Heilsuvernd - 01.10.1974, Blaðsíða 5
Hvernig haga menn sér svo
gagnvart þessum lífsskUyrð-
um?
Mesti fjöldi manna lokar sig
inni í þéttum upphituðum og
loftillum húsákynnum, þar
sem andrúmsloftið er svo
mengað kolsýru og öðrum
óheilnæmum lofttegundum
að það nærir illa logann á
lampa lífsins. Menn drekka
ýmsa óheilnæma og mengaða
drykki i stað sválandi vatns.
Það er sagt um næringuna
að hún sé sterkasti þátturinn
i akkerisstreng lífsins. Það er
vitað mál að fæða menning-
arþjóðanna er í mesta rnáta
óeðlileg. Hún er svipt mörg-
um hinum helstu kostum
heilnæmrar næringar, svo
sem fjörefnum., lútargœfum
næringarsöltum og grófefn-
um. Þar með er fæðan svipt
því samræmi sem hún þarf
að hafa. Sykur, hvítt hveiti,
hefluð hnsgrjón, sagógrjón,
kartöflumjöl og fleiri ný-
tísku matvörur eru hinar
óheilnœmustu og eiga eflaust
mestan þátt í hinum mörgu
kvillum menningarþjóðanna.
Þá er og matreiðslunni
ekki lítið ábótavant. 1 stað
þess að neyta lifandi fæðu,
deyða menn hana með of mik-
illi upphitun og margskonar
heimskulegri meðferð sem.
eyðileggur fjörefni hennar og
nemur burtu nauðsynleg nær-
ingarsölt. Allt er þetta brot
á því lögmáli sem lífinu hef-
ir verið sett. Slíkt getur ekki
orðið til lengdar, án þess að
hætta hljótist af fyrir heilsu
og vellíðan manna. Það er þvi
ekki undarlegt þótt uppleys-
ingaröfl, sem ég hefi hér káll-
að myrkravöld, nái tökum á
likama manna og váldi þar
röskun á eðlilegu jafnvægi.
(GANGLERI 1940. NÝJAR
LEIÐIR, 2. rit NLFÍ 1942)
VERRA GAT ÞAÐ VERIÐ
Leikhúsgesturinn: Það hlýtur að vera hræðilegt þegar óperu-
söngvarinn finnur að hann er hættur að geta sungið.
Leikhússtjórinn: Hitt er þó miklu verra þegar hann finnur
það ekki.
HEILSUVERND
125