Heilsuvernd - 01.03.1954, Blaðsíða 26
18
HEILSUVERND
Framhald af bls. 15.
ig sem viðbitj einkum hjá fátækara fólki. Á sumrin nota
Búlgarar oftast þunnt skyr, er líkist mjög íslenzkri súr-
mjólk, en er þó ekki eins súrt.
n.
KEFlRMJÓLK.
Kefírmjólk er súrmjólk, sem er uppáhalds drykkur
Múhameðstrúarmanna. Mjólkin er sýrð með fræi af gras-
tegund einni (Panicum), sem ræktuð er í Suður-Evrópu.
Grasfræ þetta er ekki ósvipað rúgi, og er oft nefnt spá-
mannskorn. Nafnið mun stafa frá Múhameð spámanni, og
er sagt, að hann hafi lýst velþóknun sinni á þessari korn-
tegund. Á korninu vaxa oft nokkurskonar æxli, og eru í
þeim bæði gersveppir og súrgerlar, sem gera mjólkina súra
og áfenga. Fyrst er kornið látið í mjólk til gerðar. Kefír-
mjólk er dálítið áfeng, freyðir mikið og lítur glæsilega út
í vínglösum. Eftir gerðina setjast draflakekkir á botn iláts-
ins. Þeir eru oft marðir í sundur og borðaðir með útáláti,
eins og íslenzkt skyr. Kefírmjólkin hefir það orð á sér, að
hún bæti meltinguna og jafnvel blóðleysi.
m.
MAZUNMJÓLKIN.
Mazun-súrmjólk líkist nokkuð Kefír. Hún er armensk að
uppruna, og er vanalega búin til úr geitamjólk. Mjólkin er
sýrð með einskonar þétta, sem hefur að geyma gersveppi
og súrgerla. Eftir gerðina er þykkt mauk á botni kersins;
því er oft hnoðað saman við mjöl og þurrkað, síðan mulið,
soðið með hrísgrjónum og blandað ýmsu kryddi. Þykir það
ljúffengur réttur. Armeningar sýra smjör með Mazunsúr-
mjólkinni og nota hana einnig að nokkru leyti við brauð-
gerð.
IV.
KUMYSMJÓLK.
Kirgisar og aðrar hjarðamannaþjóðir gera súrmjólk sem
kumys nefnist, og er sagt, að hún dragi nafn sitt af ættlegg