Fréttablaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 28
Ég skal alveg viður-
kenna það að ég var
frekar stressaður þegar
ég labbaði inn á völl-
inn fyrir framan 15.000
áhorfendur … Svo þegar
ég komst í snertingu
við boltann þá hvarf
skrekkurinn.
Adam Ingi Benediktsson
Ég tel okkur ekki þurfa
einhverjar sérstakar
aðferðir til að koma
þeim í gang.
16 Íþróttir 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR
Ég hef trú á
því að
Heimir og
Arnar geti
myndað
gott teymi.
Heimi heim
n Utan vallar
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
FÓTBOLTI Arnar Þór Viðarsson,
landsliðsþjálfari Íslands í knatt-
spyrnu karla, leitar sér nú að nýjum
samstarfsmanni. Stjórn sambands-
ins tók þá ákvörðun í síðustu viku
að segja upp samningi sínum við Eið
Smára Guðjohnsen sem hafði verið
samstarfsmaður Arnars í eitt ár hjá
landsliðinu.
Mikið hefur gengið á í kringum
landsliðið þetta ár sem þeir félagar
voru saman í starfi og erfitt að segja
til um hæfni þeirra sem þjálfara. Það
er hins vegar ljóst að Arnar vantar
þjálfara með talsvert mikla reynslu
til að aðstoða sig í gegnum þá erfiðu
tíma sem munu án nokkurs vafa
halda áfram á næsta ári. Verið er
að byggja upp nýtt landslið og alls
óvíst hversu margar, ef einhverjar,
af gömlu hetjum liðsins snúa aftur.
Þannig vill svo til að besti þjálfari
í sögu íslenska landsliðsins er án
vinnu, Heimir Hallgrímsson hefur
ekki verið með þjálfarastarf síðasta
hálfa árið. Eftir tvö og hálft ár í Katar
ákvað Heimir að kveðja Al-Arabi og
hefur síðan þá leitað sér að næsta
starfi.
Knattspyrnusamband Íslands og
Arnar Þór ættu án nokkurs vafa að
leita til Heimis og reyna að fá hann
til að þjálfa liðið með Arnari. Heimir
þekkir það manna best að tveggja
manna þjálfarateymi getur virkað
með íslenska landsliðið. Heimir og
Lars Lagerbäck þjálfuðu liðið saman
þegar það komst inn á Evrópumótið
árið 2016. Heimir tók síðan einn
við keflinu í tvö ár og kom íslenska
liðinu á Heimsmeistaramótið árið
2018.
Arnar gat ekki unnið með Lars
Lagerbäck á þessu ári og var ákveðið
Heimir Hall-
grímsson er án
þjálfarastarfs og
Arnar Þór Við-
arsson vantar
aðstoðarmann.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
að slíta samstarfinu, hann þarf hins
vegar að átta sig á því að maður með
reynslu gæti reynst honum happa-
fengur nú þegar Eiður Smári er horf-
inn á braut.
Ég hef trú á því að Heimir og
Arnar geti myndað gott teymi til
að leiða íslenska liðið í gegnum þær
breytingar sem eru að eiga sér stað.
Heimir íhugaði að taka við Stjörn-
unni á dögunum en starfið hjá KSÍ
gæti heillað hann. Mikilvægt er fyrir
íslenska landsliðið að fá inn mann
sem kann uppskriftina að árangri.
Arnar og KSÍ, reynið að fá Heimi
heim. n
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ísland mætir Kýpur ytra
í dag í undankeppni HM 2023 í fót-
bolta kvenna. Ísland er fyrir leikinn
í öðru sæti síns riðils með sex stig
eftir þrjá leiki.
Íslenska liðið kemur fullt sjálfs-
trausts inn í þennan leik eftir góðan
2-0 sigur á móti Japan í vináttu-
landsleik liðanna á fimmtudaginn
í síðustu viku.
Þorsteinn Hreiðar Halldórsson,
þjálfari íslenska liðsins, segir alla
leikmenn liðsins klára í slaginn
fyrir leikinn gegn Kýpur. Þorsteinn
segist ekki hafa áhyggjur af því að
leikmenn sínir komi ekki gíraðir í
verkefnið en Ísland og Kýpur mætt-
ust fyrir rúmum mánuði síðan á
Laugardalsvelli og þá vann Ísland
5-0 sigur.
„Ég held að allir skilji mikilvægi
leiksins. Ég tel okkur ekki þurfa
að vera með einhverjar sérstakar
aðferðir til að koma þeim í gang.
Held að það skilji allir að þessi
leikur er jafn mikilvægur og allir
aðrir,“ segir Þorsteinn um komandi
verkefni.
Glódís Perla Viggósdóttir, mið-
vörður íslenska liðsins, tók í sama
streng og þjálfari hennar: „Við eigum
aldrei í vandræðum með að mótívera
okkur. Við lítum á þennan leik eins
og hvern annan leik, það eru þrjú stig
í boði og við ætlum að taka þau.“ n
Ekki hrædd
um vanmat hjá
íslenska liðinu
Rúmur mánuður er síðan íslenska
liðið vann Kýpur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tveir íslenskir leikmenn léku
um síðustu helgi sína fyrstu
leiki í sænsku úrvalsdeildinni
í fótbolta karla. Hinn 19 ára
gamli Adam Ingi Benedikts-
son stóð á milli stanganna hjá
Gautaborg og Jóhannes Krist-
inn Bjarnason, sem er 16 ára
gamall, lék fyrir Norrköping.
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Adam Ingi Bene dikts son
þreytti á sunnudaginn frumraun
sína í sænsku úrvalsdeildinni í fót-
bolta karla. Adam Ingi nýtti tæki-
færið vel en hann varði mark Gauta-
borgar í 4-0 sigri gegn Östersund.
Þessi 19 ára gamli markmaður
var 16 ára þegar hann gekk til liðs
við Gautaborg frá HK sumarið 2019
en hann lék einnig með FH í yngri
f lokkum hér heima. Adam Ingi er
hins vegar fæddur í Grundarfirði.
Hjá Gautaborg lék Adam Ingi
fyrst um sinn undir stjórn Hjálmars
Jónssonar með U-19 ára liði félags-
ins og nú þremur árum seinna hefur
hann spilað leik með aðalliðinu.
„Ég skal alveg viðurkenna það að
ég var frekar stressaður þegar ég
labbaði inn á völlinn fyrir framan
15.000 áhorfendur. Ég fékk að vita
það degi fyrir leik að aðalmark-
maðurinn væri tæpur vegna meiðsla
og ég fengi sénsinn.
Ég náði ekki alveg að meðtaka það
hversu stórt þetta væri þegar ég fékk
þær fregnir og stressið byrjaði síðan
að magnast á leikdegi. Svo þegar ég
komst í snertingu við boltann þá
hvarf skrekkurinn og ég náði að
halda hreinu sem er frábært,“ segir
Adam Ingi um frumraun sína.
„Þetta tækifæri er að koma fyrr en
ég hélt. Ég hef verið að æfa með aðal-
liðinu á þessu tímabili eftir að hafa
æft og spilað með U-19 ára liðinu
hjá Hjálmari síðan ég kom. Þetta
er mjög kærkomið og mikill heiður
fyrir mig,“ segir markvörðurinn sem
er þriðji markvörður hjá Gautaborg.
Sýndi sig í fjölskylduferð
„Það var í raun tilviljun að ég fengi
samning hjá Gautaborg. Ég fékk að
æfa með U-19 ára liði félagsins á
meðan ég var í fjölskylduferð í borg-
inni. Ég hafði samband við Hjálmar
sem leyfði mér að æfa með liðinu.
Í kjölfarið fór boltinn að rúlla
og ég endaði á að skrifa undir hjá
Gautaborg. Félagið er með eina
bestu akademíu Svíþjóðar og þekkt
fyrir að gefa ungum leikmönnum
þaðan tækifæri með aðalliðinu og
selja þá svo til stærri liða.
Það var stærsta ástæðan fyrir því
að ég ákvað að semja við Gautaborg.
Þessi fjölskylduferð borgaði sig svo
sannarlega,“ segir hann.
„Ég hef fengið fjölmörg skilaboð
í dag frá vinum og ættingjum sem
ég kann vel að meta. Grundfirðingar
eru greinilega mjög stoltir af mér
og ég hef fengið fullt af skilboðum
þaðan,“ segir Adam Ingi.
„Eftir leikinn fékk ég góð við-
brögð frá þjálfaranum og mark-
mannsþjálfaranum. Ég fékk hins
vegar mun ítarlegri skýrslu frá
pabba sem mætir á alla leiki hjá mér
og bróður mínum sem hann kemst
á en fjölskyldan flutti með mér út.
Þegar leikjunum lýkur fáum við
að vita nákvæmlega hjá honum
hvað gekk vel að hans mati og hvað
má bæta. Það er sko ekki töluð vit-
leysan þar,“ segir þessi metnaðar-
fulli leikmaður.
Adam Ingi var ekki eini íslenski
leikmaðurinn sem fékk eldskírn í
sænsku úrvalsdeildinni um helg-
ina. Jóhannes Kristinn Bjarnason,
sem færði sig um set til Norrköping
frá KR í mars síðastliðnum, lék
sinn fyrsta leik fyrir sænska liðið.
Jóhannes Kristinn er 16 ára og níu
mánaða gamall en hann er næst-
yngsti Íslendingurinn til þess að
spila í atvinnumannadeild í fót-
bolta karla. Frændi hans, Ísak Berg-
mann Jóhannesson, var 16 ára og 6
mánaða gamall þegar hann lék með
sænska liðinu árið 2019.
Í október lék svo markmaðurinn
Hákon Rafn Valdimarsson sína
fyrstu deildarleiki í sænsku úrvals-
deildinni með Elfsborg. Það er því
óþarft að kvíða framtíðinni hvað
markmannsstöðuna hjá Íslandi
varðar. Elías Rafn Ólafsson hefur
verið að fá leiki hjá Midtjylland
í dönsku úrvalsdeildinni, Patrik
Sigurður Gunnarsson er fastamað-
ur hjá Viking Stavanger í norsku
úrvalsdeildinni og Jökull Andrés-
son ver mark Morecambe í ensku
C-deildinni. Þessir markmenn eru
allir í kringum tvítugsaldurinn.
Þá er Rúnar Alex Rúnarsson 26
ára gamall en hann lék á dögunum
sinn fyrsta leik í belgísku efstu
deildinni fyrir OH Leuven, þar sem
hann er í láni frá Arsenal. n
Fær skýrslu frá pabba eftir alla leiki
Adam Ingi Bene-
diktsson hefur
verið á mála
hjá Gautaborg
í þrjú ár en það
var fjölskyldu-
ferð sem var
kveikjan að því
að hann komst
inn á radarinn
hjá sænska fé-
laginu.
MYND/GAUTABORG