Feykir


Feykir - 09.09.2020, Page 10

Feykir - 09.09.2020, Page 10
Hversu margir listamenn hafa sótt Nes listamiðstöð heim í ár og eftir hverju eru þeir að leita með því að sækja hingað? „Það sem af er árinu 2020 höfum við tekið á móti 23 listamönnum, venjulega höfum við 90-120 listamenn á ári, í fyrra hýstum við 105 listamenn. Í ágúst voru sex listamenn sem komu frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Þýskalandi og Austurríki og níu listamenn munu dvelja hjá okkur í september. Listamannabústaðurinn í Nesi býður listamönnum tíma og rúm til að kanna og þroska starfshætti sína innan annars samfélags, hitta nýtt fólk, finna innblástur og kynna og kynnast nýrri menningu. Að dvelja hér á Skagaströnd, í þessu landslagi, veitir gestum okkar ró og næði og tengingu við náttúruna langt í burtu frá daglegu amstri borgarlífsins.“ Eru listamennirnir almennt ánægð- ir með tíma sinn á Skagaströnd? „Ólíkt ferðamönnum, sem dvelja sjaldan meira en nokkra daga á einum stað, eru þeir erlendu listamenn sem dvelja hjá okkar búsettir hér í 1–6 mánuði og sökkva sér niður í samfélagið og skapa alls kyns þroskandi menningarsamskipti við aðra listamenn og heimamenn. Listamennirnir vilja ekki bara tíma til að þróa hugmyndir sínar og sköpunarferli í friði, heldur einnig að upplifa dýrmæt og þroskandi tengsl við fólkið á Skagaströnd og á Norðurlandi vestra. Þeir snúa oft aftur hingað til Skagastrandar til að halda við þeirri vináttu og tengslum sem myndast hafa.“ Hvað eruð þið sjálf ánægðust með varðandi listamiðstöð á Skaga- strönd? Það sem hefur veitt okkur mesta ánægju hér á Nes listamiðstöð er menningar- og félagsleg þátttaka milli listamannanna og nærsamfélagsins, miðlun þekkingar með kynningum, sýningum, opnum vinnustofum og ýmsum uppákomum. Listamennirnir hafa miðlað rausnarlega kunnáttu og skapandi þekkingu til barna í skólunum hér á Norðurlandi vestra og vinna oft með heimafólki í skapandi og sameiginlegum verkefnum,“ segir Vicki að lokum. Opin vinnustofa. MYND: ÓAB Það er Króksarinn Valdís Valbjörnsdóttir sem svarar Tón-lystinni að þessu sinni en hún er 20 ára, dóttir Önnu Sigríðar Stefánsdóttur og Valbjörns Geirmundssonar. Hljóðfæri Valdísar eru röddin og gítar en nýlega lauk hún námi við Complete Vocal söngskólann í Kaupmannahöfn. Valdís tók árið 2018 þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd FNV og sigraði þar símakosninguna. Nú í júlí vakti hún verðskuldaða athygli þegar hún söng Vor í Vaglaskógi undurfallega í Tónaflóði Sjónvarpsins. Spurð út í helstu afrekin á tónlistarsviðinu hingað til segir hún: „Að vera byrjuð að gefa út mitt eigið efni,“ en í vor gaf Valdís út hið ágæta lag Hold On To Our Love í samstarfi við Future Lion og nú rétt á dögunum bætti hún við laginu Fake Friends. Hvaða lag varstu að hlusta á? The Love Club með Lorde. Uppáhalds tónlistartímabil? Núna, elska að fylgjast með í hvaða átt tónlistin er að fara. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Er mjög mikið að fylgjast með poppinu og hef verið að hlusta á tónlistarmenn eins og Ariönu Grande, Sigrid, Charlie Puth, Zara Larsson, Troye Sivan og Wafia. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Það var mjög fjölbreytt. Pabbi hlustaði á bæði rokk og popp en mamma var meira í diskóinu. toppurinn Vinsælast á Playlista Valdísar: Don’t Kill My Vibe SIGRID I Warned Myself CHARLIE PUTH I’m Good GLOWIE God Is A Woman ARIANA GRANDE Hurts WAFIA FT. LOUIS THE CHILD & WHETHAN Blue World MAC MILLER Valdís Valbjörnsdóttir | söngur og gítar Eitt af topp 10 bestu mómentum lífsins að hitta Ariönu Grande ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Hver var fyrsta platan/diskurinn/kas- ettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Er ekki alveg viss, en fyrsta niðurhalið mitt á iTunes var Yours Truly albúmið með Ariönu Grande. Hvaða græjur varstu þá með? Var með iPhone 5. Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Örugglega This Is Me með Demi Lovato úr myndinni Camp Rock, söng þetta lag mjög mikið þegar ég var lítil. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Ég er með mjög breiðan tónlistarsmekk og hef ekki ennþá heyrt lag sem gæti virkilega eyðilagt fyrir mér daginn. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki mesta partí manneskja sem hægt er að finna, en það kemur ekkert annað til greina en I Want It That Way með Backstreet Boys. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudags- morgni, hvað viltu helst heyra? Kósí playlistann minn sem inniheldur falleg róleg lög með Adele, Tom Odell, Tori Kelly, Ben Platt, FINNEAS, Daniel Caesar og fleiri. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég myndi vilja fara á Demi Lovato tónleika í London með systur minni. Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkomin með bílpróf? Ég er mikil söngleikja manneskja og þegar ég fékk bílpróf þá var ég að blasta Hamilton, sem ég kann frá A-Ö. Alveg magnaður söngleikur, mæli mjög mikið með! Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera eða haft mest áhrif á þig? Ariana Grande, hef verið mjög mikill aðdáandi hennar síðan hún byrjaði að gefa út tónlist og ég fæ mjög mikinn innblástur frá henni. Hitti hana baksviðs á tónleikunum hennar í Edinborg árið 2015 og það er eitt af top 10 bestu mómentum lífs míns. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég myndi segja Yours Truly og My Everything með Ariönu Grande. Þetta er í rauninni það fyrsta sem ég hlusta á þegar ég fer í alvörunni að pæla í tónlist. VALDIS. AÐSEND MYND 10 34/2020

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.