Heilsuvernd - 01.03.1954, Blaðsíða 11
HEILSUVERND
3
ekki við sjálfar orsakir sjúkdómanna. Og meðan svo er,
getur ekki verið nema um hálfan sigur að ræða. Meðan
orsakir sjúkdómsins eru fyrir hendi, er sjúkdómurinn ekki
kveðinn niður. Hið eina, sem dugar, er að gera sér grein
fyrir orsökunum og uppræta þær.
Flestir munu hafa heyrt getið um þau ráð, sem hinn
kunni danski læknir, Kirstine Nolfi, greip til, er hún fékk
hraðan æxlisvöxt í annað brjóstið. Sem lækni var henni
vel kunnugt um, hve tvíræð skurðaðgerð gegn krabba er.
Hún afréð því að leggjast ekki undir hnífinn, en hvarflaði
í þess stað úr fjölmenninu og stundaði sólböð, sjóböð og
útiveru, auk þess sem hún hvarf frá hinni venjulegu soðnu
fæðu og neytti einungis lifandi jurtafæðu, ávaxta og
mjólkur.
Æxlið hvarf á tæpu ári. Og síðan eru um 15 ár. „Bleiki
dauðinn" hafði látið undan síga, ekki fyrir hnífnum, heldur
fyrir heilbrigðum lifnaðarháttum. Þessari viljasterku, vitru
konu opnaðist nú nýr skilningur á orsökum sjúkdóma. Og
hún byrgði ekki ljós sitt undir mælikeri, heldur hófst handa
og stofnaði hæli, þar sem leikir og lærðir geta notið hinna
sömu lifnaðarhátta, sem veittu henni á ný heilsu og aukinn
lífsþrótt. Og þangað hafa þúsundir manna sótt endurnýj-
aða heilsu og skilning á lögmálum heilbrigðinnar. Enda
virðist almenningur ætla að öðlast skilning í þessum efnum
á undan hinum lærðu læknum.
Á fyrsta tug þessarar aldar var safnað mikilli fúlgu fjár
í London til að rannsaka orsakir krabbameins. Framkvæmd
rannsóknanna var falin lækni, sem ötulast barðist fyrir
söfnuninni og talsvert hafði kynnt sér krabbameinsrann-
sóknir, dr. J. A. Murraey.
Hann útvegaði sér f jölda af rottum og öðrum smádýrum,
sem hann notaði við tilraunir sínar. Er hann hafði unnið
að rannsóknum sínum og tilraunum um hátt á annan tug
ára, var mjög þorrin fjárfúlgan, og skýrði hann þá frá
árangri rannsóknanna. Reyndist hann því miður enginn.