Feykir - 26.08.2020, Síða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Skot
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvað er
skemmtilegasta
og leiðinlegasta
húsverkið?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : bladamadur@feykir.is / SHV
„Eru einhver húsverk
skemmtileg? En það
leiðinlegasta eru skúringar.“
Sunna Björk Björnsdóttir
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Eggaldin (fræðiheiti: Solanum melongena) er einær jurt er
getur náð yfir tveggja metra hæð. Á Wikipediu segir að hún sé
sennilega upprunnin á Indlandi en hafi borist með aröbum til
Miðjarðarhafslanda og er aldinið mjög vinsælt þar. Ótrúlegt, en
kannski satt, þá eru tveir þriðju hlutar eggaldins heimsins
ræktaðir í New Jersey.
Tilvitnun vikunnar
Ég vil ekki fara til himna – enginn vina minna er þar!
– Oscar Wilde
„Það er alveg fínt að þvo
þvottinn, en djö... leiðinlegt
að brjóta hann saman.“
María Dröfn Guðnadóttir
„Skúringar eru það
leiðinlegasta sem ég geri í
lífinu. En ætli það sé ekki
skemmtilegast að fylgjast
með bóndanum að þrífa
eldhúsið. Hann er svo góður
í því að mér dettur ekki í
huga að taka það af honum.“
Anna Szafraniec
„Að þurrka af finnst mér
vera leiðinlegasta húsverkið.
Það er erfiðara með það
skemmtilegasta þar sem fá
eru skemmtileg. En ætli það
sé ekki að baka þó ég geri nú
ekki mikið af því.“
Unnur Ólöf Halldórsdóttir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Hér hefur eitthvað gerst.
Grillaðar lambakótilettur
með svakalegu meðlæti
Nú er farið að halla sumri og allt að komast í gamla farið á ný eftir
sumarfrí og komandi skólahald. Ekki er langt þangað til sauðfé
verður sótt í afréttir landsins og sláturtíð þegar hafin hjá
einhverjum sláturleyfishöfum. Þá er nú rétti tíminn til að athuga í
frystikistuna, hvort þar leynast matvæli frá fyrra hausti, hvað þá
eldri.
Feykir fann þessa afbragðsgóðu uppskrift af grilluðum kóti-
lettum á heimasíðunni Eldhúsperlur Helenu og mælir eindregið
með því að þú prófir. Að sjálfsögðu má nota aðrar sneiðar í þetta
verkefni.
UPPSKRIFT 1
Grillaðar kótilettur
8 lambakótilettur
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 msk. saxað rósmarín
2 msk. sítrónusafi
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
1 dl ólífuolía
1 dl rauðvín
Aðferð: Öllu blandað saman og
hellt yfir lambakjötið, látið standa
við stofuhita í tvær klst., eða yfir
nótt í ísskáp. Kjötið er svo grillað á
útigrilli í um það bil 5-6 mínútur á
hvorri hlið við frekar háan hita.
Saxaðri steinselju stráð yfir kjötið
þegar það er tilbúið.
UPPSKRIFT 2
Hasselback kartöflur
með brúnuðu smjöri
Um það bil 10-12 frekar litlar
kartöflur, skolaðar og þerraðar
75 grömm smjör, brúnað
Salt, pipar og rósmarín
Aðferð: Raufar skornar í kar-
töflurnar, smjörið brúnað og hellt
yfir, Saltað og piprað og nokkrar
rósmaríngreinar settar með. Bakað
í ofni við 180 gráður í 60 mínútur.
UPPSKRIFT 3
Grískt salat
1 agúrka, kjarnhreinsuð
og skorin í sneiðar
2 öskjur kirsuberjatómatar,
skornir í tvennt
1/2 lítil krukka ólívur
1/2 krukka grillaðir ætiþistlar
1/2 krukka salat feti,
(olían sigtuð frá)
salt
pipar
1 msk. hvítvínsedik
2 msk. ólífuolía og
þurrkað oregano
Aðferð: Öllu blandað saman í skál,
ólífuolíu og ediki skvett yfir og
smakkað til með salti, pipar og
óreganó.
UPPSKRIFT 4
Graslaukssósa
2 dl AB mjólk
1 dós sýrður rjómi
1/2 búnt graslaukur, smátt
saxaður (þessi sem fæst í
plastbökkunum)
1/2 tsk. hunang
1 tsk. hvítvínsedik
Aðferð: Öllu blandað saman og
smakkað til með salti og pipar
Verði ykkur að góðu!
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) palli@feykir.is
Svakalega girnilegt meðlæti með lambakótilettum. MYND AF NETINU
32/2020 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Lítið kveisukast ég er.
Krakkar fela sig í mér.
Gíslum ógnun geigvænleg.
Gátuna ráddu eins og ég.