
dæmis vorum við búnar að blasta
þessu út um allt áður en salan fór í
loftið en í gær sviptum við hulunni
af nýja bolnum,“ segir Elísabet og
segir opnunina hafa verið rólegri í
ár en ekkert verður hins vegar gefið
eftir.
Elísabet segir bolina sérstaklega
töff í ár. Þeir eru svartir með svörtu
letri en B-ið fær að haldast rautt því
þær stöllur vilja undirstrika þessa
góðu línu og eyða út annarri sem er
oft notuð, eins og hún útskýrir það.
„Þessi hugmynd fæddist yfir kaffi-
bolla einhvern tímann fyrir löngu
og svo árið 2017 gerðum við loksins
eitthvað í því.“
Hún segir áhugann hafa aukist
síðastliðin ár. „Svo var þessi spreng-
ing í sölu í fyrra sem kom skemmti-
lega á óvart því þetta var í fyrsta
sinn sem við gátum ekki verið með
viðburð út af svolitlu,“ segir Elísa-
bet. Hún segir drifkraftinn ekki á
undanhaldi hjá þeim vinkonum. n
Berjast enn gegn neikvæðu
tali kvenna um aðrar konur
Elísabet Gunnarsdóttir, Andrea Magnúsdóttir, Aldís Pálsdóttir og Nanna Kristín Tryggvadóttir. MYND/AÐSEND
Guðrún Bjarnadóttir með spil sem
tileinkuð eru flórunni hér á landi.
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|
s
ía
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR
34 Lífið 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ