Heilsuvernd - 01.03.1954, Page 18
10
HEILSUVERND
Ég vona, að af þessu, sem hér hefir sagt verið, þótt allt
of lítið og ófróðleg sé, megi þó ljóst vera, að ekki eigi illa
við að líkja réttri meðferð á andardrættinum við hinn fína
silkiþráð, sem varð til þess að bjarga lífi ráðherrans, sem
ég sagði frá í upphafi máls míns. — Er og enginn efi á því,
að hinn fíni silkiþráður öndunarvísindanna gæti bjargað
mörgu mannslífi, sem annars væri dæmt til margs konar
þjáninga eða jafnvel tortímingar. — En ég valdi þessa sögu
um silkíþráðinn einnig af öðrum ástæðum. Það er svo um
hina líkamlegu heilsu — eins og um andlega heilsu — að
þar kemur margt til greina, og sumt af því er svo einfalt
og lætur svo lítið yfir sér, að flestum sést yfir það. Mönn-
um finnst það smámunir einir. — En það er einmitt sumt
af þessum „smámunum", sem hefir úrslitaþýðingu fyrir
líf og heilsu manna.
„Náttúrulækningafélag íslands“ er merkilegt félag og
athyglisvert, meðal annars vegna þess, að það hefir opin
augu fyrir þessum sannleika og leitast einnig við að opna
auga annarra fyrir hinum sama sannleika. — Það er þessi
fíni silkiþráður nákvæmni og vakandi athygli um alla lífs-
hætti, sem enginn hefir ráð á að fyrirlíta, jafnvel þótt hann
sé ekki staddur uppi á neinum turni, þar sem hann bíður
dauðans, eins og ráðherrann í sögunni. Þess vegna vildi
ég óska, að Náttúrulækningafélag Islands yrði sem fjöl-
mennast. Það hefir verið svo heppið að fá góða forustu,
sem er þess eðlis, að jafnvel hin allra rétttrúuðustu lækna-
vísindi geta ekki látið sér nægja að hrista aðeins höfuðið.
— Og af þeim sökum meðal annars er ég að vona, að fleiri
en ella fáist til að gefa félaginu gaum og boðskap þess — fá-
ist til þess að taka í silkiþráðinn og draga hann að sér og
heilsu og líf um leið!
Grétar Fells.