Feykir - 09.09.2020, Blaðsíða 10
Hversu margir listamenn hafa
sótt Nes listamiðstöð heim í ár og
eftir hverju eru þeir að leita með
því að sækja hingað? „Það sem af
er árinu 2020 höfum við tekið á
móti 23 listamönnum, venjulega
höfum við 90-120 listamenn á ári,
í fyrra hýstum við 105 listamenn. Í
ágúst voru sex listamenn sem komu
frá Bandaríkjunum, Frakklandi,
Þýskalandi og Austurríki og níu
listamenn munu dvelja hjá okkur í
september. Listamannabústaðurinn
í Nesi býður listamönnum tíma og
rúm til að kanna og þroska starfshætti
sína innan annars samfélags, hitta
nýtt fólk, finna innblástur og kynna
og kynnast nýrri menningu. Að dvelja
hér á Skagaströnd, í þessu landslagi,
veitir gestum okkar ró og næði og
tengingu við náttúruna langt í burtu
frá daglegu amstri borgarlífsins.“
Eru listamennirnir almennt ánægð-
ir með tíma sinn á Skagaströnd?
„Ólíkt ferðamönnum, sem dvelja
sjaldan meira en nokkra daga
á einum stað, eru þeir erlendu
listamenn sem dvelja hjá okkar
búsettir hér í 1–6 mánuði og sökkva
sér niður í samfélagið og skapa alls
kyns þroskandi menningarsamskipti
við aðra listamenn og heimamenn.
Listamennirnir vilja ekki bara tíma
til að þróa hugmyndir sínar og
sköpunarferli í friði, heldur einnig
að upplifa dýrmæt og þroskandi
tengsl við fólkið á Skagaströnd og
á Norðurlandi vestra. Þeir snúa oft
aftur hingað til Skagastrandar til að
halda við þeirri vináttu og tengslum
sem myndast hafa.“
Hvað eruð þið sjálf ánægðust með
varðandi listamiðstöð á Skaga-
strönd? Það sem hefur veitt okkur
mesta ánægju hér á Nes listamiðstöð er
menningar- og félagsleg þátttaka milli
listamannanna og nærsamfélagsins,
miðlun þekkingar með kynningum,
sýningum, opnum vinnustofum og
ýmsum uppákomum. Listamennirnir
hafa miðlað rausnarlega kunnáttu
og skapandi þekkingu til barna í
skólunum hér á Norðurlandi vestra og
vinna oft með heimafólki í skapandi
og sameiginlegum verkefnum,“ segir
Vicki að lokum.
Opin vinnustofa. MYND: ÓAB
Það er Króksarinn Valdís
Valbjörnsdóttir sem svarar Tón-lystinni
að þessu sinni en hún er 20 ára,
dóttir Önnu Sigríðar Stefánsdóttur og
Valbjörns Geirmundssonar. Hljóðfæri
Valdísar eru röddin og gítar en nýlega
lauk hún námi við Complete Vocal
söngskólann í Kaupmannahöfn.
Valdís tók árið 2018 þátt í Söngkeppni
framhaldsskólanna fyrir hönd FNV og
sigraði þar símakosninguna. Nú í júlí vakti
hún verðskuldaða athygli þegar hún söng
Vor í Vaglaskógi undurfallega í Tónaflóði
Sjónvarpsins. Spurð út í helstu afrekin á
tónlistarsviðinu hingað til segir hún: „Að
vera byrjuð að gefa út mitt eigið efni,“ en í
vor gaf Valdís út hið ágæta lag Hold On To
Our Love í samstarfi við Future Lion og nú
rétt á dögunum bætti hún við laginu Fake
Friends.
Hvaða lag varstu að hlusta á? The Love
Club með Lorde.
Uppáhalds tónlistartímabil? Núna, elska
að fylgjast með í hvaða átt tónlistin er að
fara.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Er mjög mikið að fylgjast
með poppinu og hef verið að hlusta á
tónlistarmenn eins og Ariönu Grande,
Sigrid, Charlie Puth, Zara Larsson, Troye
Sivan og Wafia.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili? Það var mjög fjölbreytt. Pabbi
hlustaði á bæði rokk og popp en mamma
var meira í diskóinu.
toppurinn
Vinsælast á Playlista
Valdísar:
Don’t Kill My Vibe
SIGRID
I Warned Myself
CHARLIE PUTH
I’m Good
GLOWIE
God Is A Woman
ARIANA GRANDE
Hurts
WAFIA FT. LOUIS THE CHILD &
WHETHAN
Blue World
MAC MILLER
Valdís Valbjörnsdóttir | söngur og gítar
Eitt af topp 10 bestu mómentum
lífsins að hitta Ariönu Grande
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kas-
ettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Er
ekki alveg viss, en fyrsta niðurhalið mitt á
iTunes var Yours Truly albúmið með Ariönu
Grande.
Hvaða græjur varstu þá með? Var með
iPhone 5.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir
að hafa fílað í botn? Örugglega This Is Me
með Demi Lovato úr myndinni Camp Rock,
söng þetta lag mjög mikið þegar ég var lítil.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn?
Ég er með mjög breiðan tónlistarsmekk og
hef ekki ennþá heyrt lag sem gæti virkilega
eyðilagt fyrir mér daginn.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að koma
öllum í stuð? Þeir sem þekkja mig vita
að ég er ekki mesta partí manneskja sem
hægt er að finna, en það kemur ekkert
annað til greina en I Want It That Way með
Backstreet Boys.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudags-
morgni, hvað viltu helst heyra? Kósí
playlistann minn sem inniheldur falleg róleg
lög með Adele, Tom Odell, Tori Kelly, Ben
Platt, FINNEAS, Daniel Caesar og fleiri.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern
tækirðu með þér? Ég myndi vilja fara á
Demi Lovato tónleika í London með systur
minni.
Hvaða músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst nýkomin með bílpróf? Ég
er mikil söngleikja manneskja og þegar ég
fékk bílpróf þá var ég að blasta Hamilton,
sem ég kann frá A-Ö. Alveg magnaður
söngleikur, mæli mjög mikið með!
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um
að vera eða haft mest áhrif á þig? Ariana
Grande, hef verið mjög mikill aðdáandi
hennar síðan hún byrjaði að gefa út tónlist
og ég fæ mjög mikinn innblástur frá henni.
Hitti hana baksviðs á tónleikunum hennar í
Edinborg árið 2015 og það er eitt af top 10
bestu mómentum lífs míns.
Hver er að þínu mati besta plata sem
gefin hefur verið út? Ég myndi segja Yours
Truly og My Everything með Ariönu Grande.
Þetta er í rauninni það fyrsta sem ég hlusta
á þegar ég fer í alvörunni að pæla í tónlist.
VALDIS. AÐSEND MYND
10 34/2020