Feykir


Feykir - 29.01.2020, Blaðsíða 5

Feykir - 29.01.2020, Blaðsíða 5
Elskar ekkert meira en að skora mark Krista Sól Nielsen er knatt- spyrnukona í Tindastól, búsett á Sauðárkróki, dóttir Ernu Nielsen og Gests Sigurjónssonar. Hún er af árgangi 2002 og þrátt fyrir ungan aldur var hún orðinn lykilmaður í meistaraflokki þar til hún meiddist illa á hné en er nú í miðju bataferli. Við athöfn Menningarsjóðs KS fyrir jól fékk Krista Sól afhentan afreksbikar Stefáns Guðmundssonar og Hrafnhildar Stefánsdóttur, en í umsögn um Kristu kom fram að hún lifi fyrir íþróttina og hafi alla tíð verið metnaðargjörn. „Hún er frábær einstaklingur, mikil keppniskona og hún mun koma sterk til baka.“ Krista er Íþróttagarpur Feykis þessa vikuna. Íþróttagrein: -Fótbolti. Íþróttafélag: -Að sjálfsögðu Tinda- stóll. Helstu íþróttaafrek: -Fara á landsliðsæfingar, koma Tindastól upp um deild og spila í Inkasso. Skemmtilegasta augnablikið: -Mjög mörg skemmtileg augnablik til þess að velja úr en það sker sig samt alltaf úr að skora, elska ekkert meira en að skora mark. Neyðarlegasta atvikið: -Í leik á móti Þór á Akureyri var leikmaður í hinu liðinu sem reif stuttbuxurnar mínar aðeins niður um mig, ákveðinn skellur að þurfa stoppa til þess að hysja þær upp. Einhver sérviska eða hjátrú? -Það breytist voða mikið nema þegar það er heimaleikur kem ég alltaf auga á mömmu og Gest uppi í stúku, þá fer allt stress og leikurinn má byrja. Uppáhalds íþróttamaður? -Held mikið upp á vin minn Jón Gísla Ey- land, en annars eru Anthony Martial og Daniel James ofarlega líka. Ef þú mættir velja þér andstæð- ing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Ég myndi skora á Önnu Margréti, formann alhliðanefndar, í danskeppni á Skaffó planinu. Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Anna myndi byrja á að taka salsa en þegar ég tek enska valsinn þá hugsa ég að hún labbi bara í burtu, það væri líka bara skynsamlegast fyrir hana. Ég myndi að sjálfsögðu vinna. Helsta afrek fyrir utan íþróttirn- ar? -Lærði að elda pasta um daginn. Lífsmottó: -Hausinn upp og áfram gakk. Helsta fyrirmynd í lífinu: -Rosa- lega margir sem mig langar að telja upp en ég lít sérstaklega upp til ömmu minnar, Kristínar Einarsdóttur. Hún hefur einstaka sýn á lífið og hefur sýnt mér að maður fer lengst á jákvæðninni, bæði íþróttalega séð og bara í lífinu sjálfu. Hvað er verið að gera þessa dagana? -Ég er að læra í FNV, þjálfa yngri flokka Tindastóls og svo er ég að vinna í því að komast á bataveg eftir krossbandsslit sem gengur allt prýðilega. Hvað er framundan? -Framundan er langur bataferill hjá mér og ef allt gengur vel þá kem ég sterkari á völlinn á ný í lok sumars. Ég stefni langt í fótbolta og tek þessum meiðslum eins og vítamíni, þetta gerir mig sterkari. Svo er stórt sumar framundan hjá liðinu mínu, meistaraflokki kvenna Tindastóls. Við stefnum á að komast upp í Pepsi deildina. Þetta er frábær hópur sem ég hlakka til að styðja í botn í sumar, hvet alla til þess að gera hið sama og láta sjá sig á vellinum í sumar. Áfram Tindastóll! Krista Sól með liði Tindastóls síðastliðið sumar. MYND: ÓAB ( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@feykir.is Krista Sól Nielsen ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Dominos-deild karla | Tindastóll – Valur 89–91 Valsmenn kipptu fótunum undan Stólunum Tindastóll og Valur mættust í Síkinu sl. föstudag í 15. umferð Dominos-deildarinnar. Valsmenn hafa verið Stólunum erfiðir upp á síðkastið, töpuðu ósanngjarnt fyrir ári í Síkinu eftir framlengingu en unnu Stólana svo í framlengingu í haust. Stuðningsmenn Stólanna voru engu að síður bjartsýnir fyrir leikinn í gær, enda nýr Kani liðsins, Deremy Geiger, loks kominn með leikheimild. Það dugði þó ekki til því Valsmenn, með Austin Bracey óstöðvandi, unnu og þurftu ekki framleng- ingu til að þessu sinni. Lokatölur 89-91 og lið Tindastóls hefur nú tapað þremur af fjórum leikjum sínum í janúar. Það vantaði ekki að leikur liðanna var spennandi og jafn- vel skemmtilegur (fyrir aðra en stuðningsmenn Stólanna) enda munurinn aðeins einu sinni meiri en fjögur stig en liðin skiptust á um að vera yfir. Lið Tindastóls leiddi 27-23 eftir fyrsta leikhluta og Stólarnir hittu vel fyrir utan 3ja stiga línuna í leiknum, enduðu með 47% nýtingu, sem var eins gott því ekki gekk heimamönnum nógu vel að sækja inn í vörn Valsmanna. Boltinn gekk vel hjá gestunum og oftar en ekki fundu þeir Bracey frían og hann setti nánast öll skot sín í leiknum niður. Ef Stólarnir ætluðu að loka á Bracey þá opnaðist fyrir PJ eða Ragga Nat. Jafnt var í hálfleik, 47-47, og baráttan var mikil í síðari hálfleik en hvorugt lið náði nógu stóru áhlaupi til að skilja andstæðinginn eftir. Þetta var því spurning um hvort liðið gerði færri mistök á lokakafla leiksins. Valur var tveimur stig- um yfir fyrir lokafjórðunginn, 72-74, og síðustu mínúturnar var oftar en ekki allt jafnt. Bilic jafnaði leikinn 88-88 þegar tæp mínúta var eftir og fékk víti að auki sem hann skilaði niður og kom Stólunum yfir. Hann fékk síðan séns á að koma Stólunum þremur stigum yfir þegar hálf mínúta var eftir en sterk vörn gestanna gerði honum erfitt fyrir að leggja boltann í körfuna og Pavel hirti frákastið. Ísraelinn Naor gerði þá ágæta körfu og kom Val aftur yfir. Stólarnir tóku leikhlé og Pétur fékk í kjölfarið galopið færi fyrir utan en skotið vildi ekki niður. Það tók Stólana of langan tíma að brjóta á Valsmönnum og Bracey var sendur á línuna þegar innan við tvær sekúndur voru eftir. Hann setti því fyrra skotið niður og klikkaði á því síðara til að gefa Stólunum engan séns á að svara þar sem tíminn rann út. Tveggja stiga sigur Vals því staðreynd. Á morgun spila strákarnnir við Þór á Akureyri en á sunnu- dag kemur meistaralið KR í heimsókn í Síkið. /ÓAB Raggi Nat í baráttunni við Axel og Helga Rafn. MYND: HJALTI ÁRNA 1. deild kvenna í körfubolta Tapleikir gegn Grindvíkingum Kvennalið Tindastóls í körfunni spilaði tvo leiki við Grindavík-b um helgina og fóru báðir leikirnir fram í Mustad-höll Grindvíkinga. Stólastúlkur unnu báða heima- leiki sína gegn Suðurnesjastúlk- unum hér heima en nú fór á annan veg. Það munaði talsvert um að reynsluboltinn Petrúnella Skúladóttir var í liði heima- stúlkna en hún skoraði grimmt og hirti fjölda frákasta. Fyrri leikurinn fór fram á laugardag og þar voru Stóla- stúlkur að gera ágætlega. Lið Grindavíkur var átta stigum yfir í hálfleik, 33-25, en Tinda- stóll vann þriðja leikhlutann með sjö stiga mun og því munaði aðeins einu stigi fyrir lokafjórðunginn. Grindavík hóf fjórða leikhlutann betur en Hera Sigrún minnkaði muninn á ný í eitt stig með þristi. Næstu sex stig voru heimastúlkna en þegar þrjár og hálf mínúta var eftir af leiknum var staðan 60- 53. Þristur frá Marínu Lind og tvö víti frá Evu Rún minnkaði muninn í tvö stig, 60-58, en heimastúlkur reyndust sterkari í lokin og sigruðu 70-60. Petrúnella var með 23 stig og 16 fráköst í liði Grindavíkur en Tess skilaði 20 stigum og sjö fráköstum fyrir Tindastól. Þá var Eva Rún með 13 stig og sjö fráköst og Marín Lind 14 stig og fimm fráköst. Á sunnudag mættust liðin að nýju og Stólastúlkur virtust bara ansi ferskar. Þær fengu fljúgandi start og þristur frá Marínu Lind kom þeim sex stigum yfir, 11-17, en þá kvikn- aði á heimastúlkum sem gerðu næstu níu stig og þær voru síðan þremur stigum yfir að loknum fyrsta leikhluta. Tess kom Tindastóls-liðinu yfir á ný um miðjan annan leikhluta en hún fór meidd af velli skömmu síðar og staðan 41-41 í hálfleik. Grindavíkurstúlkur hófu þriðja leikhluta af krafti og þær leiddu að loknum þriðja leikhluta, 66- 52, og gerðu síðan fyrstu körfu fjórða leikhluta. Stólastúlkur minnkuðu muninn í níu stig en í kjölfarið náðu heimastúlkur 17-0 kafla og sigruðu að lokum 90-65. Tess var stigahæst með 18 stig og Marín Lind gerði 16 stig. Telma Ösp var best Stóla- stúlkna að þessu sinni með 11 stig og átta fráköst. Í liði Grindavíkur var Petrúnella með 21 stig og 15 fráköst. /ÓAB 04/2020 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.