Fréttablaðið - 24.11.2021, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Í gær bárust mér sorgarfréttir.
Sonur konu sem ég kynntist í
Kaliforníu lést úr hjartastoppi.
Fentanyl fannst í blóði mannsins
sem var 28 ára og vann við að semja
tónlist. Atvik þetta er ekki eins-
dæmi. Andlát af völdum fentanyls
jukust um 56 prósent í Bandaríkj-
unum á síðastliðnu ári. Andstætt
því sem maður gæti haldið eru
fórnarlömbin ekki harðsvíraðir
dópistar, heldur ungt vinnandi
fólk.
Nokkuð auðvelt virðist vera að
nálgast fentanyl. Það er framleitt
í Kína og sent áfram til Mexíkó
þaðan sem því er dreift með nýstár-
legum leiðum sem er ómögulegt að
rekja. Dópsalar götunnar blanda
síðan fentanyl í vörur sínar, en það
hefur verið notað til að þynna út
heróín, metamfetamín og kókaín.
Fentanyl ku vera ódýrt í fram-
leiðslu, en allt að fimmtíufalt
sterkara en heróín. Líka banvænna.
Mælingar sýna að 42 prósent af
pillum innihalda lífshættulegan
skammt. Allavega fyrir óharðnaða.
Og það er engin leið fyrir neyt-
endur að vita hve miklu hefur verið
blandað saman við.
Sem lyf getur fentanyl linað
óbærilega verki sé það gefið rétt og
af lækni, en líkt og með önnur mor-
fínskyld lyf er það misnotað. Það
skil ég að vissu leyti. Morfínskylt
lyf sem ég fékk fyrir mörgum árum
eftir fylgikvilla skurðaðgerðar
sendi mig í aðra vídd. Sæluvídd.
Eftir að áhrifin þurru kölluðu pill-
urnar á mig líkt og gullhringurinn
á Gollum, en ég fékk tvær með mér
heim í nesti. Pillurnar enduðu í
apótekinu til eyðingar en tilhugs-
unin um gullið er mér minnisstæð.
Fentanyl-faraldurinn sýnir ekki
á sér fararsnið og spursmál hvenær
hann nær fótfestu á Íslandi. Sem
móðir ungra drengja hrýs mér
hugur við tilhugsuninni um hið
nýja götulyf. Því það þarf bara eitt
augnablik í partíi. Einum skammti
of mikið. Bara eina pillu. n
Bara ein pilla
Askja · Krókhálsi 11–13, 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
Askja býður öflugar hleðslulausnir fyrir allar stærðir fyrirtækja og heimila.
Nánar á askja.is/hledslulausnir
*Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit sem kaupandi ber kostnað af. Lestu meira um ábyrgðina á www.kia.com/abyrgd.
** Akstursdrægið var mælt í samræmi við staðlaða mæliaðferð ESB (WLTP) og miðast við 77,4 kWh rafgeymastæðu, afturhjóladrif og 19” álfelgur (mynd af ökutæki sýnir það á 20” felgum). Akstursvenjur og aðrir þættir, eins og hraði, útihitastig, landslag og notkun rafknúinna
tækja/eininga hafa áhrif á raunverulegt akstursdrægi og geta dregið úr því.
Ferðalögin sem breyta okkur mest eru þau sem fara með okkur út fyrir
þægindarammann. Með allt að 528 km** drægi fer Kia EV6 með þig í ferðalag
langt út fyrir ystu mörk ímyndunaraflsins.
Komdu og reynsluaktu nýjum Kia EV6.
Við tökum vel á móti þér.
Farðu út fyrir ystu
mörk hugans.
100% rafknúinn Kia EV6.
ALLT AÐ
SPARIÐ 50%
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN