Feykir


Feykir - 02.09.2020, Qupperneq 8

Feykir - 02.09.2020, Qupperneq 8
„Það er mikilvægast að vinna með stæl“ Victor Borode í baráttunni gegn leikmanni Sindra í 4-3 sigri snemma í sumar. MYNDIR: ÓAB [ ERLENDIR TUÐRUSPARKARAR ] oli@feykir.is Victor Borode / frá London á Englandi / leikmaður í karlaliði Tindastóls Victor Borode (27) er einn af þeim leikmönnum sem Tindastólsmenn hafa fengið til liðs við sig frá Englandi til að styrkja liðið í baráttunni í 3. deildinni í knattspyrnu. Victor er af nígerískum uppruna en fæddur og uppalinn í London en fjölskyldan er risastór segir hann. Kappinn getur bæði spilað á miðjunni og í vörn en hann hefur mikið verið í stöðu hægri bakvarðar í leikjum Stólanna í sumar. Tækifærið að koma til Íslands kom þannig til að einn leiðbeinenda minna í þjálfun, en ég er að læra knattspyrnu- þjálfun, mælti með þessu og alþjóðleg reynsla mín hjálpaði. Vegna COVID-lokunar í Bretlandi var ekki mikið að gera en ég fór að stunda hjólreiðar og jók tímann sem ég notaði í bóklestur,“ segir Victor í spjalli við Feyki um mánaðamótin júlí/ágúst. Var tíminn í sóttkví erfiður eftir komuna til landsins? „Alls ekki, það var bara fínt í sóttkví, ég hélt áfram að lesa og æfa eins mikið og ég gat. Strákarnir sem ég bý með eru líka góðir drengir svo mér leiddist aldrei.“ Hvað hefur komið þér mest á óvart hér á Íslandi? „Ég held að enn hafi ekki neitt komið mér verulega á óvart, kannski á það eftir að gerast en ég efast um það.“ Hvernig er að vera í Tinda- stólsliðinu? „Að vera hluti af liðinu er ótrúlegt, ég elska áskoranir svo framarlega sem markmiðið er að vinna og vinna með stæl sem er ná- kvæmlega það sem liðið vill gera. Það finnst mér mikil- vægast.“ Hver er uppáhalds liðsfélaginn? „Haha, það er ómögulegt fyrir mig að velja uppáhalds liðs- félagann þar sem ég er í góðu sambandi við alla leikmenn- ina. En ef ég þarf að velja leikmann sem stendur upp úr hvað mig varðar þá væru það annað hvort Jónas eða Dóri, vinnusemi þeirra og löngun á vellinum er mikill eiginleiki.“ Hvaða væntingar gerðirðu til tímans á Íslandi? „Ég vona að við vinnum deildina eða að minnsta kosti ná að komast upp um deild, það er mikilvægt UPPÁHALDS SNAKKIÐ: Ég reyni að sleppa snakkinu en bakkelsið í Bakaríinu er æðislegt. LAG SUMARSINS: Íslenska lag sumarsins hjá mér er annað hvort Flýg feat. Bubbi Morthens eða Fólkið tekur ekki eftir með Ouse, Helga Sæmundi og Elijah Midjord. SKRÍTNASTI MATURINN SEM ÞÚ HEFUR BRAGÐAÐ Á ÍSLANDI: Það hlýtur að vera snakkið hans Ísaks, súkkulaðilakkrís með pipar, haha... UPPÁHALDS FÓTBOLTALIÐIÐ ÞITT: ppáhaldsliðið á Íslandi er Tindastóll FC. Áfram Tindastóll!! stutta spilið að við náum þessu fyrir Sauðár- krók og Tindastól. Sömuleiðis er mikilvægt fyrir mig að hjálpa stelpunum í yngri flokkunum að bæta sig síðan en ég tók að mér að aðstoða Amber við að þjálfa þær. Vilji þeirra til að læra hefur verið ótrúlegur og hann skilar smám saman framförum. Vonandi ná ein eða tvær þeirra að spila sinn fyrsta leik með meist- araflokki kvenna fyrir lok tímabilsins en það verður reyndar ekki auðvelt því það er skipað virkilega góðum leik- mönnum sem eru að ná frá- bærum árangri á vellinum.“ Hvaða leikmaður hefur verið þín fyrirmynd? „Ég á mér ekkert sérstakt uppáhaldslið heldur frekar stíl. Lið eins og Leeds, Brentford, Manchester City, Arsenal, Leicester City, Chelsea, Wolves og Sheffield United. Ég hef gaman af því að horfa á og læra af öllum leikjum og leikaðferðum liðanna. Þeir leikmenn sem hafa veitt mér innblástur eru til dæmis Viera, fyrrverandi fyrirliði Arsenal, mjög greindur leikmaður sem að auki var alvöru stríðsmaður sem ég vona að ég eigi eftir að vinna með einn daginn, Clarence Seerdorf, ótrúleg gæði í honum og ég er svekktur að hafa ekki getað fylgst betur með hans ferli, Jay Jay Okocha, hann virtist hafa mjög gaman af fótbolta, og svo David Beckham sem að mínu áliti hefði getað orðið einn besti Victor og félagi hans, Isaac Owusu Afriyie, í leik gegn Elliða. miðjumaður í heimi – ekki það að hann hafi átt eitthvað slæman feril!“ Hvað gerir þú annað hér á Króknum en spila fótbolta? „Strákarnir í liðinu hafa verið duglegir við að hafa okkur með og hafa verið frábærir í að láta okkur líða eins og heima hjá okkur, hvort sem þeir eru að fara út, grilla eða bara tjilla og horfa á fótbolta. Svo er ég að vinna hjá Dodda málara.“ Hvað hefur verið erfiðast við að vera hér? „Það er kannski ekkert sem hefur verið sér- staklega erfitt en ég er borgar- strákur sem er að venjast því að búa í bæ.“ 8 33/2020

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.