Feykir - 29.01.2020, Side 2
Þá er nú þorrinn blessaður genginn í garð og samkvæmt
gamla íslenska tímatalinu er þá veturinn hálfnaður. Það
er því full ástæða til að fagna og óska þess að síðari hluti
vetrar verði örlítið fljótari að líða
en sá fyrri. Ég er nefnilega ekki
frá því að það séu fjórir mánuðir
frá jólum, svo hægt hefur tíminn
silast áfram í mínum huga. Samt
veit ég að það verða aftur komin
jól áður en varir, hann getur
verið svo óútreiknanlegur þessi
blessaði tími.
Og það eru fleiri ástæður til að
gleðjast. Þrátt fyrir að Kristján
fjallaskáld hafi ort um frosið blóð
í æðum á þorranum, kuldaél og klakaþil, þá brá svo við í
byrjun þorrans að veður stilltust og virðast ætla að haldast
nokkuð skikkanleg næstu dagana.
Og svo eru það blessuð þorrablótin sem eru að sjálfsögðu
aðalfagnaðarefnið. Mikið getum við nú verið þakklát fyrir
þennan ágæta sið sem gefur okkur tækifæri til að koma
saman og sletta úr klaufunum í mesta vetrardrunganum.
Þó sá siður að gera vel við heimilisfólk, og þá sérstaklega
húsbóndann, á bóndadaginn sé trúlega gamall er það ekki
fyrr en um miðja 20. öldina sem þorrablótin fóru að tíðkast
hjá almenningi hér á landi. Að vísu voru þau haldin á
miðöldum en lögðust svo af með nýrri trú. Nú storma
flestir landsmenn á þorrablót og leggja á sig langar ferðir
milli landshluta til að borða súran og kæstan mat sem
sumir telja reyndar úldinn og óætan og ekki mönnum
bjóðandi. Rétt er þó að taka það fram að það ber í lengstu
lög að varast að varpa fram þeirri skoðun að þorramatur sé
ekki góður, það fékk hann að reyna, aumingja stjörnu-
kokkurinn svokallaði sem álpaðist til að tjá sig um það á
Twitter, líklega meira í gríni en alvöru, að honum þætti enn
skemmtilegra ef fólk borðaði almennilegan mat þegar það
kæmi saman til að skemmta sér. „Mér finnst frábært að
íþróttafélög haldi skemmtanir þar sem fólk úr hverfunum
hittist, borði saman og skemmtir sér,“ segir hann en spyr
svo illu heilli hvort það væri ekki ennþá skemmtilegra ef
fólk borðaði góðan mat á svona giggi. Og það var eins og
við manninn mælt, yfir aumingja manninn dundu ásakanir
og svívirðingar á samfélagsmiðlunum enda jaðrar við
guðlast að fussa yfir okkar ágæta þjóðlega mat, ja nema
kannski þú sért útlendingur! Já, það er vissara að passa hvað
maður segir á Twitter.
Mér þykir þó líklega að það sé ekki síður hin ágæta
skemmtidagskrá sem í boði er, oft samin og fram borin af
fólki sem ekki gefur sig dags daglega út fyrir að vera
skemmtikraftar, ásamt því að gleðjast í góðra vina hópi sem
ræður vinsældum þorrablótanna.
Fríða Eyjólfsdóttir,
blaðamaður
LEIÐARI
Velkominn þorri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Leikskólinn á Hofsósi
Uppsteypa með lægra tilboðið
Á fundi byggðarráðs Svf.
Skagafjarðar í síðustu
viku voru lögð fram
tilboð í verkið Leikskóli á
Hofsósi. Alls bárust tvö
tilboð í verkið en ákveðið
var að ganga til samninga
við Uppsteypu ehf. sem
var með lægra boðið.
Kostnaðaráætlun verks-
ins hljóðaði upp á
143.007.623 kr. en tilboð
Uppsteypu var 16,7 milljón
krónum hærra og hljóðaði
upp á 159.705.806 kr.
Friðrik Jónsson ehf. átti hitt
tilboðið sem var tæpum 46
milljónum hærra en kostn-
aðaráætlun eða 188.782.925
kr.
Norðurland vestra
8,5% íbúa eru erlendir ríkisborgarar
Þjóðskrá Íslands hefur gefið út
tölur yfir hlutfall erlendra
ríkisborgara eftir sveitarfélögum
og landsvæðum. Þar kemur fram
að hlutfallið er afar mismunandi
eftir sveitarfélögum. Hæst er það
í Mýrdalshreppi þar sem 44%
íbúa hefur erlent ríkisfang eða
319 af 717 íbúum hreppsins þann
1. desember sl. Það sveitarfélag
sem hefur lægst hlutfall erlendra
ríkisborgara er Svalbarðshreppur
en aðeins einn íbúi hreppsins
hefur erlent ríkisfang sem ígildir
einu prósenti íbúanna.
Sé litið til landshluta búa
hlutfallslega flestir erlendir ríkis-
borgarar á Suðurnesjum eða 24
prósent. Hlutfallið er hins vegar
lægst á Norðurlandi vestra, 8,5%,
og á Norðurlandi eystra þar sem
það er 8,2%. Pólverjar eru sem fyrr
langfjölmennasti hópurinn, rúm-
lega 20 þúsund manns, og Litháar
eru í öðru sæti. Rúmenum hefur
fjölgað mest hlutfallslega eða um
15%. Alls hefur erlendum ríkis-
borgurum fjölgað um rúmlega
fimm þúsund á einu ári og nálgast
nú 50 þúsunda markið.
Á Norðurlandi vestra búa
flestir erlendir ríkisborgarar í
Sveitarfélaginu Skagafirði eða 290
manns sem gerir 7% af íbúafjölda
sveitarfélagsins. Hlutfall erlendra
ríkisborgara er hæst í Blönduósbæ,
14% eða 132 íbúar, og næst í
Húnaþingi vestra, 10% íbúa sem
eru 122 einstaklingar. Á Skaga-
strönd búa 33 með erlent ríkisfang
sem gerir 7% íbúa, í Húnavatns-
hreppi 22 sem eru 6%, í Akrahreppi
19 sem er hlutfallstala upp á 9% og
í Skagabyggð búa þrír erlendir
ríkisborgarar eða 3% íbúa. /FE
Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir landshlutum. MYND: SKRA.IS
Á Sauðárkróki var landað tæpum 669
tonnum í síðustu viku og var Drangey SK 2
aflahæst þeirra skipa sem þar lönduðu.
Aðeins landaði einn bátur á Skagaströnd,
Sæfari HU 212 sem var með hálft fimmta tonn.
Heildarafli vikunnar á Norðurlandi vestra var
673.095 kíló. /FE
Aflatölur 19.– 25. janúar 2020 á Norðurlandi vestra
Tæp 670 tonn til Sauðárkróks
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 4.514
Alls á Skagaströnd 4.512
SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 156.409
Drangey SK 2 Botnvarpa 166.909
Helga María RE 1 Botnvarpa 126.316
Jóhanna Gíslad. GK 557 Lína 66.863
Málmey SK 2 Botnvarpa 152.084
Alls á Sauðárkróki 668.581
Teikning af fyrirhuguðu leikskólabyggingu. MYND: ÚTI INNI ARKITEKTAR
Byggðarráð fól sviðstjóra veitu- og framkvæmda-
sviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda á
grundvelli tilboðs hans. Uppsteypa er skagfirskt
byggingafyrirtæki með lögheimili á Syðri-Hof-
dölum. /PF
2 04/2020