Feykir


Feykir - 02.09.2020, Blaðsíða 3

Feykir - 02.09.2020, Blaðsíða 3
Sérfræðikomur í september 2020 www.hsn.is 11. SEPTEMBER Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir 14. SEPTEMBER Haraldur Hauksson, alm/æðaskurðlæknir 21. – 22. SEPTEMBER Sigurður M. Albertsson, alm. skurðlæknir Tímapantanir í síma 432 4236 Nýr sjúkrabíll tekinn í notkun Brunavarnir Skagafjarðar Brunavarnir Skagafjarðar hafa tekið í notkun nýjan sjúkrabíl, en um er að ræða einn af þeim 25 bílum sem Rauði krossinn er að afhenda um þessar mundir. Á Facebooksíðu Brunavarna segir að starfsmenn hafi verið að koma fyrir búnaði af ýmsum toga í bílnum og að óhætt að segja að útkoman sé stórgóð. Formleg afhending nýrra sjúkrabíla Rauða krossins á Íslandi hófst um miðjan ágúst og þar með raungerðist endur- nýjun sjúkrabílaflotans í sam- ræmi við samkomulag Sjúkra- trygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí á liðnu ári. „Þetta er stór dagur sem markar tímamót í þjónustu við landsmenn á sviði sjúkra- flutninga og skiptir jafnframt miklu máli fyrir þá sem sinna þessu mikilvæga verkefni,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, við það tækifæri. Efnt var til útboðs um bílakaupin og átti fyrirtækið Fastus tilboðið sem skoraði hæst og var tekið. Á heimasíðu stjórnarráðsins kemur fram að bílarnir 25 séu af tegundinni Mercedes Benz Sprinter. Þeir eru stórir og rúmgóðir sem tryggir sjúklingum góðar aðstæður, auðveldar sjúkra- flutningamönnum að sinna þeim um borð og eykur þannig öryggi þjónustunnar. Í útboðinu var áhersla lögð á að nýir bílar myndu uppfylla ströngustu kröfur sérfræðinga varðandi öryggi, aðbúnað og vinnuumhverfi. /PF Vegna heimsfaraldar kórónaveirunnar var aðalfundi KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu sem halda átti í vor frestað um óákveðinn tíma. Nú er boðað til aðalfundar félagsins þann 3. september 2020 kl. 17:00 í Hömrum í Hofi á Akureyri. Streymt verður beint frá fundinum og verður hægt að nálgast slóð á streymið á vef félagsins. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins -Stjórnarkjöri lýst -Önnur mál. Vegna aðstæðna í samfélaginu eru fundarmenn beðnir að skrá sig til fundarins vef félagsins kjolur.is Hægt er að leggja inn fyrirspurnir eða gera athugasemdir við form fundarins vef félagsins kjolur.is Fundurinn er pappírslaus og geta félagsmenn nálgast öll fundargögn á vef félagsins kjolur.is Akureyri 13. ágúst 2020 Stjórn Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu www.skagafjordur.is Upplýsingar til almennings um göngur og réttir 2020 Sökum hertra sóttvarnaaðgerða sem nú eru í gildi vegna Covid-19 hafa ýmsar takmarkanir verið settar á fyrirkomulag við göngur og réttir 2020. Takmarkanir eru eins og hér segir: Réttir - Aðeins þeir sem eiga erindi í réttir og hafa fengið aðgöngumiða mega mæta í réttir. - Fjöldatakmarkanir í réttum eru 100 manns. Börn fædd 2005 og seinna eru undanskilin fjöldatakmörkunum. - Hliðvarsla verður við aðkeyrslu að réttum. - Ekki er mælst til þess að áfengi verði haft um hönd. - Nauðsynlegt er að halda tveggja kinda fjarlægð milli ótengdra aðila. Göngur - Fjallaskálar og húsnæði sem notað er við göngur eru eingöngu opin fyrir smala og þá sem hafa hlutverk í göngum og leitum - Nauðsynlegt að halda tveggja kinda fjarlægð milli óskildra aðila. - Ekki er mælst til þess að áfengi verði haft um hönd. Allir aðilar sem koma að göngum og réttum þurfa að hlaða niður smitrakningarforriti almannavarna. Laufskálarétt verður ekki haldin með hefðbundnu sniði líkt og undanfarin ár. Bændur munu rétta hrossin í samræmi við 100 manna fjöldatakmörk og liggur dagsetning þess gjörnings ekki fyrir. Mikilvægt er að hafa að leiðarljósi að „Við erum öll almannavarnir“. Nýju sjúkrabílarnir hafa fengið nýtt útlit eru gulir á lit með svokölluðu Battenburg mynstri sem eykur sýnileika þeirra í umferðinni. MYND: BRUNAVARNIR SKAGAFJARÐAR Heildarfjöldi umsókna nánast óbreyttur frá síðasta ári Góð aðsókn að Háskólanum á Hólum Kennsla við Háskólann á Hólum hófst nú um mánaðamótin. Um 200 nemendur sækja nám við skólann og virðast heimtur á eldri nemendum ætla að verða með albesta móti. Vonast skólastjórnendur til þess að m.t.t. sóttvarnaráðstafana náist að halda úti óskertri kennslu hjá staðarnemum þrátt fyrir Covid-19. Til að byrja með verða fjarnemar ekki kallaðir inn í staðbundnar lotur heim að Hólum en vonast er þó til að hægt verði að gera það þegar líður á haustið. Þangað til verða viðfangsefnin í lotum leyst á annan hátt, t.d. með netfundum á ZOOM. Ásókn hefur helst aukist í nám í fiskeldisfræði miðað við undanfarin ár og styttri námsleiðirnar í ferðamáladeild (diplómanám) er alltaf jafn vinsælar. Einhver er þó fækkunin á umsóknum um BA–nám en í hestafræðideild eru teknir inn um 20 nýnemar á ári og komast færri að en vilja. Sjá nánar á Feykir.is. /SHV 33/2020 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.