Feykir - 15.01.2020, Page 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Bolli
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Settir þú þér
markmið fyrir
árið 2020?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : frida@feykir.is
„Já, ég hef það markmið
fyrir árið að klára samning í
húsasmíði.“
Ester María Eiríksdóttir
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Til eru tvær tegundir úlfalda, annars vegar kameldýr (Camelus
bactrianus), með tvo hnúða á bakinu og lifir í Mið-Asíu, og hins
vegar drómedari Camelus dromedarius), með einn hnúð á bakinu
og lifir í Norðanverðri Afríku og í Arabíu. Ótrúlegt, en kannski satt,
þá hafa úlfaldar þrjú augnlok til að vernda augun gegn fjúkandi
eyðimerkursandinum.
Tilvitnun vikunnar
Ef konur stjórnuðu heiminum þá væru engin stríð,
bara ákafar samningaviðræður á 28 daga fresti.
– Robin Williams
„Nei, ég stend aldrei
við nein markmið.“
Lovísa Heiðrún Hlynsdóttir
„Já, nýta sem mestan tíma með
vinum og fjölskyldu, og bara
njóta. Það er það mikilvægasta.“
Róbert Smári Gunnarsson
„Já! Markmið mitt fyrir 2020 er
í fyrsta lagi að vera jákvæðari
og í öðru lagi að nýta hvert
tækifæri til að stíga út fyrir
þægindarammann. Ef mér mun
þykja tilhugsunin um eitthvert
athæfi óþægileg og stressandi
þá ætla ég einmitt að taka af
skarið og gera það samt!“
Lovísa Helga Jónsdóttir
Coc au vin og ein frönsk
Matgæðingar vikunnar að þessu sinni búa í fríríkinu Akrahreppi í
Skagafirði, að Bjarnastöðum í Blönduhlíð. Charlotte, eða Lotta,
sem margir þekkja úr Lyfju á Sauðárkróki, elti Hannes til Íslands
frá Noregi haustið 2013 og hafa þau búið síðan að Bjarnastöðum.
Þau eiga fjögur börn og búa þrjú þeirra hjá þeim en eitt býr í
Noregi hjá móður sinni. „Á Bjarnastöðum erum við með smá
„hobby“ búskap sem samanstendur af kindum, hestum, hundum,
köttum og hænum. Bíddu við….. nei við erum ekki lengur með
hænur, þær eru búnar…. Kláruðust í Coc au vin rétti…..,“ segja þau
en rétturinn sem þau bjóða lesendum upp á er einmitt sá vinsæli
réttur. Góðan tíma tekur að láta réttinn malla í ofninum og mæla
þau með kaffibolla og spjalli á meðan hann er að eldast.
AÐALRÉTTUR
Coc au vin (fyrir fjóra)
Þessi réttur er steiktur í leirpotti í
ofni en fyrst þarf að láta leirpottinn
liggja í köldu vatni í klukkutíma.
Við notum kjúklingalæri en það er
líka hægt að nota heilan kjúkling.
6-8 kjúklingalæri eða
1 heill kjúklingur
Kryddlögur:
1 dl ólífuolía
2 msk. sojasósa
nokkrir dropar balsamic edik (eða
nokkrir dropar sítróna)
sítrónupipar
estragon krydd
Aðferð: Við byrjum á því að búa til
kryddlög og látum kjúklinginn
liggja í blöndunni yfir nótt því þá
verður kjötið mýkra og bragðmeira.
Takið kjúklinginn úr kryddleginum
eftir sólarhring (ekki henda krydd-
leginum því hann verður notaður
seinna) og veltið kjötinu upp úr
þurrefnum.
Þurrefni:
3 msk. hveiti
1 tsk. salt
smá hvítur pipar
Brúnið nú kjötið á pönnu (allar
hliðar) og leggið í leirpottinn sem
hefur legið í bleyti í a.m.k. eina
klukkustund.
Því næst skal steikja á pönnunni:
6 sneiðar af söxuðu þykku beikoni
6 silfurlauka (úr glasi) eða 2
sharlottlauka
6 ferska sveppi í bitum
Setjið þetta allt í leirpottinn, hellið
smá vatni í pönnuna, látið koma
upp suðu og hellið svo í leirpottinn.
Setjið nú einnig í leirpottinn:
u.þ.b. 5 hvítlauksbáta
smá timían (helst ferskt)
1 blað lárviðarlauf
smá steinselju
4 dl af rauðvíni
kryddblönduna sem kjötið lá í
nokkar matskeiðar af silfurlauks
leginum
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is
Lotta og Hannes á Bjarnastöðum matreiða
Lotta og Hannes. MYND ÚR EINKASAFNI
Setið lokið ofan á leirpottinn og
setið pottinn inn í kaldan ofninn.
Stillið ofninn á 200°C og látið
standa í rúmlega 2 klst. Þetta á svo
að sjóða í rúmlega 2 klukkutíma.
Meðlæti - Pilaff hrísgrjón:
Byrjið á því að setja smjör í pott,
saxið 1 lauk og steikið í smjörinu
ásamt ósoðnum hrísgrjónum í smá
tíma. Því næst er sett vatn út í
ásamt sósukrafti og soðið eins og
venjuleg hrísgrjón.
Einnig má útbúa salat eftir eigin
höfði og nota sem meðlæti.
EFTIRRÉTTUR
Frönsk súkkulaðikaka
Í eftrirétt bjóðum við upp á franska
súkkulaðiköku með pekanhnetu-
kurli og heitri karamellusósu með
vanilluís:
80 g smjör
100 g suðusúkkulaði
3 egg
3 dl sykur
1 tsk. vanilludropar
1½ dl hveiti
1 tsk. salt
100 g pekanhnetur, grófsaxaðar
100 g suðusúkkulaði grófsaxað
Aðferð: Stillið ofninn á 175°C með
blæstri. Bræðið saman smjör og
súkkulaði í potti við vægan hita.
Þeytið egg og sykur mjög vel saman
þar til blandan er létt og ljós, bætið
þá salti og hveiti varlega saman við
eggjablönduna. Að lokum er
blöndunni af súkkulaði og smjöri
bætt út í eggjablönduna.
Hellið í smurt form (22 sm) og
bakið í 15 mínútur.
Gerið karamellusósuna á
meðan kakan stendur í ofninum.
Karamellusósa:
60 g smjör
1 dl púðursykur
2 msk. rjómi
Aðferð: Bræðið púðursykur og
smjör saman í potti. Setjið rjómann
út í og hrærið í u.þ..b. 1 mínútu þar
til áferðin er silkimjúk. Takið kök-
una út, stráið pekanhnetum yfir og
hellið karamellusósu yfir þær.
Setjið kökuna aftur inn í ofninn
og bakið í 20 mínútur. Takið
kökuna út og stráið súkkulaðibitum
eða spæni yfir hana. Njótið!
Við skorum svo á Sunnu
Bjarnadóttur og Bjarna Salberg
Pétursson á Mannskaðahóli sem
næstu matgæðinga.
02/2020 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Einnig tíð í uppskriftum.
Ilmrík laut í haganum.
Helgur bikar hofgoðans.
Hriplek fleyta afglapans.