Heilsuvernd - 01.06.1966, Blaðsíða 16
Spuriiingar og svör
R. H. spyr:
1. Er næring í áfengi?
2. Er næring í áfengu öli?
3. Er áfengt öl hollur drykkur?
Sv.: 1. Nei. Afengið sjálft eða vínandinn flytur líkamanum engin
nýtileg efni. Það skilst allt út úr líkamanum, að litlu Ieyti með þvagi
og útöndun, en aðallega á þann hátt, að lifrin breytir því í kolsýru og
vatn. Við þessa ummyndun eða hruna vínandans myndast hiti, en engin
nýtileg orka. Þvert á móti verkar áfengið lamandi á vöðva og önnur
líffæri og lífsstörf, líkamleg og andleg. Orvandi áhrif þess stafa af því,
að það sljóvgar fyrst og fremst dómgreind, sj álfsgagnrýni og minni,
þannig að menn verða ófeimnari, ógætnari, kærulausari en ella, og
jafnframt dregur úr öryggi og nákvæmni við skynjun og hreyfingar,
viðbragðsflýti og vöðvastyrk, jafnvel af smæstu áfengisskömmtum. En
þetta gera menn sér ekki ljóst, einmitt vegna þess að dómgreindin hefir
sljóvgazt.
Hitinn, sem myndast við bruna áfengis, hverfur fljótt á braut, m. a.
á þann hátt, að húðæðar víkka, og af þessu stafar hætta á ofkælingu
og kali. Hefir margur maðurinn frosið í hel vegna hitamissis af völd-
um áfengis.
2. 1 öllu öli eru næringarefni, svo sem eggjahvítuefni, kolvetni eða
sykur, steinefni og fjörefni. Eggjahvítuefnin eru 0.3% eða 8 sinnum
Varúð í notkun röntgengeisla og geislavirkra efna er þeim mun
nauðsynlegri sem kjarnorkunotkun allskonar hefir farið ört vaxandi
á síðari árum með þeim afleiðingum, að geislunaráhrif, svipuð áhrif-
um röntgen- og radíumgeisla, berast nú að okkur úr öllum áttum, úr
lofti, láði og legi. BLJ
80
HEIT.SUVERNI)