Heilsuvernd - 01.03.1954, Síða 16

Heilsuvernd - 01.03.1954, Síða 16
8 HEILSUVERND Þessi síðasta hreyfing veldur því, að kviðarholið dregst ofurlítið inn, og verður það bæði til þess að veita lungun- um stuðning og hjálpa til þess að fylla efri hluta lungn- anna lofti. Þess ber vel að gæta, að andardrátturinn má ekki vera rykkjóttur. Hér verður að vera um eina samfellda hreyf- ingu að ræða, enda þótt áfangar hennar séu þrír, ef svo mætti segja. Loks kem ég að því atriði, sem fræðimenn í þessum efnum leggja mikla áherzlu á. Á ég við það, að andradrátt- urinn sé sem allra hljóðastur. Segja sumir, að æskilegast sé, að hann sé svo hljóður og rólegur, að ljós bærist ekki, enda þótt borið sé alveg að nösum þess, sem andar. — Menn eiga með öðrum orðum ekki að vera neinir hávaða- menn á þessu sviði fremur en öðrum. Ég hygg, að hljóð- laus öndun og nægilega djúp sé í raun og veru eitt og hið sama, og skilst þá þýðing hinnar hljóðlausu öndunar. Nú vil ég, áheyrendur góðir, biðja yður að prófa einhvern- tíma hina fullkomnu Yogaöndun, t. d. ef þér eruð þreyttir og þarfnist hvíldar. Leggist upp í legubekk eða rúm. Slakið á öllum taugum og vöðvum. Andið djúpt og reglulega á þann hátt, er ég hefi lýst, í 5 mínútur eða svo. Til þess að sjá fyrir því, að andardrátturinn sé reglulegur, þ. e. að innöndun og útöndun sé jafn löng, er gott að velja sér eitthvert orð til þess að fara með í huganum um leið og andað er inn og út, t. d. sanskrítarorðið Aum (frb. óm). Orðið verður þá einskonar tímamælir. Ef vel tekst til, mun yndisleg ró færast yfir taugakerfið, og þér munuð í fyrsta sinn vita, hvað hvíld. er. Ein afleiðing þessarar fullkomnu öndunar, ef hún er að staðaldri iðkuð, er sú, að hrukkur hverfa af andliti. Hör- undið verður slétt og mjúkt. Ætti þetta að vera góð tíðindi fyrir konur, enda myndu þær áreiðanlega geta sparað sér mörg fegrunarmeðul, ef þær kynnu að anda á réttan hátt. — önnur afleiðing fullkominnar öndunar, sem iðkuð er að staðaldri, er sú, að röddin verður þægileg og fögur.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.