Heilsuvernd - 01.12.1971, Blaðsíða 12
4. Reikningar NLFÍ fyrir árin 1969 og 1970 voru samþykktir
samhljóða.
5. Samþykkt var að greiða ferðakostnað fulltrúa utan af landi,
eins og venja hefir verið.
6. Skattur bandalagsfélaga til NLFÍ var ákveðinn 10% af
ársgjöldum og ævifélagagjöldum, eins og verið hefir.
7. Fjárhagsnefnd hafði lagt til, að ársgjöld skírteinisfélaga í
NLFÍ og ævifélagsgjöld skyldu óbreytt, kr. 100,— og 1.000,—.
Breytingartillaga kom fram um að hækka þau um helming, og var
hún samþykkt samhljóða. Hinsvegar var felld með 11 atkv. gegn 3
tillaga um að fella niður félagsgjöld þeirra, sem eru eldri en 65 ára.
Þess skal getið, að þessi gjöld eru lágmarksgjöld fyrir félaga í
öllum deildum innan bandalagsins.
Kosningar. Frú Arnheiður Jónsdóttir var endurkosin forseti
NLFÍ til næstu tveggja ára, varaforseti Zóphónías Pétursson full-
trúi og meðstjórnendur frú Guðbjörg Birkis, Eggert V. Kristins-
son forstjóri og Eiður Sigurðsson móttökustjóri. í varastjóm voru
kosin frú Ásta Jónasdóttir, Friðgeir Ingimundarson bókhaldari og
Hulda Jensdóttir forstöðukona Fæðingarheimilis Reykjavíkur.
Endurskoðendur voru kosnir Hilmar J. Norðfjörð loftskeytamaður
og Hafsteinn Guðmundsson prentsmiðjustjóri, og varaendurskoð-
endur ungfrú Anna Matthíasdóttir og Vignir Andrésson íþrótta-
kennari. I ritnefnd voru endurkosin frú Ásta Jónasdóttir, séra Helgi
Tryggvason yfirkennari og Marínó L. Stefánsson kennari.
Þingslit. Arnheiður Jónsdóttir þakkaði þeim Pétri Gunnarssyni
og Klemensi Þorleifssyni, sem gengu úr stjórninni, fyrir margra
ára samstarf, og bauð hina nýju ungu stjómarmenn velkomna í
stjórnina. Hún þakkaði fulltrúum utan af landi fyrir komuna á
þingið, en frú Laufey Tryggvadóttir og Hallgrímur Helgason
mæltu nokkur þakkarorð. Samþykkt var að senda frú Svövu Fells
kveðjur og blóm í þakklætisskyni fyrir velvild hennar og hjálp-
semi fyrr og síðar, en hún var nýstigin upp úr veikindum. Zóphón-
ías Pétursson og Björn L. Jónsson fluttu Arnheiði Jónsdóttur
þakkir fyrir að hafa gefið kost á sér sem forseta næstu ár, og
172
HEILSUVERND