Feykir - 08.01.2020, Blaðsíða 5
EINKAMÁL
Knattspyrna kvenna
Jónsi í þjálfarateymi
Stólanna á ný?
Orðrómur hefur kvisast út að
Jón Stefán Jónsson, annar
þjálfara kvennaliðs Tindastóls
í knattspyrnu á síðasta
tímabili, verði aðstoðarþjálfari
Guðna Þórs Einarssonar sem
hélt áfram þjálfun liðsins
þetta tímabil. Hvort þessi
ráðstöfun komi á óvart er
ekki gott að segja en Jónsi
kvaddi liðið með virktum í
haust er hann tók við starfi
íþróttafulltrúa hjá Þór
Akureyri.
„Það er að ekkert fast í hendi
en það er vilji okkar beggja að
Jón Stefán skrifi undir nýjan
samning og taki slaginn með
okkur aftur. Það mál er aðeins á
frumstigi og ég vona að það
verði gengið frá því á næstu
vikum,“ sagði Guðni aðalþjálf-
ari aðspurður um málið.
Jón Stefán er sem áður
búsettur á Akureyri en mun þá
keyra á æfingar nokkrum
sinnum í mánuði. Guðni segir
leiki Stólanna í vetur fara fram
meira og minna á Akureyri svo
það hentar vel. „Ég lít svo á að
þrátt fyrir að hann sé ekki á
Króknum, sé hann besti
kosturinn. Okkar samstarf
undanfarin ár hefur gengið afar
vel og við horfum mjög
björtum augum á komandi
mánuði.“
Knattspyrnudeild Tinda-
stóls hefur boðað til opins
fundar á morgun, fimmtu-
daginn 9. janúar, kl. 20 í Húsi
frítímans þar sem reynt verður
að mynda nýja stjórn deildar-
innar fyrir framhaldsaðalfund
sem verður þann 16. janúar nk.
„Ég vil hvetja alla til að
mæta þar sem farið verður
yfir áherslur og framtíðarsýn
deildarinnar. Það sárlega vantar
gott fólk til að koma í stjórn.
Deildin býr yfir góðum hópi af
metnaðarfullum þjálfurum,
efnilegum iðkendum og fjár-
hagsstaðan er í ágætis farvegi.
Ég vil því hvetja alla foreldra,
frændur, frænkur, ömmur eða
afa, sem hafa einhver tengsl við
iðkendur deildarinnar, um að
íhuga vel að koma inn og taka
þátt í þessari skemmtilegu
uppbyggingu sem á sér stað í
fótboltanum á Króknum.
Áfram Tindastóll!“ /PF
Jón Stefán Jónsson hefur náð frábærum árangri með kvennalið Tindastóls ásamt
núverandi þjálfara, Guðna Þór Einarssyni. Myndin er tekin haustið 2018 þegar
stelpurnar komust upp í Inkasso deildina. MYND: PF
1. deild kvenna : Tindastóll - Fjölnir 71–80
Fjölniskonur reyndust sterkari
Körfuboltinn er kominn á ról á ný og á
laugardag mættust lið Tindastóls og Fjölnis úr
Grafarvogi í hörkuleik í Síkinu. Lið gestanna
var í toppsæti deildarinnar fyrir leik og hafa
sennilega á að skipa besta liðinu í 1. deild.
Heimastúlkur voru þó yfir í hálfleik, 48-39, en
lið Fjölnis tók leikinn yfir í þriðja leikhluta og
lagði þar grunninn að góðum sigri. Lið
Tindastóls hefði þó með agaðri leik í
lokafjórðungnum getað tekið stigin tvö en
gestirnir voru sterkari á lokamínútunum og
sigruðu 71-80.
Það var skarð fyrir skildi í liði Tindastóls að í
liðið vantaði Akureyringana Karen og Hrefnu.
Tess var atkvæðamest í liði Tindastóls með 30
stig, sex fráköst og fjórar stoðsendingar. Marín
Lind var með 15 stig og sex fráköst, Telma Ösp
var drjúg með tíu stig og tólf fráköst, Eva Rún
með sjö stig og átta fráköst, Kristín Halla sex stig
og Valdís Ósk þrjú stig. Í liði Fjölnis var Hulda
Ósk á eldi, gerði 31 stig (71% skotnýting) og tók
18 fráköst. Þá áttu Fanndís María og Eygló Kristín
fínan leik fyrir Fjölni. Liðin tóku álíka mörg
fráköst en gestirnir áttu 18 stoðsendingar gegn
sjö hjá Stólunum sem segir manni að gestirnir
hafi spilað boltanum betur. Þá tók lið Fjölnis 20
vítaskotum meira en lið Tindastóls en nýttu vítin
þó illa (17/31).
Lið Tindastóls er nú í þriðja sæti 1. deildar.
Næsti leikur er gegn liðinu í öðru sæti, Keflavík b,
og fer hann fram laugardaginn 11. janúar kl.
16:00 í Blue-höllinni í Keflavík. /ÓAB
www.skagafjordur.is
Sauðárkróki 6. janúar 2020
Jón Örn Berndsen
skipulagsfulltrúi
Auglýsing um skipulagsmál í
Sveitarfélaginu Skagafirði
Sauðárkrókshöfn – deiliskipulag –
Auglýsing um lýsingu skipulagsverkefnis
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að vinna nýtt deiliskipulag fyrir
hafnarsvæðið á Sauðárkróki, Sauðárkrókshöfn. Gildandi deiliskipulag
hafnarsvæðisins er frá árinu 1995. Frá þeim tíma hafa ýmsar forsendur
breyst, aukin og fjölbreyttari starfsemi kallar á breytingar og aukið rými.
Á fundi sveitarstjórnar þann 12. desember 2019 var samþykkt að auglýsa
og kynna skipulagslýsingu vegna gerðar nýs deiliskipulags hafnarsvæðisins
samkvæmt 1. mgr. 30. greinar laga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin er
dagsett 2. desember 2019 unnin hjá Stoð ehf verkfræðistofu.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins,
www.skagafjordur.is. Þess er óskað að ábendingar eða athugasemdir við
skipulagslýsinguna berist skipulagsfulltrúa eigi síðar en 5. febrúar 2020.
Þær skal senda á netfangið jobygg@skagafjordur.is.
Einnig er hægt að senda athugasemdir merktar Sauðárkrókshöfn,
deiliskipulag 2020 á póstfangið, Sveitarfélagið Skagafjörður,
Skagfirðingabraut 17, 550 Sauðárkróki.
AÐSENT : Magni Þór Pálsson skrifar
Er ég að leita að þér?
Ef þú ert í árgangi 1971 og fermdist í Sauðár-
krókskirkju árið 1985 og/eða útskrifaðist úr
Gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki árið 1987, þá er
ég að leita að þér.
Ef þú vilt fá fréttir af viðburðum okkar árið 2020
fylgstu þá með á facebooksíðunni Árgangur ´71 á
Sauðárkróki eða sendu netfangið þitt / símanúmer
á hronn1971@gmail.com / 866-2796.
Bkv. Hrönn A. Bj.
Dominos-deild karla : Keflavík – Tindastóll 95-84
Slæmur þriðji leikhluti felldi Stólana
Tindastólsmenn léku fyrsta leik sinn á nýju ári
í Keflavík í fyrrakvöld. Leikurinn var jafn og
skemmtilegur í fyrri hálfleik og liðin skiptust á
um að hafa forystuna. Staðan var enda
hnífjöfn í hálfleik, 47-47, en í þriðja leikhluta
sýndu heimamenn gestunum sparihliðina og
skoruðu nánast að vild á meðan sóknarleikur
Tindastóls var þvingaður. Að leikhlutanum
loknum munaði 18 stigum á liðunum og þrátt
fyrir ágætt áhlaup Stólanna þá fór svo að
lokum að Keflavík sigraði 95-84.
Tindastólsmenn höfðu vonast eftir að geta
teflt fram nýjum leikmanni, Deremy Geiger, en
þegar til kom þá fékkst ekki leikheimild í tíma
fyrir kappann. Hann var því ekki gjaldgengur í
Sláturhúsinu suður með sjó og var það vissulega
skarð fyrir skildi.
Bilic var stigahæstur í liði Tindastóls með 18
stig en hann, Brodnik og Pétur fundu ekki fjölina
að þessu sinni og hittu illa fyrir utan 3ja stiga
línuna. Viðar og Simmons gerðu betur og settu
báðir niður þrjá þrista í samtals sjö tilraunum.
Viðar var með besta framlag Tindastólsmanna
(20) og skilaði 13 stigum í sjö skotum. Simmons
var með 17 stig, Brodnik 14, Helgi Rafn 7, Pétur
og Perkovic 6 og Friðrik 3.
Næsti leikur Tindastóls er hér heima á
föstudaginn kl. 20:15 en þá koma Njarðvíkingar í
heimsókn. /ÓAB
01/2020 5