Feykir


Feykir - 09.09.2020, Blaðsíða 3

Feykir - 09.09.2020, Blaðsíða 3
Framkvæmt í hverfisbrekkunni á Sauðárkróki Gamla hlaðan lifnar við Hafist hefur verið handa við framkvæmdir í Sæmundarhlíðinni á Sauðárkróki en þar hyggjast Gagn ehf. og Sauðárkróksbakarí blása lífi í gömlu hlöðuna, sem stendur við mynni Sauðárgils og Litlaskógar, og gera að veitinga- og samverustað í miðju Króksins. Að sögn Magnúsar Freys Gíslasonar, arkitekts og hönnuðar, gengur verkefnið út á „...að glæða þennan stað lífi og toga fólk út að sýna sig og sjá aðra og njóta matar og drykkja með félögum, öðrum íbúum samfélagsins og þeirra gesta sem við fáum í fjörðinn.“ Magnús segir að staðurinn sé fyrst og fremst hugsaður fyrir heimafólk og miðast reksturinn við að þjónusta nærsamfélagið. „Þarna er hægt að tylla sér í hressingu eftir göngutúr um þær mörgu göngu- leiðir sem tengjast staðnum í gegnum t.d. Sauðárgil. Námsmenn úr FNV, hinum megin við götuna geta sest þarna inn og unnið í ritgerðum yfir góðum kaffibolla. Þarna getum við hist fyrir og eftir körfuboltaleiki og lengi mætti áfram telja.“ Það eru Gagn ehf., í eigu Magnúsar og Kolbrúnar Daggar Sigurðardóttur konu hans, og Sauðárkróksbakarí, sem Róbert Óttarsson og Selma Barðdal eiga, sem standa að framkvæmdum. Hvað á að byggja og hvernig hyggist þið nota gömlu hlöðuna sjálfa? „Við erum að nýta núverandi byggingu og í henni verður aðal- rými veitingastaðarins, þar er afgreiðsla og sæti við glugga sem opnar á útsýni upp Sauðárgil. Svo eru reistar viðbyggingar, sitt hvoru megin, annars vegar bakendi sem inniheldur vörumóttöku, eldhús og starfsmannaaðstöðu. Svo hins vegar skála með sætum og snyrtingu. Á suðvestur horni er svo stór pallur.“ Stefnt að opnun sumarið 2021 Hlaðan gamla, eins og hún er oft kölluð, er kannski best þekkt hin síðari áður sem aðsetur þeirra sem unnu við skólagarðana og ungra kofasmiða. Magnús segir að þau Kolbrún hafi haft auga á þessu húsi síðan þau fluttu aftur á Krókinn og hafi verið að kasta hugmynd- inni á milli sín í nokkur ár. „Síðan kynntum við hugmyndina fyrir Róberti hjá Sauðárkróksbakaríi og höfum við verið að þróa verkefnið frekar síðan,“ segir Magnús Freyr. Hvers konar staður á þetta að vera? „Markmiðið er að hvetja fólk til þess að flytja saumaklúbbinn, afmælið eða hvaða tilefni sem er í þessa samfélagsmiðstöð sem við vonumst til að skapa. Þá er líka hægt að setjast í drykk, gæða sér á smáréttum og njóta þess að vera innan um aðra. Þá er einnig stefnan að geta hýst viðburði, fundi og litla tónleika á staðnum. Fallegt úti- svæði með frábæru útsýni er svo góð viðbót á sumrin.“ Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að- komu gesta og umhverfið í kring? „Staðsetningin hentar afar vel í þessa gerð af rekstri þar sem þetta er mjög miðsvæðis í bænum og á mörkum bæjar og náttúru. Þjónusta af þessu tagi er einnig takmörkuð í þessum hluta bæjarins og er staðurinn í göngufæri við öll hverfin. Tillagan inniheldur engin bílastæði þar sem ætlunin er að halda svæðinu nánast bíllausu og lágmarka allt rask á umhverfinu við veitingastaðinn. Tvö bílastæði verða þó til staðar, eitt fyrir fatlaða og annað fyrir lestun og losun. Suðvestan við húsið er gamli matjurtagarðurinn, eða skólagarð- arnir, og hann væri gaman að yrkja upp að nýju og nýta í matreiðslu á staðnum og/eða að bjóða bæjar- búum reit til að rækta sitt eigið grænmeti.“ Hvað hefur verið mest ögrandi við þetta verkefni? Áskoranir hafa verið í ferlinu en nú er verkið hafið og skotgengur undir handleiðslu öflugra verktaka enda eigum við Skagfirðingar einstaklega fært fólk á öllum sviðum sem snúa að svona framkvæmd. Þannig að við horfum bjartsýn fram á veginn og hlökk- um mikið til að geta boðið alla velkomna sumarið 2021,“ segir Magnús Freyr að lokum. /ÓAB Myndin sýnir hugmynd hönnuðarins um það hvernig aðkoman að veitingastaðnum verði. MYND AÐSEND Séð yfir svæðið. Bóknámshús FNV til vinstri og sjúkrahúsið efst til hægri. MYND: PF Frá framkvæmdum. MYNDIR AÐSENDAR Við óskum Sauðárkróksbakaríi til hamingju með 140 ára afmælið Akurhlíð 1 Sauðárkróki Sími 453 6166 Borgarflöt 3 Sauðárkróki Sími 453 6490 Sími 455 6000 www.skagafjordur.is Dalvegi 4 Kópavogi Sími 564 4700 Borgarteigi 12 Sauðárkróki Sími 453 5000 Landsbankinn Sími 410 4000 www.li.is VERKFRÆÐISTOFA Aðalgötu 21 550 Sauðárkróki Sími 458 5050 Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5170 Sími 444 7000 www.arionbanki.is Sauðárkróki Sími 453 5020 Bílaverkstæði Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5433 www.stettarfelag.is Sími 432 4200 (Sauðárkróki) | www.hsn.is Hesteyri 1 Sauðárkróki Sími 455 4400 www.fisk.is Vélaverkstæði Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4560 34/2020 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.