Fréttablaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N lýkur í dag *Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Tilboð gilda í nóvember, eða á meðan birgðir endast. Notalegur Nóvember BROOKE Borðstofustóll. Ýmsir litir. 21.990 kr. Nú 17.592 kr. LUTON Borðstofustóll. Ýmsir litir. 17.990 kr. Nú 13.493 kr. RICHMOND Borðstofuborð. Olíuborinn eikarspónn og gegnheil eik. 220 x 95 x 76,2 cm. 129.990 kr. Nú 103.992 kr. PARIS Hægindastóll. Ýmsir litir. 59.990 kr. Nú 47.992 kr. UMBRIA Tungusófi með hægri tungu. 245 x 163 x 78 cm. 219.990 kr. Nú 153.993 kr. 30% 25% 20% 20% Árni Beinteinn, Vilhjálmur Bragason, Þórdís Björk og Björgvin Franz æfa nú á fullu fyrir Skugga-Svein hjá Leikfélagi Akureyrar og eru byrjuð að stunda hnefaleika til þess að búa sig sem best undir komandi átök við Jón Gnarr í hlutverki útilegu- mannsins goðsagnakennda. toti@frettabladid.is Æfingar á Skugga-Sveini eru í fullum gangi hjá Leikfélagi Akureyrar en verkið verður frumsýnt 14. janúar. Jón Gnarr verður þar í aðalhlutverki útilegumannsins Skugga-Sveins en leikararnir Vilhjálmur Bragason, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Árni Beinteinn og Björgvin Franz láta einnig svo hressilega að sér kveða að ætlast er til þess að þau séu í sínu besta líkamlega formi. „Við þurfum að vera í svolítið góðu formi, sko,“ segir Þórdís Björk. „Leikstjórinn setti þá kröfu á okkur að við myndum nú aðeins koma okkur í gott form fyrir átökin þann- ig að við erum að mæta í ræktina tvisvar á dag,“ segir Þórdís og bætir aðspurð við að um átakasýningu sé að ræða. „Þetta er náttúrlega Skugga- Sveinn og það er verið að leika úti- legumenn, fólk sem býr á fjöllum og er öllu vant, þannig að við þurfum bara að setja okkur svolítið í þau spor.“ Hvað nýtilkomnar hnefaleika- æfingar varðar vísar Þórdís síðan allri ábyrgð á Björgvin Franz. „Þetta er eiginlega Björgvin Franz að kenna. Hann dró okkur eigin- lega í þetta box og við höfum nú bara gaman af.“ Útrás í hringnum „Þetta er allt mér að kenna. Ég fékk þessa biluðu hugmynd,“ segir Björgvin Franz hlæjandi. „En þau eru miklu duglegri en ég. Þau fara í ræktina einu sinni til tvisvar á dag fyrir utan þetta box. Ég læt mér alveg bara nægja að fara í jóga og svo þetta. Ég er orðinn svo gamall og kominn af léttasta skeiði ólíkt börnunum sem ég er með,“ heldur Björgvin áfram og hlær. „Ég hef aldrei verið í eins góðu formi af því box er eitthvað það erfiðasta sem ég hef allavegana gert. Það er ekki það að ég þrái svo mikið að fara að kýla einhvern í hringnum en það er eitthvað bara við hreyfinguna og þessa útrás og svo er þetta svo mikil samhæfing. Gott hópefli Síðan er bara gott að hafa eitthvað fyrir stafni hérna fyrir norðan af því að hér erum við náttúrlega fjarri fjölskyldu og öllu. Þannig að það er bara gott að halda sér uppteknum,“ segir Björgvin og Þórdís tekur undir. „Við erum náttúrlega þrjú af f jórum sem búum í Reykjavík þannig að við höfum svo sem ekki mikið annað að gera hérna heldur en að mæta í ræktina og svo vera að vinna,“ segir hún og hlær. „Þannig að við sáum okkur bara leik á borði. Svo er þetta líka bara gaman og mikil stemning. Gott hópef li að vera alltaf að djöf last saman. Nema náttúrlega þegar við mætumst í hringnum, þá er fjand- inn laus,“ segir Þórdís og hlær. Boxað við helvítin Persónur Þórdísar og Björgvins, Ásta og Lárensíus sýslumaður, eru bæði mjög áfram um að hafa hendur í hári Skugga-Sveins og gefa ekkert eftir frekar en leikararnir í hringnum. „Ég leik hana Ástu sem er alveg grjóthörð og vill verða sýslumaður. Það tíðkaðist kannski ekki á þessum tíma að kona myndi vilja sækja í svoleiðis starf en hún reynir að synda á móti straumnum. Hún er svolítill nagli og vill drepa útilegu- mennina og svona. Þá passar hrika- lega vel að hún sé bara svolítið að boxa þarna við helvítin.“ Björgvin bendir á að í hans hlut- verki sé búið að sameina tvær per- sónur, fyrrnefndan Lárensíus og Sigurð í Dal. „Þeir áttu báðir sam- eiginlegt að vilja klófesta Skugga- Svein þannig að ég er að reyna að klófesta Jón Gnarr út allt leikritið.“ Björgvin bætir hlæjandi við að þau hafi heldur ekki enn náð Jóni í hringinn en það muni koma að því. „Við drögum hann einhvern tímann.“ n Skugga-Sveinn tekinn föstum boxhanskatökum Árni, Vilhjálmur, Þórdís Björk og Björgvin Franz nota tímann vel fyrir norðan og eru klár í slaginn við Jón Gnarr í hlutverki Skugga-Sveins. MYND/LA 26 Lífið 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ odduraevar@frettabladid.is Einar Árnason, tökumaður Stöðvar 2, segist alltaf mæta í sínu fínasta pússi þegar hann mætir fyrir hönd stöðvarinnar á Bessastaði. „Fyrir hverju á maður að bera virðingu fyrir ef ekki lýðræðinu? Það er ekki sjálfsagt!“ Athygli vakti hversu vel til hafður Einar var á Bessastöðum þegar ný ríkisstjórn kom saman í fyrsta sinn. „Ég er bara kurteis og vel upp alinn MR-ingur og þykir þetta bara sjálfsagt.“ Á mynd sem Eyþór Árnason, ljósmyndari Fréttablaðsins, tók af Kristjáni Þór Júlíussyni yfirgefa Bessastaði má sjá glitta í Einar í bak- grunni og glæsileg þverslaufa hans í íslenskum fánalitum er vel sýnileg. „Vonandi er maður ekki að brjóta nein fánalög,“ segir Einar hlæjandi en hann hefur verið tökumaður um margra ára skeið. „En ég held hún sé í lagi.“ Hann segir tökumenn Stöðvar 2 við öllu búna þegar kemur að fataskiptum. „Af og til ertu sendur í jarðarför og þá ferðu bara í svartan jakka og setur á þig bindi. Það er bara virðingarvottur og ekkert annað en sjálfsagt. Maður mætir ekki eins og draugur ef það hæfir ekki tilefninu.“ n Filmar stjórnmálafólk í sínu fínasta Einar Árnason var spari- klæddur þegar hann myndaði Kristján Þór Júlíusson yfir- gefa Bessastaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.