Heilsuvernd - 01.03.1954, Qupperneq 12
4
HEILSUVERND
Og því miður hafa krabbameinsrannsóknir litlum árangri
skilað hingað til.
Til eru samt óteljandi vitnisburðir ágætra lækna, sem
hafa bent á, að krabbameinið sé menningarsjúkdómur, al-
inn af sjúklegri menningu. En þessar raddir hafa verið
kæfðar af steinblindum efnishyggjumönnum.
Hinn frægi brezki skurðlæknir, sir Lane, segir á einum
stað: „Vér læknar höfum ekki gefið gaum að því, að
krabbameinið er menningarsjúkdómur, sem tæplega kem-
ur fyrir meðal frumstæðra þjóða. Krabbameinið er menn-
ingarsjúkdómur, sem varðar alla alþýðu manna ekki síður
en lækna. Krabbameinið er eins og hárbeitt sverð, sem
hangir á veikum þræði yfir höfði hvers manns. Ég heiti
því að deyja ekki úr krabbameini, þar sem ég tel mig
kunna ráð til þess að koma í veg fyrir það. Og það, sem
ég geri, gæti hver maður annar gert. Og hví ættum vér
ekki að geta verið lausir við krabbamein, eins og frumstæð-
ar þjóðir eru það?
Hver er orsök þess, að krabbameinið vex, hvar í líkam-
anum sem er? Skortur á innvortis hreinlæti. Menn ganga
um sem eins konar saurvilpur, og rotnunin berst inn í blóð-
ið til allra fruma líkamans, er veiklast fyrir áhrif rotn-
unarefnanna. Krabbameinið er vottur um innvortis mengun
og afleiðing hennar. Enginn þarf að taka kabbamein, nenni
hann að leggja á sig þá áreynzlu að koma í veg fyrir orsakir
þess“.
Orð þessa fræga skurðlæknis og eins mesta mennta-
manns, sem Englendingar hafa átt, ættu sem flestir að
festa sér í minni.
Dr. Robert Bell segir: „Krabbameinið er sjúkdómur, sem
unnt er að koma í veg fyrir. Eftir 25 ára starf við að rann-
saka mörg hundruð manna með krabbamein, verð ég að
líta á krabbameinið sem ok, er menn hafa sjálfir lagt sér
á herðar“.
* * *