Feykir


Feykir - 09.09.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 09.09.2020, Blaðsíða 7
100 þúsund króna styrk úr Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga í verkefnið en Sigurður viðurkennir að eitt- hvað standi þó út af ennþá. „Þetta kostar sennilega yfir 200 þúsund allt saman, þannig að við tökum þetta á okkur við Hjalti. Við erum mennirnir á bak við þetta, að koma þessu í kring, með aðstoð annarra góðra manna,“ segir hann en sagan um Helgu hefur lengi verið í minni hans. „Já, maður heyrði þetta frá blautu barnsbeini að Helga hafi verið þarna með sínu fólki uppi í Húsgilsdraginu og þessi saga er að nokkrum hluta skráð. Ólafur Gunnarsson skrifaði m.a. bókina um Jón Arason, Öxin og jörðin, þar sem hann segir nokkuð ýtarlega frá þessu. Það er nú svo sem ekki vitað alveg fyrir víst hvað var margt fólk með henni en eitthvað af hennar fjölskyldu var með henni í þessari útlegð. Árið eftir var haldið dómþing við Vallarlaugina, sem var á tímabili þingstaður Skagfirðinga, þar sem hún var ákærð fyrir að hlaupast undan merkjum og vera ekki á staðnum. Ég veit svo sem ekki hver rökin voru fyrir því en þar voru einnig ákærðir bændurn- ir í Djúpadal og Stóru-Ökrum fyrir að hafa veitt henni aðstoð í þessum fylgsnum uppi í gilinu. Því þeir hafa væntanlega fært henni vistir þarna upp og séð um aðföng fyrir hana. Þannig var að þau voru öll þrjú ákærð á þessu dómþingi 1552 en voru öll sýknuð fyrir rest. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að það væri engin sekt í boði, þannig að þau voru sýknuð af þessum ákærum sem voru borin á þau. Það er heilmikil saga á bak við þetta í sjálfu sér og Ólafur telur, ef ég man rétt, nokkuð víst að þýsk skip hafi verið uppi í Kolbeinsárós, eða Kolkuósi, en Jón treysti alltaf á Þjóðverja sér til aðstoðar í sinni pólitísku baráttu gegn Dönunum. En hann vissi ekki um það að Danir og Þjóðverjar voru þá búnir að semja frið þannig að þessi þýska aðstoð sem hann átti von á var farin fyrir bí með því móti. En það má leiða líkum að því að Helga, og þau sem með henni voru, hafi verið þarna í þýskum tjöldum, alla vega gerir Ólafur því skóna. Ég veit náttúrulega ekki hvað hann hefur rannsakað þetta djúpt en hann fór talsvert ofan í heimildir og það eru náttúrulega til í dómabókum frásagnir af þessu öllu saman.“ Blý í kok böðulsins Þó leiðangurinn í Húsgilsdragið hafi verið fámennur stóð upphaflega til að gera meira úr viðburðinum, en eins og með margt annað setti Covid-19 strik í reikninginn. „Það stóð til, og búið að ákveða, að það yrði málþing í Kakalaskálanum daginn eftir í samvinnu við Árnastofnun. Þema þeirrar málstefnu átti nánast blindur. Þarna má segja að haltur hafi leitt blindan. En þegar hér var komið sögu varð mér það ljóst að leiðangurinn yrði ekki fjölmennari og eftir að allur farangur hafði verið settur í töskurnar góðu og þær festar á klakka var riðið af stað, ná- kvæmlega klukkan 14:30. Hnarreistir knapar Nú var stefnan tekin á norðurhlið Glóðafeykis og var leiðin brött því upp fyrir miðjar hlíðar þurfti að komast áður en stefnan væri tekin inn Flugumýrardalinn. Þetta reyndi á klárana og reglulegar áningar þeim kærkomnar. Garparnir þrír, sem ég lýsti heldur glannalega áðan, voru heldur betur góðir og skemmtilegir ferðafélagar. Margar sögur og vísur fengu að fljúga og sóttvarnarlögurinn sem hafður var með í för einungis notaður innbyrðis. „Til hvers að ganga þegar hægt er að fara þetta ríðandi,“ fylgdi einhverri sög- unni og það voru orð að sönnu. Þórólfur og Sigurður, sem ávörpuðu hvorn annan „fóstri“, eru um áttrætt en Ingimar fast að sjötugu og þegar í hnakkinn var komið voru þeim félögum allar leiðir færar. Eftir um tveggja tíma reið, nánast allan tímann upp í mót, náðum við loks áfanga- stað, í Húsgilsdrag, þar sem felustaður frúarinnar var hér forðum. Hér skal skotið inn í að mikinn fróðleik er að finna um Helgu Sigurðardóttur í grein Þormóðs Sveinssonar í Skagfirðingabók, 6. árgangi 1973, sem einmitt ber heitið Felustaður frúarinnar á Hól- um. Einnig er hægt að finna hana á Tímarit.is. Þegar búið var að finna grjótið, sem ætlað var fyrir minningarplattann, var haf- ist handa við að taka upp úr töskunum þann búnað sem þurfti til þess verkefnis sem leiðangursmenn höfðu lengi stefnt á. Höggborvél af stærri gerðinni, tveir borar af sitthvorri stærðinni, túpa af steypuviðgerðarefni ásamt kíttissprautu, minningarplatti, kassi undir gestabók og svo bókin sjálf og skriffæri. Veðrið hafði leikið við ferðalanga fram til þessa en um leið og fyrstu drunur borvélarinnar ómuðu um dalinn var eins og himnarnir opnuðust og regnið buldi á mönnum og skepnum. Til að ráða í þá jarteikn var það látið heita að Jón biskup væri að skvetta vígðu vatni á liðið, enda allir bersyndugir. Eftir að búið var að festa platta og járnkassann stytti nægilega upp svo hægt var að rita í gestabókina. Ekki vildi þó betur til en svo að þegar Sigurður draup höfði við skriftir rann heilmikil buna af reiðhjálminum á blaðsíðuna sem hann var að rita á og má þá heita að bókin hafi þá einnig verið vígð með heilögu regnvatni. Nú var tími til kominn að halda heim á leið að afloknu góðu dagsverki, með smá krókum. Fyrst var farinn stuttur spotti að suðurenda Húsgilsdragsins en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Húsgilið, sem skilur Glóða- feyki og Miðfjall að, og niður í Djúpadal. Á heimleiðinni var riðið meðfram Hvammsánni sem rennur á landamerkjum Flugumýrarhvamms og Flugu- mýrar um heilmikið og fagurt gljúfur er kallast Gálgagil. Fengum við góða tilsögn Ingimars sem uppalinn er á Flugumýri og hafði frá mörgu skemmtilegu að segja. Hvenær við komum niður hef ég ekki hugmynd um enda löngu hættur að líta á klukkuna. Tíminn skipti engu máli í þessari ferð. Lýkur þar með ferðasögu þessari. Öxin og jörðin Ekki skal sleppt tilurð þess að minningarskjöldur um Helgu Sigurðardóttur var festur á stóran stein í Húsgilsdragi og var því Sigurður Hansen, sem átti hugmyndina að þessu og kom í framkvæmd, spurður út í hana skömmu eftir leiðangurinn sem að framan greinir. Segir Sigurður að hann hafi verið áhugamaður um þetta sögusvið lengi og hafi verið svo heppinn að hafa rætt það við Hjalta Pálsson, vin sinn, og fékk hann til liðs við sig að reyna að koma þessu í framkvæmd. Í fyrrasumar fengu þeir félagar Leiðangursmenn í upphafi ferðar, Sigurður Hansen, Guðný Axelsdóttir, Þórólfur Péturs- son og Ingimar Ingimarsson. Áð í hlíðum Glóðafeykis. Hundurinn sjóndapri fylgir eiganda sínum. Og loksins sér í Húsgilsdragið. Rétt handan haftsins er steinninn sem leitað var að. Plattinn góði kominn á steininn. Takið eftir tákninu á milli textanna, rísandi sól og biskupshúfa á hvolfi. Leiðin er brött upp á fjárgöturnar sem liggja inn Flugumýrardalinn. 34/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.