Heilsuvernd - 01.12.1946, Blaðsíða 30

Heilsuvernd - 01.12.1946, Blaðsíða 30
22 HEILSUVERND í húðsjúkdómum, sem gaf mér úrskurð um, að þetta væri eksem. Hann ráðlagði mér Ijóslækningu, er ég skyldi taka í röntgendeild Landsspítalans í nokkur skipti til reynslu. Eftir að ég hafði verið þar nokkrum sinn- um í ljósum, brá svo við, að sárið fór að þorna upp og gróa, og var það að fullu gróið eftir mánaðartíma. Kunni ég mér nú ekki læti og var að vonum ánægður yfir þessari skjótvirku læknisaðferð, er reyndist með slík- um ágætum. Skammvinnur vermir. En þetta varð því miður stutt gaman. Eftir tæpa 6 mánuði fékk ég lítilsháttar úthrot á vinstri fótlegg, er smáágerðist, eftir því sem dagar liðu. Fyrst í stað hafði ég ekki ýkja mikinn ldáða eða sviða í þessum nýju útbrotum. En þar kom, að ég' taldi ráð- legra að leita til míns ágæta sérfræðings aftur. En í þetta sinn taldi hann , að hin nýju útbrot, sem einnig voru eksem, væru ekki þess eðlis, að Ijóslækning kæmi að gagni. I þess stað ráðlagði hann mér nú áhurð, er ég skyldi bera vandlega á sárið daglega og', leggja svo umhúðir yfir. Gerði ég eins og' fyrir mig var lagt, og virtist svo sem sárið ætlaði áð gróa. En þegar minnst varði, hljóp í það ofsakláði samfara mikilli úrferð, og vessaði og' vall úr oft án afláts dögum saman. Fór þessu fram um langan tíma, að sárið ýmist greri eða spillt- ist, samfara óþolandi ertingi og óþægindum. Það skal tekið fram, að ég geng' þess ekki dulinn, að máske liafi einhverju verið ábótavant með umhirðu sársins; ef til vill hefi ég ekki verið nógu árvakur að skipta um áburð og umbúðir, er sjúkdómurinn var á þessu stigi, þótt vissulega væri ég orðinn vel öruggur og þjálfaður í þessu. Og svo liðu dagar, mánuðir og ár, að hvorki rak né gekk með þennan þráláta sjúkdóm. Ég var satt að segja farinn að taka þessum ófögnuði með umburðarlyndi hins langþjáða manns, er setur allt sitt traust á vísinda- legar niðurstöðu sérfræðinnar og' bíður átekta.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.