Fréttablaðið - 30.11.2021, Side 10
STÓR PIZZA
PÖNNUTILBOÐ ALLA
DAGA Í NÓVEMBER
1. 590
PEPPERONI • HAWAII • MARGARITA
EF ÞÚ SÆKIR
pizzahut.is - 515 1617 - Smáralind og Staðarbergi 2–4 Hafnarfirði
gar@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Skipulagsfulltrúinn í
Reykjavík segir engar skipulags
legar athugasemdir hafa við að
byggður verði nýr leikskóli á Njáls
götu 89.
Á það er þó bent af hálfu skipu
lagsfulltrúa að samkvæmt fyrirliggj
andi teikningum fari þakkantur
byggingarinnar sextíu sentimetra
yfir hámarkshæð. Borgin geti veitt
undanþágu þegar um svo „verulegt
frávik“ sé að ræða en þó aðeins „að
hagsmunir nágranna skerðist í engu
hvað varðar landnotkun, útsýni,
skuggavarp eða innsýn“, eins og
segir í umsögn embættisins.
Njálsgata 89 er auð lóð aftan
við Austurbæ. Leikskólinn sem
heitir Miðborgarskóli verður tæp
lega fimmtán hundruð fermetrar
á þremur hæðum. Í greinargerð
teiknistofunnar Landslags kemur
fram að leikskólinn verði á neðri
hæðunum tveimur og fjölskyldu
miðstöð á efstu hæðinni.
„Þar er aðstaða fyrir foreldra
ungra barna að læra af öðrum for
eldrum og fagfólki um ýmislegt
sem tengist þroska barna þeirra
eins og umönnun, tilf inninga
tengsl, jákvætt uppeldi, hreyfingu
og málþroska um leið og boðið er
upp á sértæk úrræði og snemm
tæka íhlutun fyrir fjölskyldur í við
kvæmri stöðu,“ segir um fjölskyldu
miðstöðina í greinargerðinni.
Sjálfur Miðborgarskólinn er ætl
aður fyrir 116 börn sem skiptast á
sex deildir. Hann á að koma í stað
inn fyrir leikskólana Barónsborg,
Njálsborg og Lindarborg. n
Fallast á leikskóla á Njálsgötu með
fyrirvara um hagsmuni nágranna
Hönnun byggir á vinningstillögu Basalt arkitekta og Landslags. MYND/LANDSLAG
Tekin hefur verið ákvörðun
um áframhaldandi starfsemi
kvennaathvarfs á Akureyri.
Verkefnastýra athvarfsins
segir þörf fyrir slíkt úrræði.
Sextán hafa dvalið í athvarf
inu það sem af er ári.
birnadrofn@frettabladid.is
AKUREYRI Kvennaathvarfið á Akur
eyri mun halda áfram starfsemi
eftir að tilraunatímabili þess lýkur
um áramót. Athvarfið var stofnaði
í ágúst í fyrra og var fyrst um að
ræða tilraunaverkefni til hálfs árs.
Verkefnið var þá framlengt til næst
komandi áramóta.
„Nú hefur verið tekin ákvörðun
um að athvarfið verði opið áfram og
þá ekki sem tilraunaverkefni. Þetta
eru miklar gleðifréttir,“ segir Signý
Valdimarsdóttir, verkefnastýra
Kvennaathvarfsins á Akureyri og
félagsráðgjafi.
Í Kvennaathvarfið geta konur og
börn sem ekki geta búið heima hjá
sér vegna of beldis leitað og dvalið
sér að kostnaðarlausu. Þar geta þær
fengið ráðgjöf og þjónustu bæði
á meðan á dvölinni stendur og að
henni lokinni.
„Konur sem búa við of beldi en
dvelja ekki hjá okkur geta líka leitað
hingað og fengið ráðgjöf, það er ekki
skylda að dvelja hér,“ segir Signý.
Það sem af er þessu ári hafa sex
tán einstaklingar dvalið í Kvenna
athvarfinu á Akureyri í samtals
600 daga. Signý segir að aldrei hafi
reynt á það að athvarfið fyllist. „Við
tökum bara á móti þeim sem koma
og hagræðum eftir því,“ segir hún.
Signý segir fjölda þeirra sem
leitað hafi í athvarfið í ár svipaðan
og árið á undan. „Þetta sýnir bara
þörfina fyrir svona úrræði á Norð
urlandi,“ segir hún.
„Við vinnum samkvæmt þeirri
hugmyndafræði að konan sé sér
fræðingur í sínum málum og
aðstoðin er tímabundin. Dvalartím
inn er mjög misjafn og fer eftir því
hvað konurnar sem leita til okkar
þurfa,“ segir Signý.
„Við hjálpum þeim að komast í
samband við þá aðila sem þær þurfa
á að halda, sama hvort það er lög
regla, félagsþjónustan eða barna
vernd og hjálpum þeim með aðra
þætti eins og að finna húsnæði,“
segir Signý og bætir við að sam
félagið á Norðurlandi hafi tekið afar
vel í verkefnið. Einstaklingar, félaga
samtök og fyrirtæki hafi staði þétt
við bak athvarfsins og allir séu fúsir
til samstarfs.
„Þegar við opnuðum athvarfið
vissum við ekki alveg út í hvað við
værum að fara en við höfum nýtt til
raunatímabilið vel í að móta starf
semina sem nú getur haldið áfram.
Þetta er búið að standast allar okkar
væntingar og hefur gengið vel,“ segir
Signý.
Kvennaathvarfið á Akureyri er
opið allan sólarhringinn og þangað
má ná í síma 5611206. Einnig má
finna greinargóðar upplýsingar
um of beldi og úrræði því tengd á
heimasíðunni 112.is/ofbeldi. n
Athvarfið áfram á Akureyri
Á Akureyri hafa 16 einstaklingar dvalið í alls 600 daga, sem verkefnastýran segir sýna þörfina. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Þetta sýnir bara þörf-
ina fyrir svona úrræði á
Norðurlandi.
Signý Valdimarsdóttir,
verkefnastýra Kvennaathvarfsins
á Akureyri
10 Fréttir 30. nóvember 2021 FRÉTTABLAÐIÐ