Heilsuvernd - 01.12.1971, Blaðsíða 20
OrkueyOsla viO störff
Það er fróðlegt og gagnlegt að vita, hve mikilli orku líkaminn
eyðir við mismunandi störf. Feitu fólki, sem vill megrast, mega
þessar tölur vera lærdómsríkar.
Þegar líkaminn er í hvíld, eyðir hann um 7 hitaeiningum á
klukkutíma, sé miðað við meðalþungan karlmann. Tölurnar hér
á eftir sýna aukaeyðslu á klukkustund við ýmis störf: Létt al-
menn vinna 75, mjög erfið vinna 300 eða meira. Meðalhraður
gangur (5 km á klst.) 140. Hraður gangur (8 km) 580. Sund (3 km
á klst.) 530. Dans (vals) 210. Foxtrot 270. Hraður polki 1150.
Hnefaleikar 800.
Til samanburðar má nefna, að í 100 g af kartöflum eru 60—70
he., í einu eggi 85, í meðalstórri brauðsneið án viðbits 100, í slétt-
fullri matskeið af smjöri 100, í 25 g (2 sléttf. matsk.) af sykri
100. I lítilli jólakökusneið 100.
Klukkustundar meðalhraður gangur jafngildir þá því að spara
við sig eina meðalstóra sneið af jólaköku, eða eina smurða brauð-
sneið, eða 35 g (3 sléttfullar matsk.) af sykri.
HEILSUVERND sendir lesendum sínum hug-
lieilar óskir um gleðileg jól og ámar þeim allrar
blessunar á komandi ári um leið og hún þakkar
eldri og yngri áskrifendum fyrir vinsemd og
tryggð á umliðnum árum.
180
HEILSUVERND