Feykir - 02.09.2020, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Loft
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hefurðu skoðað
einhverja fossa
í sumar?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„já ég er búin að skoða
nokkuð marga, mæli mikið
með að skoða fallega landið
okkar og fossana!“
Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Knattspyrnumenn af báðum, eða öllum, kynjum hafa flestir þann
leiða ávana að hrækja í gríð og erg meðan þeir leika fótbolta.
Venjulegt fólk spýtir einnig út í loftið, mismikið þó, en ótrúlegt, og
kannski satt, þá framleiðir líkaminn nóg munnvatn á lífsleiðinni til að
fylla heila sundlaug.
Tilvitnun vikunnar
Áður en þú setur upp skeifuna
fullvissaðu þig um að engin bros séu í boði!
– James M. Beggs
„Já, ég er búin að ferðast
töluvert í sumar. Það var til
dæmis mjög gaman að skoða
Aldeyjarfoss í Bárðardal.“
Sigurjón Hilmar Jónsson
„Þeir voru nú ekki margir
í sumar en allavega
Seljalandsfoss, Gullfoss og
yfirfallsfossinn í Blöndu.“
Unnar Bjarki Egilsson
„Rölti að Seljalandsfossi
og Gljúfrabúa meðan
ég beið eftir fari með
Herjólfi til Eyja.“
Steinunn Hulda
Hjálmarsdóttir
smá tan (smá lit). Tómötunum
hellt í sigti og lögurinn látinn renna
af þeim en síðan er þeim hrært
saman við, ásamt kryddjurtunum.
Látið malla í 3-4 mínútur en þá er
rauðvíninu hellt út í, kryddað með
pipar og salti, lambaskönkunum
bætt í pottinn og hitað að suðu.
Lok sett á pottinn og hann settur í
ofninn. Kjötið er gufusteikt í 2 klst.
og snúið þrisvar eða fjórum
sinnum á meðan og soðinu ausið
yfir. Þegar kjötið er meyrt er það
tekið upp og fært á hitað fat. Hægt
er að nota töfrasprota og búa til úr
soðinu sósu sem hægt er að hella
yfir skankana. Ég hef bara veitt allt
upp úr og boðið það sem meðlæti.
EFTIRRÉTTUR
Trufflur með túrmerik
10–14 stk.
300 g kókosmjöl, eða kókos-
flögur muldar í matvinnsluvél
250 g hrátt lífrænt hunang
1-2 msk. lífrænt hreint túrmerik
Aðferð: Setjið kókosmjölið í skál
ásamt hunangi og túrmerikdufti,
blandið vel saman. Búið til passlega
stórar kúlur úr deiginu og frystið.
Á meðan þær eru í frysti er gott að
gera súkkulaðihjúpinn. Dýfið kúl-
unum að hluta í súkkulaðihjúpinn
en einnig má þekja þær alveg með
súkkulaðinu. Fallegt er að leyfa
gula litnum að njóta sín.
Súkkulaðihjúpur:
4 msk. kókósolía
1½ dl kakósmjör
125 g hreint kakó
Aðferð: Setjið í skál yfir vatnsbaði
og hrærið vel saman með gaffli þar
til allt hefur samlagast.
Verði ykkur að góðu!
Ég skora á Ragnheiði Jónu sveitar-
stjóra að taka þátt á eftir mér.
Trúir ekki á forrétti!
Jennifer Tryggvadóttir eða „Nennímín“ eins og hún er oftast
kölluð er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Hún flutti aftur
heim eftir algjöra U-beygju í lífinu og vinnur sem deildarstjóri á
yngra stigi í leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga. Eitt af
áhugamálum hennar er matargerð ásamt því að stunda sund og
kalda karið, jóga, hugleiðslu og göngutúra. Það skemmtilegast
við matargerðina er að kíkja inn í ísskápinn og búa til rétt úr því
sem til er.
,,Skemmtilegast þykir mér þó að kíkja í ísskápinn og búa til rétt
úr því sem til er. „Hvað er til í ísskápnum“ uppskriftin varð einmitt
til þegar ég reyndi að muna eftir marakkóskri uppskrift sem ég las
fyrir langa löngu en mundi ekki alveg smáatriðin, þannig að ég
notaði bara það sem til var í ísskápnum. Ég fann þar ræfislega
skanka, fennel, gulrætur og lauk. Ég mundi líka eftir að eiga
tómata í dós uppi í skáp. Þá ákvað ég að skítmixa þetta allt saman.
Svo rak ég augun í rauðvínsflöskuna sem vinkona mín gleymdi,
það var „smá“ eftir í flöskunni og það var líka notað.“
FORRÉTTUR
Salat með jarðarberjum
Glas af vatni eða bjór
Ég trúi ekki á forrétti, eða eins og
börnin í leikskólanum mundu
segja: „Ég elska ekki forrétti.“
AÐALRÉTTUR
Hvað er til í ísskápnum?
3 msk. ólífuolía
3-4 stk. lambaskankar
2 stk. laukar
2 stk. hvítlaukar, skipt í geira og
þeir afhýddir
1 dós saxaðir tómatar
1 tsk. oregano, þurrkað
½ tsk. basilíka, þurrkað
1-2 stk. fennel
2 stk. gulrætur (skornar í teninga)
2 stk. tómatar (meðalstórir)
50 ml rauðvín eða það sem eftir er
í flöskunni
nýmalaður pipar
salt
Aðferð: Ofninn hitaður í 175°C.
Olían hituð í þykkbotna potti sem
þolir að fara í ofninn og lamba-
skankarnir brúnaðir í olíunni á
öllum hliðum. Teknir upp úr og
geymdir en laukurinn, hvítlaukur-
inn, fennelið og gulræturnar sett í
pottinn og látið krauma við
meðalhita í 5-8 mínútur til að fá
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Jennifer Tryggvadóttir frá Hvammstanga matreiðir
Jennífer. AÐSEND MYND
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Ljótur er þessi furðusveppur.
33/2020 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Upp í mig þó allt sé hér.
Andann skaltu draga rótt.
Vaka meðan sólu sér.
Sofa hérna uppi í nótt.