Heilsuvernd - 01.03.1949, Page 39
HEILSUVERND
31
enginn tannsteinn. Grófmeti, sem útheimtir mikla tyggingu, epli og
aðrir nýir ávextir hreinsa tennurnar betur en nokkur tannbursti.
Ef tannsteinn er kominn á tennurnar, verður að láta tannlækni
hreinsa hann burtu.
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG SIGLUFJARÐAR
hélt aðalfund sinn 25. febrúar s.l. Fundurinn hófst með félagsvist.
Að henni lokinni voru bornar fram veitingar, en meðan fundarmenn
nutu þeirra, voru tekin fyrir hin venjulegu aðalfundarstörf. Þá var
sýnd ein af fræðslukvikmyndum þeim, sem NLFl hefir nýlega keypt,
og fjallar um öndunina. Þar næst sungu 3 stúlkur með gítarundir-
leik, síðan las einn félagsmaður upp frumsamin kvæði og stökur, þá
voru sungnar gamanvísur um stjórn félagsins o. fl., og að lokum var
dansað til kl. 1. Fundinn sátu 84 félagar og gestir, sem skemmtu sér
hið bezta. Á fundinum létu yfir 20 manns skrá sig í félagið, sem telur
nú rúmlega 100 félaga.
LÆKNINGAMÁTTUR GRÆNKÁLS.
Danskur maður, A. Ludvigsen að nafni, segir frá því í marzhefti
tímaritsins „Ny tid og vi,“ að hann hafi fengið bót á langvarandi
heilsuleysi með grænkálssafa. Hann saxaði grænkálið í kjötsöxunar-
vél og bættl í það köldu vatni, þannig að úr varð þunnur grautur,
breiddi klút yfir og lét standa í klukkutíma. Þá lét hann þetta
ganga gegnum kartöflupressu og borðaði grautinn síðan með skeið,
tuggði hann vel og lét hann blandast munnvatninu rækilega. Hann
borðaði hálfan disk af þessu á hverju kvöldi um skeið og varð sem
nýr maður á 10 til 12 dögum. Tólf ára gömul dóttir hans, sem kvart-
aði um þreytu og slen á morgnana og í skólanum, tók upp sama
ráð með þeim árangri, að þreytan hvarf samstundis, og einkanabókin
sýndi, að henni gekk námið betur en áður. — Ludvigsen átti vanda
til að fá kvef og inflúensu tvisvar til þrisvar á hverjum vetri með
slæmum eftirköstum. Lyf og fjörefnagjafir gátu enga bót ráðið á
kvillasemi hans. En siðan hann tók upp grænkálsneyzluna, hefir
heilsa hans verið hin ákjósanlegasta.
Grænkál ætti aldrei að sjóða, segir Ludvígsen. Þegar það er
notað í súpur, er það saxað og hrært saman við súpuna, nokkrum
mínútum eftir að suðan er farin af henni. 1 jafninga er það sett á
sama hátt, eftir að jafningurinn er fullgerður.
Saxað grænkál er ágætt sem álegg á brauð.
Þeir, sem þola ekki að borða grænkálið sjálft hrátt, verða að
láta sér nægja að pressa safann úr því, eftir að það hefir verið saxað.