Heilsuvernd - 01.12.1971, Síða 9

Heilsuvernd - 01.12.1971, Síða 9
sonar, sem um árabil var formaður Náttúrulækningafélags Akur- eyrar. Risu fundarmenn úr sætum í virðingarskyni við þessa látnu félaga. Hér fer á eftir útdráttur úr skýrslu forseta. Stjórnarfundir. Haldnir voru 32 stjómarfundir auk óformlegra viðræðna stjórnarmanna um málefni félagsins. 100 ára afmæli Jónasar Kristjánssonar. Þess var minnzt hinn 20. september 1970 með dagskrá í ríkisútvarpinu og með hátíðlegri minningarathöfn í Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði. Frá þessu er ítarlega skýrt í Heilsuvemd, 5. - 6.hefti 1970, sem gefin vom út í einu lagi sem minningarrit í tilefni aldarafmælis Jónasar. Nýtt heilsuhæli. Stjórnin á kost á lóð fyrir nýtt hæli skammt suður af núverandi hæli, og hefir verið rætt við ýmsa aðila um gerð þess og stærð, þar á meðal Pál Sigurðsson ráðuneytisstjóra. Útgáfa frímerkis. í tilefni af aldarafmæli Jónasar Kristjánsson- ar fór stjórnin þess á leit við póststjómina, að gefið yrði út frí- merki, en fékk það svar, að þegar hefði verið ákveðið, hvað gefið yrði út af frímerkjum á því ári. Líkan af læknishjónunum. Þá hafði stjórnin ákveðið að láta gera líkan af læknishjónunum Hansínu Benediktsdóttur og Jónasi Kristjánssyni, og fór þess á leit við Ríkarð Jónsson myndhöggv- ara, að hann gerði líkanið, en vegna veikinda hans og anna hefir enn ekki fengizt ákveðið svar frá honum. Pöntunarfélag NLFR. Seint á árinu 1970 barst stjórninni beiðni frá stjórn Pöntunarfélags Náttúrulækningafélags Reykjavíkur um aðstoð við að koma upp nýrri verzlun að Sólheimum 35 í Reykja- vík. Lyktaði því máli þannig, að NLFÍ keypti verzlunarhúsnæðið, veitti félaginu lán og ábyrgðist auk þess bankalán, en pöntunar- félagið kostaði innréttingar allar og greiðir NLFÍ leigu af hús- næðinu. HEILSUVERND 169

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.