Feykir - 15.01.2020, Page 9
blaðinu voru til að mynda þær
að tekin hafði verið ákvörðun
um að Flugakademía Keilis hefði
ákveðið að kennsla skólans færi
framvegis fram á Sauðárkróki
og einnig var sagt frá
styrkveitingu Byggðastofnunar
til Rannsóknaseturs HÍ á
Norðurlandi vestra sem staðsett
er á Skagaströnd. Vilhelm
Vilhelmsson, forstöðumaður
safnsins, sagði styrkinn verða
mikla lyftistöng fyrir rannsóknir
á sögu Íslands á 19. og 20. öld
en verkefnið sem styrkt var
felst í því að ljósmynda allar
varðveittar bækur sáttanefnda á
tímabilinu 1798-1936.
Móttaka flóttafólks
undirbúin
Í sjöunda tölublaði ársins segir
frá undirbúningi að móttöku
flóttafólks á Hvammstanga
og á Blönduósi. Vel sóttur
upplýsingafundur hafði verið
haldinn á Hvammstanga en áður
hafði sveitarstjórn Húnaþings
vestra samþykkt að taka á móti
25 flóttamönnum frá Sýrlandi
og var hópurinn væntanlegur
um vorið. Jafnframt var sagt
frá því að undirbúningur fyrir
komu sambærilegs hóps væri
í fullum gangi á Blönduósi
en þar væru húsnæðismálin
stærsti þröskuldurinn. Að sögn
Valdimars O. Hermannssonar
var unnið að því að finna lausn
á þeim hið fyrsta.
Landsliðsknapar og
frjálsíþróttakappar
Frjálsíþróttahetjan skagfirska,
Ísak Óli Traustason, gerði
garðinn frægan á MÍ í frjálsum
þar sem fremsta frjálsíþróttafólk
landsins var mætt til leiks. Ísak
Óli gerði sér lítið fyrir og varð
tvöfaldur Íslandsmeistari, í
60 m grindahlaupi sem hann
hljóp á 8,27 sek. og í langstökki
þar sem hann stökk 6,80 m.
Þá varð hann í 2. sæti í 60 m
hlaupi á 7,07 sek (pm) og í 4.
sæti í stangarstökki með 4,00
m. Einnig varð Sveinbjörn Óli
Svavarsson í 4. sæti í 60 m hlaupi
á 7,23 sek. og í 6. sæti í 200 m
hlaupi á 23,19 sek.
Í sama blaði segir frá því að
Landssamband hestamanna-
félaga hafi kynnt landsliðshóp
LH í hestaíþróttum þar sem fjórir
knapar af Norðurlandi vestra
áttu sæti, Það voru þau Þórar-
inn Eymundsson á Sauðárkróki,
Vestur-Húnvetningur inn
Helga Una Björnsdóttir frá
Syðri-Reykjum í Miðfirði,
Skagfirðingurinn Jóhann Skúla-
son, sem býr í Danmörku
og Bergþór Eggertsson frá
Bjargshóli i Miðfirði en hann
býr í Þýskalandi.
Frh. í næsta tölublaði Feykis
Janúar
Tveir nýir togarar í flota Fisk
Seafood og aldargamall
fræðimaður
Fyrsta forsíðufrétt ársins 2019
fjallaði um kaup Fisk Seafood
á tveimur skuttogurum, Verði
EA-748 og Áskeli EA-749
ásamt aflaheimild upp á 660
tonn. Seljandi var Gjögur hf.
á Grenivík. Þar með voru
aflaheimildir Fisk Seafood
komnar upp í tæplega 23
þúsund tonn.
Í sama blaði sagði frá því
að rithöfundurinn og fræði-
maðurinn, Kristmundur Bjarna-
son á Sjávarborg, yrði aldar-
gamall þann 10. janúar og að
í tilefni tímamótanna gæfi
Sögufélag Skagfirðinga út
bernskuminningar Kristmundar
frá uppvaxtarárum hans á
Mælifelli. Bókin ber nafnið Í
barnsminni. Kristmundur lést
þann 4. desember 2019.
Nýtt bókhaldsfyrirtæki á
Skagaströnd og áhyggjur
varðandi löndun úr Arnari
Í öðru tölublaði var sagt frá
nýju sprotafyrirtæki sem tók til
starfa á Skagaströnd í byrjun árs.
Fyrirtækið heitir Lausnamið og
starfar á sviði bókhaldsþjónustu
og rekstrarráðgjafar. Í tilefni
opnunarinnar var opið hús þann
10. janúar og í ávarpi eiganda
fyrirtækisins, Erlu Jónsdóttur,
kom fram að markmiðið
væri að viðskiptavinir gætu
komið og fengið alla þá þá
skrifstofuþjónustu sem þeir
þyrftu, hvort heldur væri á sviði
bókhaldsþjónustu eða annarrar
sérfræðiþjónustu varðandi
rekstur.
Einnig sagði frá því að útlit
væri fyrir nýtt fyrirkomulag á
löndun úr togaranum Arnari en
fram að þessu hefði hann landað
á Skagaströnd væri skipið statt
fyrir norðan land. Nú leit út fyrir
að landanir togarans væru að
færast til Sauðárkróks og sagði
sveitarstjóri Skagastrandar,
Alexandra Jóhannesdóttir, í
samtali við Feyki að það kæmi
til með að hafa mjög slæmar
afleiðingar, bæði fyrir hafnarsjóð
og aðila á Skagaströnd sem hafa
veitt þjónustu í tengslum við
togarann fram að þessu.
Rausnarleg gjöf
Hollvinasamtaka HSN á
Blönduósi
Sagt var frá veglegri gjöf
Hollvinasamtaka HSH á
Blönduósi í þriðja tölublaði
ársins en þau afhentu
Heilbrigðisstofnun Norður-
lands á Blönduósi fullbúna
aðstandendaíbúð sem ætluð
er sem athvarf fyrir þá
aðstandendur sem dvelja þurfa
á sjúkrahúsinu um lengri eða
skemmri tíma með mikið
SAMANTEKT
Fríða Eyjólfsdóttir
Margt bar til tíðinda á árinu sem nú er nýliðið og að vanda tekur Feykir saman fréttayfirlit
þar sem stiklað er á stóru um þá atburði sem hæst bar á síðum blaðsins. Fyrsti hluti
annálsins birtist hér og verður honum framhaldið í næstu blöðum.
Fréttaannáll 2019 | 1. hluti
Viðburðaríkt ár að baki
Höskuldur fangar vetrarstemningu. Það snjóaði ekki mikið síðasta vetur og færð
yfirleitt ágæt – annað en í upphafi árs 2020. MYND: HÖSKULDUR B. ERLINGSSON
veikum sjúklingum. Íbúðin
er afar vistleg og mun bæta
aðstöðu aðstandenda til mikilla
muna.
Lausn fundin í
geymslumálum
Byggðasafns Skagafjarðar
Í lok janúar var loks búið að
finna lausn á geymslumálum
Byggðasafns Skagafjarðar eftir
að áður áætlað geymsluhúsnæði
safnsins hafði verið úrskurðað
ónothæft af Safnaráði vegna
skorts á eldvörnum, möguleika
á vatnstjóni og mengunarhættu
vegna bifreiðaverkstæðis við
hlið rýmisins. Fólst lausnin í að
skipta um rými við Leikfélag
Sauðárkróks og víðtækara
brunavarna- og viðvörunarkerfi
í húsinu en áður hafði verið
áætlað.
Febrúar
Stefnt á opnunarhátíð í
Tindastóli
Í byrjun febrúar segir frá því á
forsíðu að stefnt sé á að halda
opnunarhátíð um komandi
helgi á skíðasvæðinu í Tindastóli
þar sem ný og glæsileg lyfta yrði
formlega vígð. Ekkert varð þó af
opnunarhátíðinni vegna veðurs
og var það því miður ekki í eina
skiptið sem þeirri hátíð var
frestað þennan veturinn.
Í sama blaði segir frá því að
framkvæmdastjóra IceProtein
og Protis á Sauðárkróki hafi
verið sagt upp störfum vegna
skipulagsbreytinga hjá Fisk
Seafood.
Innyflaskortur hjá
körfuknattleiksliði
Tindastóls
Um miðjan febrúar auglýsti
íþróttafréttaritari Feykis eftir
hjörtum, lifur og lungum fyrir
karlalið Tindastóls í körfu-
knattleik sem segir líklega
talsvert um gengi liðsins fram
að því í Dominos deildinni.
Þar segir af tapi liðsins, 58-79,
gegn frábæru liði Stjörnunnar
um nýliðna helgi og að í kjölfar
leiksins hafi verið samið við
leikmanninn P.J. Alawoya um að
leika með liðinu út tímabilið en
jafnframt hefðu leikmennirnir
Urald King og Michael Ojo
sungið sitt síðasta með félaginu.
Aðrar og jákvæðari fréttir í
Hluti af flota Fisk Seafood í höfn á Sauðárkróki áramótin 2018-2019. Tveir togarar
bættust í hópinn í janúar 2019. MYND: HING
Urald King stekkur upp, skýtur en skorar sennilega ekki. Tindastólsmenn voru í basli
í upphafi árs og King var sendur heim í Kanaríki. MYND: HJALTI ÁRNA
02/2020 9