Heilsuvernd - 01.03.1954, Page 36

Heilsuvernd - 01.03.1954, Page 36
28 HEILSUVERND þumbaldi gæti aldrei náð slíkum árangri, hversu trúverð- ugur sem hann væri. Prúðmennska, lipur ýtni, þægileg framkoma einkennir Jón Halldórsson. Það var félaginu því mikið happ, er hann réðist til innheimtustarfanna. Hann er sá starfsmaður samtakanna, sem persónulega snertingu hefur við flesta félagsmenn og fjölda utanfélagsmenn, sem hann hefur heimsótt og selt bækur N.L.F.f. Og ég hef góðar heimildir fyrir því, að J. H. gefur sér alltaf tíma til að rabba við og fræða þá, sem ókunnir eru stefnunni. Hann hefur því ekki einungis verið innheimtumaður, heldur einnig, og gamanlaust sagt, eins konar útbreiðslumálaráð- herra og áreiðanlega ekki án árangurs. Hann er einn þeirra manna, sem leggja sig alla í hvert verk, sem þeir vinna, og vinna því hvert verk vel. Heilsuvernd flytur J. H. þakkir samtakanna fyrir ágæta- vel unnin störf, og vonar, að enn sé löng samvinna fyrir höndum, þótt hann sé kominn hátt á þriðja aldarfjórðung- inn og farinn að lýjast fótur. Félagsmenn geta sýnt vott þakklætis með því að spara honum sporin nema einu sinni til að vitja félagsgjaldanna. M. M. Sk. Préttir af félagsstarfi og framkvæmdum. í siðustu viku febr. var haldinn aðalfundur Náttúrulækninga- félags Reykjavíkur (N.L.F.R.). Stjórnin var endurkosin: Formaður, Böðvar Pétursson, kennari, og meðstjórnendur, Hjörtur Hansson, kaupm., frú Steinunn Magnúsdóttir, Ingólfur Sveinsson, lögreglu- þjónn, og Marteinn M. Skaftfells, kennari. 90 nýir félagar gengu inn á árinu og var félagatalan um áramót 962, svo að straumnum er að minnsta kosti í bili snúið við og fé- lagatala aftur hækkandi. Síðan um áramót liefur fjölgað til muna. Ástæðan til þessara straumhvarfa er án efa Pöntunarfélag N.L.F.R., sem stofnað var á árinu og í október breytt í verzlun, sem er öllum opin og ört vaxandi frá byrjun. í pöntunardeildina gengu í upphafi um 200 manns. Félögum hefur síðan farið stöðugt fjölgandi, en þó ekki eins ört og ætla mætti, þar sem pöntunarfélagar fá 10% afslátt af flestum vörum

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.