Heilsuvernd - 01.03.1954, Qupperneq 37
HEILSUVERND
29
og vörur eru sendar heim tvisvar i viku til þeirra, er þess óska,
svo að engum vandkvæðum er bundið að vera i félaginu, þótt menn
séu búsettir fjarri búðinni. Til að auðvelda fólki pantanir, fylgir
vörulisti hverri pöntun, og vörulista getur hver sem er fengið til
athugunar, áður en hann gengur í félagið.
Verzlað er með allar algengar vörur, sem matvörubúðir hafa,
nema kaffi, tóbak, sælgæti, öl og slíkt. Aftur á móti er verzlað
með ýmsar vörur, sem aðrar verzlanir hafa ekki. Höfuðáherzlan
er lögð á öflun hollra matvæla, sem smámsaman eiga að þoka
hinum lakari til hliðar.
Kornmylla er rekin í sambandi við verzlunina til að tryggja
sem bezt góða mjölvöru. Og svo framarlega sem gott korn er
flutt til iandsins, getum við tryggt gott mjöl. En það slcal viður-
kennt, að við erum ekki ánægðir með það hveitikorn, sem inn
er flutt.
Þegar pöntunarfélagið og síðar verzlunin tók til starfa, réði stjórn
pöntunarfélagsins Þórð Halldórsson, skrifstofustjóra N.L.F.R. þar
til umsjár. Tók liann þar að sér mikið verk og vandasamt, þar
eð sjóðir voru grannir, svo að gæta þurfti ýtrustu varfærni við
róðstöfun hverrar krónu. Og að fenginni reynzlu, er óhætt að
fullyrða, að stjórnin liefði vart getað fengið annan samstarfs-
mann betri til að fleyta félaginu yfir byrjunarörðugleikana.
í byrjun marz tók N.L.F.Í. á leigu nýtt skrifstofuhúsnæði í
Hafnarstræti 11, en óður var skrifstofan í húsnæði verzlunarinnar
að Týsgötu 8, en vegna aukinna umsvifa, reyndist það óhentugt.
Skrifstofustjóri er áfram Þórður Halldórsson, enda vandfundinn
annar betri.
í febrúar s.l. réði stjórn N.L.F.Í. Sigurjón Danivalsson sem
framkvæmdastjóra, þar eð þegar hafnar og fyrirhugaðar fram-
kvæmdir krefjast ötuls áhugamanns, sem getur gefið sig allan og
óskiptan við verkefnunum.
Um helmingur fyrirhugaðrar heilsuhælisbyggingar, 620 m2, er nú
senn kominn undir þak.
Byggt er úr asbesti á trégrind.
Verktaki er Jón Guðmundsson, byggingameistari í Hveragerði.
Hælið teiknaði Ágúst Steingrímsson, byggingafræðingur.
Hafin er sala skuldabréfa, og happdrætti er í fullum gangi, hvort
tveggja til stuðnings heilsuhælinu, þvi að mjög mikilvægt er, að
bygging þess þurfi ekki að tefjast.
Fleiri leiðir til fjáröflunar eru í athugun. Og ganga má að þvi
vísu, að félagar N.L.F.Í., hvar sem eru á landinu, geri hvað þeir
mega málinu til stuðnings.
í næsta hefti verður skýrt nánar frá þessum málum,