Heilsuvernd - 01.12.1946, Page 21

Heilsuvernd - 01.12.1946, Page 21
Jónas Kristjánsson: Munurinn á almennum lækningum og náttúrulækningum. Náttúrulækningastefnan, eins og hinir lærðustu lækn- ar hafa skýrt liana og skilgreint, t. d. dr. John JJarvey Kellogg í Ameríku, dr. Bircher-Benner í Sviss og pró- fessor Alfred Brauchle í Þýzkalandi, er frábrugðin hinni almennu háskólalæknisfræði í allþýðingarmiklum grundvallaratriðum, er snerta líf og' heilsu manna og lækningu á sjúkdómum. Mikill hluti starfs flestra lækna fer til þess að gera við sjúkdómseinkenni, án þess að skeytt sé um orsakir þeirra, sem eru annaðhvort tald- ar óþekktar eða eru ekki viðurkenndar. Náttúrulæknarn- ir skýra heilbrigði og sjúkdóma út frá þeim grundvelli, að allt líf á jörðu hér er háð ákveðnu náttúrulögmáli og heilbrigði og þroski séu bundin við hlýðni og holl- ustu við þetta lögmál. Náttúrulæknirinn segir sem svo: 1. Flestir sjúkdómar eru afleiðingar af ónáttúrlegum lifnaðarháttum, t. d. óeðlilegu mataræði, neyzlu eitur- lyfja eða nautnavara, óheppilegum vinnuskilyrðum, slæmu andrúmslofti, lítilli lireyfingu og útivist o. s. frv. 2. Eina leiðin til að útrýma þessum sömu sjúkdóm- um er að ráða bót á orsökunum, þ. e. færa lifnaðarhætt- ina í náttúrlegt horf, eftir því sem við verður komið. Ef þetta væri gert, mundu sjúkdómarnir hverfa af sjálfu sér. 3. Bezti læknirinn er náttúran sjálf, þ. e. lækninga- máttur hins rétt nærða líkama. Áhrifaríkasta aðferðin

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.