Heilsuvernd - 01.03.1954, Blaðsíða 10
Jónas Kristjánsson:
Krabbameinið
Krabbameinið vekur hvarvetna, er þess verður vart, ugg
og ótta, og er það næsta eðlilegt, þar sem það er orðið
dauðaorsök nr. eitt í hinum svokallaða siðmenntaða heimi.
Enda hefur krabbameinið verið kallað „Bleiki dauðinn".
Aðalvopnin: geislalækningarnar og hnífurinn, hafa reynzt
veik vopn í baráttunni gegn krabbameininu og mun svo
verða framvegis. Skurðaðgerð við innvortiskrabba er hæp-
in og veitir tíðast aðeins stundarfrest, í einstöku tilfellum
nokkur ár. En við útvortiskrabba hefur skurðaðgerð oft
heppnast.
I flestum löndum hins siðmenntaða heims hafa verið
stofnuð krabbameinsfélög, og hafa læknar tíðast haft for-
gönguna og leitað stuðnings almennings.
Vissulega vildi ég óska þess, að árangur þessara félags-
saihtaka yrði sem mestur í baráttunni gegn þessum sjúk-
dómi sjúkdómanna. En því miður er iítil von árangurs,
meðan forystumennirnir þekkja ekki orsakir sjúkdómsins
og vita því ekki, hvar þeir eiga að byrja. Og í sjúkrahús-
unum stendur baráttan aðallega við sjúkdómseinkenni, en