Heilsuvernd - 01.12.1946, Qupperneq 24

Heilsuvernd - 01.12.1946, Qupperneq 24
16 HEILSU'VERND altítí, að læknar geta ekki, þrátt fyrir nákvæmar rannsóknir á sjúklingnum, gefið sjúkdómi hans neitt nafn. Og oft finna þeir ekkert athugavert við líffæri og líkamlegt ástand sjúklingsins, jafnvel þótt hann sé sár- þjáður. Það er þvi ástæða til að spyrja: Eru miklar líkur til þess, að læknirinn geti ráðið niðurlögum sjúkdómsins, þegar hann veit ekki, af hverju hann stafar og þekkir jafnvel ekki nafn lians? Er hægt að tala um „vísindr4 og „vísindalegar“ lækningaaðferðir, þegar sjálfa und- irstöðuna vantar, þegar orsakirnar eru óþekktar? Er ekki við því að húast, að baráttan við sjúkdóma, eða öllu heldur við sjúkdcmseinkenni, án þekkingar á orsökum þeirra og innbyrðis sambandi, verði óákveðið fálm og árangurinn undir tilviljun kominn? En einmitt þetta liefir skapað jarðveg fyrir náttúrulækningastefnuna. Aðferðir náttúrulækna á hinn bóginn eru raunhæfar og vísindalegar. Þær byggjast á þeim grundvelli, sem lýst er í upphafi þessa máls, á lögmáli orsaka og afleið- inga. Venjulegir læknar spyrja sjúklingin sjaldnast um mataræði hans og lífsvenjur, og virðast líta svo á, að þetta komi sjúkdóminum alls ekki við nema í viss- um sjúkdómum, svo sem skyrbjúgi og öðrum „fjörefna- sjúkdómum“. Náttúrulæknirinn yfirheyrir sjúklinginn hinsvegar rækilega um allt líferni hans í fortið og nú- íið og reynir þannig að finna, hvar skórinn kreppir. Á þeirri yfirheyrslu, svo og ýtarlegri rannsókn á sjúkl- ingnum sjálfum, byggir hann svo lækningaaðferðina. Það er þvi á miklum misskilningi byggt, þegar því er haldið fram, að aðferðir náttúrulækna séu óvísindaleg- ar. Að sumu leyti byggist þessi misskilningur á því, sem getið var hér á undan, að ekki eru allt náttúrulæknar, sem kalla sig eða eru kallaðir því nafni; meðal þeirra eru margir „fúskarar“, eins og meðal læknanna sjálfra. Og á hinn bóginn stafar þessi misskilningur af því, að náttúrulæknar nota minna af svonefndum „hálærð-

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.